Sameiningin - 01.10.1908, Blaðsíða 6
230
nefndarmennirnir höfðu vottað. Engu að síðr sitr séra
Friðrik fast við sinn keip, en spinnr að eins upp nýja á-
kæru gegn Jóni Bjarnasyni, sem er nokkurn veginn eins
fráleit og hin fyrri. Þessum vafningum og ósannindum
hefir hr. Jón J. Bíldfell skýrt og skilmerkilega svarað í
„Lögbergi" 1. Okt.— En framkoma séra Friðriks í þessu
vottorðsmáli minnir á dœmisöguna um úlfinn og lambið.
„Þú gruggar upp fyrir mér vatnið“—sagði úlfrinn.
„Nei“—svaraði lambið, — „það er ómögulegt, því eg
stend neðar við lœkinn en þú.“ „Það stendr á sama“-
mælti úlfrinn, og kom svo með nýja og nýja sök gegn
lambinu, uppspunna og út í hött eins og þá fyrstu. Og
svo át úlfrinn lambið.
„Nýtt Kirkjublað“ birtir í síðastliðnum mánuði
brot af tveimr bréfum héðan að vestan um kirkjuþing
vort liið síðasta, þar sem átakanlega er lýst ranglæti því,
er við það tœkifœri hafi beitt verið við séra Friðrik J.
Bergmann. Svo sem við mátti búast eru höfundar
bréfa þeirra ónafngreindir. Á þann bátt er hœgast fyr-
ir þá, sem illan hafa málstað, að þeyta út getsökum og
reka erindi myrkravaldanna. Á slíkum bréfum leikr
íefinlega grunr. Sumum liefir þótt lang-líklegast, að
annað bréfa þessarra að minnsta kosti sé alls ekki héðan
að vestan í raun og veru, eða ekki beinlínis, heldr í böf-
uðstað íslands soðið saman upp úr því, er náungi einn
liér hefir ritað andlegum bróður sínum þar um kirkju-
þingið frá sameiginlegu sjónarmiði þeirra beggja.
Þriðja bréfsins sömu tegundar getr „Nýtt Kirkju-
blað“ einnig án þess þó að tilfœra úr því neinn kafla.
Þess er að eins getið, að í því bréfi sé það tekið fram, að
séra Pétr Hjálmsson hafi ekki „haft sig frammi í þess-
um hryggilega leik“ — ofsókninni á kirkjuþinginu gegn
séra Friðrik J. Bergmann; og þykir „Kirkjublaðinu“
það mjög sennilegt. „Þeir séra Friðrik Hallgrímsson“
(sem áðr er getið um að ekki hafi verið með í samsœr-
inu, að eins hann af prestunum stendr þar) „eru báðir
héðan ,að beiman“ — svo hljóða ummæli „Kirkjublaðs-