Sameiningin - 01.10.1908, Page 12
236
ingi þess flokksins, sem fyrir embættinu við Wesley
College stóð.
Óánœgja sú, er átti sér stað út af kennara-embætt-
inu við Wesley College, mun hafa stafað af því tvennu:
1) að ýmsum fundust kjör þau, er fyrirtœkið átti við að
búa við Wesley, ekki viðunandi, og 2) að ýmsir urðu ó-
ánœgðir yfir þeirri breytingu, sem varð á trúmála-
stefnu kennarans. Ár eftir ár vakti forseti kirkjufé-
lagsins máls á því í ársskýrslu sinni, að kirkjufélagið
greiddi óhœfilega mikið verð fyrir kennsluna, og skól-
anum bæri að taka meiri þátt í kostnaðinum. Ekki fékk
það þó framgang á kirkjuþingum, að nýrra samninga
væri leitað.*) Óánœgjan út af breytingunni á stefnu
kennarans í kirkjumálum olli því einnig, að margir þeir,
sem áðr höfðu verið aðal-styrktarmenn fyrirtœkisins,
gáfu sig alveg frá því. Flestir þeirra manna í Winni-
peg, sem upphaflega höfðu af svo miklu kappi unnið að
því að koma á embætti þessu, voru orðnir sár-óánœgðir
með það. Þessu samfara var dagvaxandi sundrlyndi og
rígr milli sumra helztu starfsmanna kirkjufélagsins.
Nú kemr málið þannig lagað fyrir síðasta kirkju-
þing, eftir að hafa verið ásteytingar-steinn og sundrung-
ar-efni í kirkjufélaginu í sjö ár. Stór hluti kirkjuþings-
manna er ákveðinn í því að fá því framgengt á þingi, að
skift sé um kennara við Weslev College. IJt af því leit
út fyrir að nýr ófriðr yrði. Þegar svona hörmulega var
nú komið, fóru menn að hugsa um það, hvort ekki væri
hyggilegast að hætta alveg við þetta fyrirtœki, sem svo
lengi var búið að vera þrætuepli, með því líka að nú varð
opinbert, hversu ólík er stefna Wesley-skólans stefnu
kirkjufélagsins í trúmálum. Vitanlega var íslenzku-
kennsla þessi einungis auka-atriði að því er starf kirkju-
félagsins áhrœrir. Aðal-ætlunarverk félagsins er auð-
vitað allt annað. Þar sem það nú var orðið marg-reynt
___________ : r,
*) Að ekki hafi iþað veriö ómögulegt, aö betri kjör feng-
ist, má ráöa af því, aS þegar er skólinn fær þaö aö vita, aö
kirkjufélagiS ekki ætli lengr aS kosta embættiö, sér skólinn sér
foert aS kosta þaö sjálfr aö öllu leyti.