Sameiningin - 01.10.1908, Blaðsíða 14
238
Hún var gjörö af belgiþornsviSi: hálf-íþriöjia. alin á lengd, hálf-
önnur alin á breidd, gullbúin utan og innan. Tveir hringir úr
gulli voru á hvorum enda arkarinnar. í gegn um þá gengu ásar
tveir úr belgþornsviöi gullbúnir, og skyldi örkin á þeim borin.
Sjálfa örkina mátti aldrei snerta. Á ásunum einum máttu burö-
armennirnir taka. Lok var yfir örkinni ia.f skíru gulli og á því
kerúbar tveir meö útþanda vængi. Lokið var nefnt náðar-
stóllinn. í örkina voru lagöar lögmálstöflurnar tvær, er drott-
inn 'haföi ritaö meö fingri sínum á Sínaí. Viö Móses talaði
Jehóva og sagði: „Þú skalt leggja niðr í sáttmálsörkina þau
lög, sem eg mun fá þér. Þar vii eg vitrast Þ'ér, og ofan á ark-
arlokinu milli beggja kerúbanna, sem standa uppá lögmálsörk-
inni, vil eg birta þér allar þær skipanir, sem eg vil láta þig kunn-
gjöra fólkinu" (2. Mós. 25, 21-22J. Þ.að var sáttmáli guös, opin-
berun vilja hans, sem örkin geymdi. Því var það, að hún hafði
svo mikla helgi. Og á arkarlokinu ljómaði bjart ljós eins og af
ásjónu guös, sama birtan sem eins og eldstólpi vísaði ísraels-
mönnum veg um eyðimörkina. Örkin táknaði návist guðs.
Þessa helgu örk guðs bar ísraelslýðr með sér hvar sem
hann fór. Alla eyðimerkr-gönguna löngu bar hann örkina með
sér, gegn um hyldýpi Jórdanar og inn í fyrirheitna landið.
Fyrir henni hrundu. múrveggir Jeríkóborgar. Fyrir hernum
var hún borin út á blóðuga vígvelli. Hvar sem ísrael fór, þar
fór örkin. Yfir henni dœmdi ísrael dóma sína. Þar vitraðist
guð börnum sínum. Ávallt vegnaði ísraelsmönnum vel, er þeir
geymdu arkarinnar vel. Stundum týndu þeir henni. Stund-
um var hún hernumin af óvinum. Ávallt náðist hún aftr.
Þegar þeir reistu hið mikla musteri sitt, bjuggu þeir um örkina
í hinu allra helgasta. Af engu stóð ísrael jafn-mikill ótti sem
af dýrð og krafti sáttmáls-arkarinnar.
Þessi örk, gjörð af belgþornsviði og gulli búin utan og inn-
an, er horfin. En það, sem hún geymdi, helzt enn við, og það,
sem h'ún táknaði, varir til eilífðar. Sáttmála þann, er drottinn
gjörði á Sínaífjalli, hefir hann endrnýjað á Golgata. Og ekki
er örk hins nýja sáttmála hinni fyrri óveglegri. Sáttmálsörk
vor er heilög ritning. Þar eru töflur þær, sem guð hefir ritað
orð sitt á. Þar er opinberun og ráðstöfun guðs mönnunum til
sáluhjálpar geymd um allar aldir. Þessa sáttmálsörk hefir hinn
nýi ísrael, kristin kirkja, fengið til varðveizlu. Á þeim náðar-
stól ljómar birta drottins dýrðar og þaðan talar guð og birtir
mönnunum vilja sinn. Og þáð heilaga ætlunarverk hefir kirkja
drottins þegið, að bera sáttmálsörk guðs um heim allan í Jesú
riafni, svo vötn dauðans klofni og veggir syndarinnar hrynji.