Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1908, Qupperneq 28

Sameiningin - 01.10.1908, Qupperneq 28
252 & gjört og sólbrennt. Skegg þeirra huldi hálsinn framan- * veröan. Það var í flóka og náöi niör á bringu. Þeir gengu í yfirhöfnum úr kiðlinga og lambaskinnum með ull- inni á, og voru þeir meö flíkum þeim dúðaöir upp frá hálsi til knjáa, nema handleggir, sem voru án allra umbúða. Hina grófgjörðu kufli girtu þeir að sér með breiðum belt- um. Á fótum höfðu þeir ilskó af allra grófasta tægi. Niðr frá hœgri öxlum þeirra héngu skreppur með nesti í og út- völdum steinum fyrir slöngur þær, sem þeir voru útbúnir með. Á jörðinni hjá hverjum nn sig lá krókstafr hans, sem var tákn köllunar hans og vopn til varnar. Þannig voru fjárhirðarnir í Júdeu. Að ytra útliti voru þeir grófir og villtir eins og hinir gelgjulegu rakkar, sem sátu hjá iþeim í kring um eldinn; en í raun og veru ráð- vandir og viðkvæmir; og stafaði þetta hvorttveggja að nokkru leyti af hinum frábærlega óbrotnu lifnaðarháttum þeirra, en einkum af umhyggju þeirri, er þeir stöðugt báru fyrir skjólstœðingum sínum — skepnunum meinlausu og ó- sjálfbjarga. Þeir hvíldust og skröfuðu saman; náði umtalsefni þeirra að eins til hjarðanna, og er það í augum heimsins næsta dauflegt, en þar var þó allr heimrinn fyrir þá. Virzt getr, að þeir, er þeir voru að segja frá, hafi of lengi dvalið við smámuni, þar sem t. a. m. sá, sem gjöra vildi grein fyr- ir því atviki, er lamb hafði farizt, tíndi til sérhvað eina þar að lútanda, hversu lítilfjörlegt sem var; en hins vegar er að muna eftir því, hve náið var samband sögumanns og lambsins, sem fyrir slysinu hafði orðið. Þegar undir eins og lambið fœddist varð það hans handbendi; upp frá því var það hans að annast það svo lengi sem það lifði, hjálpa (því yfir lœkina, er þeir uxu í rigningum og urðu hættu- legir yfirferðar, bera það niðr eftir lautunum, gefa því nafn og venja það; það átti að verða félagi hans, serrj hann varð að hugsa um og annast; utan um það snerist vilji hans; það var honum stöðugt samferða, enda honum til hressingar hvar sem hann var á ferli, og komið gat það fyrir, að hann yrði jþjví til varnar að ganga út í bardaga við ljón og ræningja — og láta lífið. Hinir miklu atburðir mannkynssögunnar eins og þeir, er gjöreyddu heilar þjóðir og ollu því, að yfirráðin í heim- inum komust í nýjar hendr, voru fyrir þá smámunir, svo framarlega sem slíkt fór annars ekki algjörlega fram hjá þeim. Við og við fréttu þeir um það, sem Heródes var að hafast að í þeirri eða þeirri borginni — reisa hallir og leikœfingahús og varpa sér út í allskonar óleyfilegar ^ skemmtanir. Að vanda sínum á þeirri tíð beið stjórnar- ®

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.