Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1908, Side 5

Sameiningin - 01.10.1908, Side 5
229 ar þess manns koma, að framan af ári þessu lét kann mál- gagn 'sitt mánuð eftir máinuð flytja lesendum þess þýdda kafla úr bók hans; og svo sem að sjálfsögðu hafa ,.Breiðab]ik“ séra Friðriks J. Bergmanns liér bergmál- að meðmæli annarra með því ritverki. Og þó að sumir þeirra, sem nær oss eða fjær hafa gjörzt talsmenn hinna nýju trúarkenninga, fari engan veginn jafn-langt og gjört er í bók Campbells í fráhvarfinu frá hreinum og ómenguðum kristindómi, þá stefna þeir þó allir, ef réttri rökfœrslu er haldið, í nákvæmlega sömu afneitunar- áttina. -----o----- Nafnlausu níðgreininni í „Heimskringlu“ um for- setakosninguna á síðasta kirkjuþingi, sem um var getið í September-blaði „Sam.“, svaraði séra Jóhann Bjarna- son í „Lögbergi“ og g'jörði þar skýra grein fyrir sann- leikanum í því máli. Þar með voru þá einnig hraktar missagnirnar illkvittnu í „Breiðablikum“ um sama efni. „lsafold“ flutti 19. Ágúst grein nokkra eftir Einar Hjörleifsson út af því, sem gjörðist í skólamáli kirkjufé- lags vors á þinginu í sumar, einhverja ljótustu grein, sem til er eftir þann höfund, — nærri því ljótari en þá, er hann forðum setti saman um íslenzku sálmahókina, eða þá, er liefir fyrirsögnina „Tuddinn“. Þessarrar síð- ustu skammargreinar Einars Hjörleifssonar minnist séra Björn B. Jónsson, forseti kirkjufélagsins, í ritgjörð sinni nú í „Sam.‘ ‘ En hr. W. H. Paulson hefir að öðru levti rœkilega svarað þeim veltings-skömmum Einars í „Lögbergi“ frá Sept. og Okt. Vottorðinu frá þeim dr. Brandson, J. J. Bíldfell, Klemens Jónassyni og Jóni J. Vopna, sem endr-prentað var í Sept.-blaði „Sam.“, leitaðist séra Friðrik J. Berg- mann við að hnekkja seinna í blaði sínu. Reyndi hann þar að styðja sig við greinarstúf nokkurn frá hr. Sig- urði Sigurðssyni að Garðar, sem var með þeim fjórum í kirkjuþingsnefndinni út af skólamálinu í fyrra, og þó mótmælir nefndarmaðr sá alls engu af því, sem hinir

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.