Fréttablaðið - 25.05.2011, Side 38

Fréttablaðið - 25.05.2011, Side 38
25. maí 2011 MIÐVIKUDAGUR26 26 menning@frettabladid.is Sunnudagskvöldið 22. lá leiðin á sýningu Les SlovaKs, Opening Night, í Borgarleikhúsinu. Þegar inn í stóra salinn var komið stóðu á sviðinu sex karlmenn í mismun- andi stærðum og gerðum, allir frjálslega til fara. Einn mann- anna hélt á fiðlu og hlaut því að vera tónsmiðurinn og fiðluleikar- inn Simon Thiery. Sviðsmyndin var engin og lýsingin mjög hóg- vær. Eftir þó nokkra bið, fyrst á meðan dansararnir biðu eftir því að áhorfendur kæmu sér fyrir í sætunum og síðan á meðan áhorf- endur biðu eftir því að verkið hæf- ist, hófu dansararnir upp raust sína og sungu fyrir salinn. Eftir fagran söng drógu dansararnir sig út í horn, þaðan sem þeir lögðu af stað í dansinn ýmist einn og einn eða fleiri saman við undirleik fiðl- unnar. Allar hreyfingar voru létt- ar og leikandi eins og þeir hefðu ekkert fyrir því að hoppa og rúlla eða hendast yfir gólfið með svo hröðum fótahreyfingum að augað vart á festi. Stemningin í þessum fyrsta hluta sýningarinnar minnti meira á þjóðdansamót eða götudans- sýningu heldur en sviðslistaverk. Eitt af því fyrsta sem kom upp í hugann var hópur glaðhlakka- GLEÐIN HÖFÐ Í FYRIRRÚMI Dans ★★★ Opening Night Les SlovaKs Sýnt í Borgarleikhúsinu Bækur ★★★★ Skrælingjasýningin Kristín Svava Tómasdóttir Bjartur Örlög smáblóma í írónískum heimi Kristín Svava Tómasdóttir ruddist inn á ljóðasviðið með brauki og bramli árið 2007 þegar fyrsta ljóðabók hennar, Blót- gælur, kom út. Henni var umsvifalaust skipað á bekk okkar efnulegustu ung- skálda, enda átti þessi kjaftfori töffari sem ekkert var heilagt ágætlega heima þar. Skrælingjasýningin er rökrétt fram- hald af Blótgælum, þroskaðri ljóð og tónninn lágstemmdari þótt fyrrgreindur töffari sé aldrei langt undan. Tónninn er sleginn strax í upphafs- orðum fyrsta ljóðs bókarinnar: „Krass! Búmm! Harmafregn! Stríð á okkar tímum!“ og það stríð er ekki einungis háð á vígvöllum, það er háð innra með okkur hverju og einu, allan daginn alla daga og ekki von til að það endi í bráð: Sameinuð skríðum vér sundruð skrimtum vér og til hvers erum við hér ef ekki til að níða það sem er ranglega heilagt? (tímgast og rotna) ( bls. 11) Kristínu Svövu er enn ekkert heilagt. Hún yrkir um samskipti kynjanna, stríðsrekstur heiman og heima, skrifar bréf til herra Brown, skilur ekki hví Karli Blöndal berast aldrei bréf, gagnrýnir samfélagið og gerir grín að skálda- spírum og sjálfskipuðum réttlætisbaráttumönnum. En þótt húmorinn sé oftar en ekki hnífskarpur og nístandi liggja undir einhver djúpur tregi og þrá sem raska ró lesandans. Það er ógn í andrúmsloftinu og órói í hjörtunum, ástin aðeins tímabundin afþreying, öll landamæri lokuð og maður kannski ekki einu sinni manns gaman þegar allt kemur til alls: Þessar manneskjur sem villast inn í líf þitt stíga steypuna í æðum þér og hverfa svo aftur út í þýðingarleysið Hversu mörgum hefur maður ekki týnt og hversu innilega hefur manni ekki staðið á sama þegar allt kemur til alls (bls. 13) Seinni hluti bókarinnar kallast – Viðauki – Lyklar að túlkun 22 ljóða – syrpa handa kennurum. Þar eru „greind“ 14 ljóð með tungutaki bókmennta- fræðinnar á óborganlega skemmtilegan hátt. Lesandinn bókstaflega veltist um af hlátri og verður að viðurkenna að klisjusafnið hittir oftar en ekki beint í mark: Ljóðið er írónísk ádeila á yfirborðskenndan neysluheim póstmódernískrar menningarelítu sem telur sig taka upplýstar sjálfstæðar ákvarðanir en er ekki síður á valdi samfélagshugmyndanna en pöpullinn … ( bls. 43) Í heild er Skrælingjasýningin án efa skemmti- legasta ljóðabók sem út hefur komið lengi, en um leið rær Kristín Svava á dýpri mið en áður og þótt kjaftshöggin séu kannski ekki eins bein- skeytt og í Blótgælum er undiraldan sterkari og áhrifameiri. Friðrika Benónýsdóttir Niðurstaða: Skemmtilegasta ljóðabók sem út hefur komið lengi, en um leið hárbeitt og ögrandi samfélagsmynd sem sest að í minninu og vekur óróa. legra hipphoppara á göngugötu á góðviðrisdegi að skemmta sér og áhorfendum