Fréttablaðið - 25.05.2011, Blaðsíða 8
25. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR8
Aska um allar sveitir
Askan úr Grímsvötnum hefur gert mörgum lífið leitt undanfarna sólarhringa,
ekki síst ábúendum og dýrum í Landbroti sunnan Kirkjubæjarklausturs. Þar
var Valgarður Gíslason, ljósmyndari Fréttablaðsins, á ferðinni í gærmorgun
og tók meðfylgjandi myndir af illviðráðanlegum aðstæðum bænda á svæðinu.
ELDGOS Í GRÍMSVÖTNUM
Hollvinasamtök
Aðalfundur Hollvinasamtaka varðskipsins Óðins verður
haldinn fimmtudaginn 26. maí næstkomandi.
Fundurinn verður haldinn í Víkinni - sjóminjasafni
Reykjavíkur, Grandagarði 8 og hefst klukkan 17.00.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Hollvinir varðskipsins Óðins hafa með samstilltu átaki
bjargað þessu merkilega skipi og gert það að lifandi
safngrip og helsta djásni sjóminjasafnsins.
Hollvinir, fjölmennið á fundinn.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórn Hollvinasamtaka Óðins.
varðskipsins Óðins
Óðinn reyndist sérlega vel sem björgunarskip. Hann dró alls tæplega 200 skip
til lands eða í landvar vegna bilana, veiðarfæra í skrúfu eða eldsvoða um borð.
Einnig dró hann flutninga- og fiskiskip 14 sinnum af strandstað.
Þá bjargaði skipið áhöfnum strandaðra skipa þrisvar sinnum og tvisvar
bjargaði það áhöfnum sökkvandi skipa.
K
O
M
A
lm
an
na
te
ng
sl
/ K
úp
er
bl
ak
k
eh
f.
FÉNU SMALAÐ Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu í gær bændur við að smala sauðfé í hús. Á nokkrum bæjum höfðu bændur ekki komist til að vitja fjár síns síðan gosið hófst vegna öskukófs og myrkurs af þess völdum.
ÖSKUFOK Eldri ábúendur í sveitinni segja Grímsvatnagosið nú minna á Kötlugosið 1918.
FALLIÐ FÉ Eitthvað fannst af dauðu fé þegar bændur komust úr húsi en dýralæknir segir ekki um mikinn fjölda að ræða.
ÖSKUKÓF Þó að
öskukófið hafi
verið minna í gær
en á sunnudag og
mánudag þurftu
þeir sem voru
utandyra að vera
með grímur fyrir
vitum og hlífðar-
gleraugu.