Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1916, Side 26

Sameiningin - 01.08.1916, Side 26
186 í þeirri sögu, svo sem bréfritarinn bendir á. En það dylst víst eng- um, að frelsaranum er ekki rétt lýst í sögunni. í allri píslarsögunni heyrum vér ekki eitt stygöaryröi af vörum hans, hvaS þá svo óskap- legan álaga-dóm sem þann, er sagan segir frá. KIRKJULEGAR FRÉTTIR. Deild þessa annast séra Kristinn K. ólafsson. Þann 1. September næstk. fer fram atkvæðagreiðsla í Yukon- héraðinu í Canada um það, hvort þar eigi framvegis að vera vín- bann. ------o------- Samkvæmt skýrslum Sameinuðu kirkjunnar norsku v'oru, árið sem leið, fluttar 37,500 messur á norsku í söfnuðum þess kirkjufé- lags og um 10,500 á ensku. Hafði tala enskra messa aukist á árinu um 2,000. -------o------- Hauge-sýnódan norska samþykti á þingi sínu í sumar, með þrem-fjórðu atkvæða, að sameina sig Norsku sýnódunni og Sam- einuðu kirkjunni, eins og verið hefir í ráðum til fleiri ára. Eru þá öll kirkjufélögin þrjú búin að samþykkja sameininguna, og heldur hið nýja kirkjufélag, er þannig myndast, fyrsta þing sitt í Október- mánuði næsta ár í Minneapolis. ------o------- Að Presbýtera kirkjunni hafi verið full alvara með samþykt þá, er tilfærð var í þessum fréttum í síðasta blaði, virðist það benda, að prestsefni eitt, sem sókti um vígslu í deild kirkjunnar í Washing- tonríki, og reyndist að vera í ósamræmi við grundvallaratriði trúar- innar, var gert að skyldu, að leggja á sig frekara nám hvað snerti sannsöguleik biblíunnar og meyjarfæðinguna. Var umsókn prests- efnisins með þeim ummælum látin bíða næsta þings í þessari deild kirkjunnar. ------o------- Outlook College í Saskatchewan, norsk-lúterskur skóli, stofnaður af meðlimum Sameinuðu kirkjunnar norsku, hélt hátíð frá 7. til 10. Júlí í sambandi við það, að þá var vígt nýtt heimili fyrir skólann. Er nýja byggingin hin vandaðasta, og kostaði um $28,000. Skóla- stæðið fcampusj er 40 ekrur að stærð. Hefir bærinn Outlook lagt $7,700 til skólans. :Frá því er skýrt í Christian Herald, að í bréfi frá formanni holdsveikra nýlendunnar Bethesda í Dutch Guiana í Suður Ameríku, sé þess getið, að tvær stúlkur séu þar nýlega al-læknaðar af holds- veiki. Hafði önnur þeirra verið þar í fjögur ár, hin sjö.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.