með líkamsfærni sinni. Á sama hátt mátti greina fjársjóði sem faldir eru í mörgum þjóðdansahefðum. Fiðlan er mjög mikið notuð til undirleiks í þjóð- dönsum í gervallri Evrópu. Hröð fótavinna og stuttar og snöggar hreyfingar eru algengar, ekki síst hjá karlpeningnum, auk þess sem það hvernig dansararnir báru sig á sviðinu minnti mjög á færa dans- ara þjóðdansa. Í danshefð margra landa er gert ráð fyrir sólódansi og spuna innan annars formaðri dansa og þá ekki síst fyrir karl- mennina til að sýna færni sína og styrk. Leikurinn og grínið sem einkenndi alla sýninguna, sem fólst ekki síst í því að dansararn- ir tengdu bæði hver við annan og áhorfendur úti í sal, er líka algengt að finna innan þjóðdansaformsins. Um biðbik sýningarinnar fékk fiðluleikarinn tækifæri til að láta ljós sitt skína. Dansararnir drógu sig í hlé út í horn á meðan fiðlu- tónar fylltu salinn. Eftir að hafa leikið eitt lag spilaði hann annað og söng nú með. Samkvæmt leik- skrá er það mikilvægur þáttur í vinnu hópsins að allir fái að njóta sín bæði sem sólóistar og sem hluti af hópnum. Tónlistarmaðurinn var þar greinilega engin undan- tekning. Seinni hluti sýningarinnar hafði yfir sér aðeins öðruvísi blæ. Hreyfingarnar urðu allar meira flæðandi, sem og samskipti og samspil dansaranna, og á köflum var eins og dansararnir væru staddir á snertispunadjammi, án þess þó að snertispuni væri það sem dansinn gengi út á. Ekki var hægt að greina neinn söguþráð né málefni sem kryfja þyrfti til mergjar frekar en í fyrri kafl- anum. Dansararnir buðu ásamt fiðluleikaranum áhorfendum áfram upp á einlægt og flott hreyfiljóðaslamm. Ennþá var stutt í grínið og nokkur atriði hreinlega til þess gerð að fá áhorfendur til að hlæja. Áhorfendur kunnu að meta skemmtilegheitin og þökk- uðu fyrir sig í lok sýningar með kröftugu klappi. Opening Night bar sterk ein- kenni þess að vera samin og sýnd af karlmönnum, bæði hvað varðar hreyfiforðann og form sýningar- innar. Í gegnum tíðina hefur það verið hluti af þróun dansformsins að kynin hafa leitað að leiðum til að tjá sjálfsmynd sína. Karldans- arar hafa þar haft tilhneigingu til að leggja áherslu á kröftugar og snarpar hreyfingar sem krefjast mikils líkamlegs styrks, á meðan konur hafa meira nýtt sér sam- spil liðleika og styrks. Karldans- arar hafa einnig sótt meira í þau dansform sem gefa færi á sam- vinnu og sjálfstæðri vinnu eins og snertispuna, hipphopp og þau félagslegu dansform sem bjóða upp á leik að líkamlegri færni. Sesselja G. Magnúsdóttir Niðurstaða: Í heild var sýning Les SlovaKs skemmtileg upplifun full af krafti og leik. Listrænt séð flokkast hún ekki undir meistaraverk en hún kætti áhorfendur. Seinni sýning Ferðalags fönixins verður á Stóra sviði Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík í kvöld. Í sýn- ingunni fást Eivör Pálsdóttir söngkona, Reijo Kela nútímadansari og María Ell- ingsen leikkona hver á sinn hátt við hina táknrænu goðsögu um Fönixinn. Á vef Listahátíðar segir að sagan um Fönixinn gefi áhorfandanum færi á að spegla eigin lífsreynslu, ferðast með fuglinum inn í eldinn þar sem hann brennur upp, umbreytist og tekur flugið á ný. Listamennirnir sem standa að verkinu eru þeir sömu og gerðu Úlfhamssögu, sem hlaut tvenn Grímuverðlaun 2007. Snorri Freyr Hilmarsson hannar leik- mynd, Filippía Elísdóttir búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson ljósa- meistari skapar myndheim sögunnar. Verkið var frumsýnt í gær. Önnur upprisa Fönixins í kvöld Ferðalag Fönixins verður sýnt í Borgarleikhúsinu á Listahátíð í Reykjavík í kvöld. LISTAHÁTÍÐ FÆR FULLT HÚS STIGA Blaðamaður breska dagblaðsins Daily Telegraph gefur opnun Listahátíðar í Reykjavík fimm stjörnur af fimm mögulegum í dómi sem birtist í gær. Rýnirinn, Paul Gent, hrósar útliti Hörpu og segir að spennan og áhuginn hafi ekki leynt sér í flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónleikum þýska tenórsins Jonas Kaufmann, sem hafi verið magnaður. Gent klykkir út með að bergmál hafi gert vart við sig í salnum en það mætti laga.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.