Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1916, Side 15

Sameiningin - 01.08.1916, Side 15
175 árum saman í þrjár mínútur, og hvað verður hann þá ann- að, eða meira? Erum vér ekki andar, sem birtumst í lík- ams-lögun eins og sýn, og hverfum svo aftur út í loftið og ósýnileikann ? petta er alls ekki líkingarmál. petta er sannleikur einfaldur og vísindalegur. Vér komum fram úr óskapnaðinum, tökum á oss lögun, og svipin; umhverfis oss, jafnt sem hreina og beina afturgöngu, er eilífðin á allar hliðar; og hjá eilífðinni verða mínútur jafn- ar árum og aldaröðum.—Hvar er nú Alexander frá Make- doníu? Eru herskararnir stálklæddu, sem æptu grimmi- legt heróp við Issus eða Arbelu, enn að baki honum; eða eru þeir horfnir gersamlega eins og vofur, sem hrökkva einhverri stygð? Og Napóleon, með sína herför til Aust- erlitz og undanhald frá Moskva Var það alt saman nokk- uð annað en sann-nefnd draugareið, sem breytti nætur- kyrðinni í hávært og hræðilegt uppnám og varð svo að engu aftur? — Svipir! Hartnær þúsund miljónir ganga um jörðina ljósum logum á hádegi; hálft hundrað eru horfnir og hálft hundrað komnir aftur, meðan úrið þitt dikkar einu sinni; eins og guð-borinn anda-her komum vér fram úr tóminu, skundum eins og í stormviðri yfir forviða jörðina og hverfum aftur inn í tómið—en hvaðan og hvert? Vit vort veit það ekki, trúin veit það ekki—að eins, að það er frá leyndardómi til leyndardóms, frá Guði til Guðs. G. G. Sameining kirkjudeildanna. Saga kirkjunnar í Vesturheimi hin síðari ár auðkenn- ist um fram alt af tilraunum til sameiningar. Verður það á sínum tíma merkilegur þáttur í kirkjusögunni, þó enn sé ekki unt að gizka á, hverjar afleiðingarnar verða. pað er með þá sameiningu eins og alla sameiningu aðra, hún er góð og nytsamleg þar sem hún er eðlileg og það eitt sameinast, er saman á; en hún er vond og tortým- andi þar sem það er bundið saman, sem eftir eðli sínu er ósamkynja og gagnstríðandi. í New York er miðstöð sambands þess, er nefnist "The Federal Council of the Churches of Christ in Ame- ríca.” Eiga þar nærri allar kristnar kirkjudeildir fulltrúa, og er markmið bandalagsins, að efla samvinnu og auka samhug kirknanna. f Canada hafa Presbýterar og Meþódistar ákveðið að sameinast í eina deild. Engin grundvallar-atriði aðgreindu lengur þær tvær deildir reformeruðu kirkjunnar. Var því ekkert verulegt því til fyrirstöðu, að sameining yrði, og

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.