Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 2

Fréttablaðið - 11.06.2011, Side 2
11. júní 2011 LAUGARDAGUR2 EFNAHAGSMÁL Skuldatryggingar- álagið á ríkissjóð hefur rokið upp eftir skuldabréfaútboð ríkisins í Bandaríkjadölum á fimmtudag. Álagið stóð í tvö hundruð stigum á miðvikudag, stökk upp um 65 stig í fyrradag komst í 277 stig í gær. „Þetta er eðlilegt, enda er þarna komið skuldabréf sem hægt er að stilla upp á móti skuldatrygging- um,“ segir Jón Bjarki Bentsson, sér- fræðingur hjá Greiningu Íslands- banka. Þorbjörn Atli Sveinsson, sérfræð- ingur hjá greiningu Arion banka, er á sömu nótum og kollegi hans. „Þróun á skuldatryggingarálaginu er eins og við var að búast í kjölfar útboðsins, framboð af samningum um skuldatryggingar eykst og verð- myndun verður virkari en áður,“ segir hann og bætir við að útgáfan gefi ágæt fyrirheit hafi ríkið áhuga á frekari fjármögnun erlendis. Eins og fram hefur komið bera skuldabréfin fasta 4,9 prósenta vexti til fimm ára og jafngildir það 3,2 prósenta álagi á vexti á millibanka- markaði. Þeir Jón og Þorbjörn segja báðir kjörin góð. Jón bendir á að til samanburðar bjóðist þeim evruríkj- um sem glími við fjárhagsvanda mun lakari kjör nú um stundir. Hann útilokar ekki að skuldatryggingar- álagið á ríkissjóð hækki frekar, það kunni að færast nær 3,2 prósenta álaginu á skuldabréfin. - jab SPURNING DAGSINS BRONCO ELEGANCE DÖMU OG HERRA, 21 GÍRA HJÓL Bronco Elegance Dömu og Herra, 21 gíra borgarhjól með dempara að framan og dempara í sæti. HÓPKAUP.IS Í DAG í krafti fjöldans hópkaup.is 38.890 kr. GILDIR Í 24 TÍMA 59.900 kr. Verð 35% Afsláttur 21.010 kr. Afsláttur í kr. www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40 Fæst líka fyrir herra GETRAUNIR Tuttugu lottófyrirtæki í tíu löndum skrifuðu undir sam- starfssamning hinn 7. júní síðast- liðinn um að setja á fót nýtt lottó, Euro Jackpot. Ísland er í þeim hópi ásamt Spáni, Ítalíu, Þýska- landi, Noregi, Hollandi, Slóveníu, Finnlandi og Eistlandi. Fyrsti vinningur verður aldrei lægri en tíu milljónir evra, um 1,7 milljarðar króna, en gæti orðið 90 milljónir evra, eða 15 milljarðar króna - fgg / sjá síðu 58 Samningur undirritaður: Unnið að nýju milljarðalottói FÓLK Fjöldinn allur af börnum fylgdi foreldum sínum á Þingvöll við stofnun íslenska lýðveldis- ins 17. júní árið 1944. Nú hefur Þór Jakobsson veðurfræðingur boðað til endur- funda hinna svokölluðu lýð- veldisbarna í tilefni tímamót- anna á lýðveld- isdaginn næst- komandi föstudag. „Það er nokkuð síðan ég fékk þessa hugmynd,“ segir Þór. „Fyrir lýðveldishátíðina 1994 hafði ég samband við aðstandendur hátíð- arinnar og stakk upp á því að við sem vorum viðstödd 1944 mynd- um koma saman. Það varð svo úr að við hittumst stuttlega, en síðan varð ekki meira úr því.