Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1916, Blaðsíða 16

Sameiningin - 01.08.1916, Blaðsíða 16
176 stóðu þó all-margir á móti sameiningunni og urðu óánægð- ir, þegar búið var, og ætla sér að halda þing út af yrir sig í haust. Vel er þó spáð fyrir framtíð þessarar sameinuðu kirkju. Innan lútersku kirkjunnar er sterk hreyfing í samein- ingar-áttina. Lúterska kirkjan hér í landi skiftist nú að- allega eftir þjóðernum og staðarháttum. Trúarlegur á- greiningur á sér ekki lengur stað, nema við Missouri sýn- óduna þýzku, sem enn þykir þröngsýn og stirð til sam- vinnu. Stór-deildir (General bodies) lútersku kirkjunnar starfa saman og hafa sömu helgisiði (nema “General Con- ference”, þar sem Missouri sýnódan er aðal-félagið). Nú er og sameiginlegt málgagn fengið fyrir allar deildir lút- ersku kirkjunnar, þar sem er “The Lutheran Survey” í Columbia, S. C. Mest tíðindi hafa orðið hjá Norðmönnum á síðustu missirum. Svo sem kunnugt er, hefir norska kirkjan lút- erska vestan hafs löngum átt í innbyrðis stríði og klofnað hvað eftir annað. En nú er þar friður og öll félögin eru að sameinast. prjú hafa síðast verið aðal kirkjufélögin norsku: Sameinaða kirkjan (samsteypa frá 1890 kirkjufélaganna eldri þriggja: Konferenzunnar, Ágústana- Sýnódunnar norsku og Antí-Missouri manna), N o r s k a S ý n ó d a n (stofnuð 1853) ogHauge Sýnódan (stofn- uð 1850). Sameinaða kirkjan er stærst, og má hana telja löglegan erfingja móður-kirkjunnar norsku. pau efni, sem hún er smíðuð úr, voru félög þeirra, sem héldu fast við kirkjulega arfleifð sína frá Noregi og bygðu á sama grund- velli, sem kirkjan á ættjörðinni stóð á, þegar flestir Norð- menn fluttust vestur um haf, en varðveitt hefir hún sig frá síðari áhrifum frá háskóla-guðfræðinni í Noregi. Skyld- leiki mikill er með Sameinuðu kirkjunni norsku og kirkju- félagi voru hinu íslenzka. Bæði félögin hafa haldið föst- um þeim trúarsannindum, sem innflytjendurnir komu með frá ættjörðum sínum, og hafa hvorki látið þokast fyrir annarlegum áhrifum frá kirkjulífinu hérlenda (nema að því leyti sem þau hafa tekið sér til fyrirmyndar starfsað- ferðir og félagslegt fyrirkomulag annara kirkju-deilda), né borist með þeim nýju guðfræða-straumum, sem mörg- um hinum gömlu trúarsannindum hafa velt um koll á sum- um svæðum þjóðkirknanna heima fyrir, síðan flutt var vestur. ' Norska Sýnódan komst snemma á band með Missouri- Sýnódunni þýzku. Varð hún fyrir sterkum áhrifum aftur- haldsins, sem Missouri-Sýnóduna hefir auðkent. Var sam- band það sem traustast um það leyti sem fslendingar komu vestur og kyntust Norsku Sýnódunni. Leitaði sem kunn-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.