Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1908, Page 8

Sameiningin - 01.10.1908, Page 8
232 skifzt í flokka. Framkvæmdir í því máli hafa stundum gjörðar verið þvert ofan í liin sterkustu mótmæli öflugs minna hluta. Hin síðari ár hefir málið verið mörgum til ásteytingar. Þó fór svo á síðasta þingi kirkjufélagsins, að loks urðu allir sammála, og samþykktin í skólamálinu var gjörð í einu liljóði. „Norðanmenn" og „sunnanmenn“, prestar og erindsrekar safnaðanna, allir menn úr öllum flokkum greiddu eitt og sama atkvæði. Allir komu sér saman um þetta eina: að leggja niðr kennara-embættin bæði á næsta vori. Allt kirkjuþingið tók á sig ábyrgðina af samþykktinni. Allir, sem atkvæði greiddu, tóku upp á sig ábyrgð af þeirri ákvörðun. Hvergi hefir þess verið getið, að fólk safnaðanna væri óánœgt með þessar aðgjörðir þingsins. Hvervetna í kirkjufélaginu munu menn vera einhuga um það, að kirkjufélagið liafi, eins og á stóð, leitt málið hyggilega til lykta. Aftr á móti hefir heyrzt hávaði ekki lítill handan um haf, og óviðkomandi menn hafa hrakyrt kirkjuþingið út af meðferð þess á skólamálinu. „Nýtt Kirkjublað“ í Reykjavík hefir haft þau ummæli, sem lýsa aumkunar- verðri vanþekkingu á því, sem það er að tala um. Hefði ritstjórinn setið á þingi eða haft sannar fréttir þaðan, hefði hann naumast látið blað sitt lierma það, sem það hefir liermt um þingið og skólamálið. Því óefað finnst þó ritstjóranum það nokkru varða, að sagt sé satt, og nokkur ábyrgð vera því samfara, að útbreiða óhróðr um saklausa menn. Þá hefir og meðferð kirkjuþingsins á skólamálinu orðið efni í nýja skáldsögu eftir herra Einar Hjörleifs- son. Saganheitir: „111 tíðindi vestan um haf.“ Skáld- saga er erindi þetta hér nefnt, því svo kalla menn þá frásögu, sem ekki styðst við sannsögulega viðburði, heldr er smíði höfundarins. í erindi þessu eftir hr. E. H. er heiftþrungnum illyrðum hellt eins og steypiflóði yfir þá, sem valdir eru að niðrstöðu kirkjuþingsins í skólamál- inu. En það eru, eins og áðr var tekið fram, allir þeir,

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.