“ Þór segir hugmyndina hafa leitað á sig á ný og því hafi hann ákveðið að láta af verða. Þór var sjálfur sjö ára gam- all þegar hann fór til Þingvalla ásamt foreldrum sínum og fjórum systkinum. „Þetta var mögnuð upplifun þó að ég hafi auðvitað verið barn að aldri. Það er mér minnisstætt hversu mikið rigndi, en það var ekkert aðalatriði. Ég minnist helst mannhafsins sem var þar og mín- útuþagnarinnar sem lagði yfir Þingvelli. Þetta er ein af þessum stundum sem fylgir manni alla tíð.“ Þór segir að dagskráin hafi ekki beint höfðað til barna og þau yngstu varla hlustað með athygli á ræðurnar, en þetta hafi þó verið samverustund fyrir fjölskyldur og margir slegið upp tjöldum og gist á Þingvöllum. Dagskráin í ár verður ekki löng og er skipulögð í samráði við Ólaf Örn Haraldsson þjóðgarðsvörð. Hópurinn mun safnast saman klukkan 12 á hádegi við fræðslu- miðstöðina á Hakinu fyrir ofan Almannagjá. Þaðan verður geng- ið niður gjána og klukkan 13 verð- ur stutt ávarp flutt við Lögberg. Eftir það verður hópsöngur og athöfninni skal ljúka fyrir klukk- an 13.45. „Ég lít á þetta sem tækifæri til að hittast og rifja upp þennan sér- staka dag fyrir 67 árum,“ segir Þór. Hann bætir því við að þrátt fyrir að athöfnin sé hugsuð fyrir þá sem voru viðstaddir á sínum tíma, séu fjölmargir sem hafi ekki getað verið á Þingvöllum, en voru sem límdir við útvarpstækin heima. „Þau skynjuðu ekki síður en við mikilvægi þessarar stundar og gaman er ef þau vilja líka koma.“ Þór segir að lokum að hann von- ist til þess að sem flestir mæti, en stefnt er að því að halda þessa end- urfundi á þriggja ára fresti fram- vegis. thorgils@frettabladid.is Boðar endurfundi lýðveldisbarnanna Þór Jakobsson veðurfræðingur skipuleggur endurfundi þeirra sem voru við- staddir stofnun lýðveldisins árið 1944. Mögnuð upplifun í mannhafinu á Þing- völlum. Ráðgert að halda endurfundi lýðveldisbarnanna á þriggja ára fresti. ENDURFUNDIR Boðað hefur verið til endurfunda lýðveldisbarnanna, þeirra sem upp- lifðu lýðveldishátíðina á Þingvölllum árið 1944. Skipulögð dagskrá verður á lýðveldis- daginn 17. júní næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/MMM ÞÓR JAKOBSSON Sigrún, var erfitt að halda aftur af tárunum? „Já, en mér tókst að harka af mér rétt á meðan á tökunum stóð.“ Sjónvarpskonan Sigrún Ósk Kristjánsdótt- ir tók þátt í kveðjuþætti Opruh Winfrey á dögunum. Gestir Opruh tárast oftar en ekki í hjartnæmum viðtölum hjá henni. 277 punkta skuldatryggingarálag merkir að það kostar 2,77 prósent af nafnvirði skuldabréfa til fimm ára að tryggja þau gegn greiðslu- falli. Þegar verst lét í bankahruninu í október 2008 fór álagið í tæp fimmtán prósent. Áhrif álagsins Skuldatryggingarálag ríkissjóðs rauk upp eftir útgáfu skuldabréfa í dollurum: Sérfræðingar segja kjörin góð 350 300 250 200 jú ní ‘1 0 ág ús t ‘ 10 ok tó be r ‘ 10 de se m be r ‘ 10 ja nú ar ‘1 1 m ar s ‘1 1 m aí ‘1 1 9. jú n ‘1 1 Heimild: Keldan.is Þróun á skuldatrygg- ingarálaginu í eitt ár DÓMSMÁL Meintur höfuðpaur mannanna sem smygluðu hingað 58 kílóum af fíkniefninu khat í síðasta mánuði hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm í Héraðs- dómi Reykjavíkur í gær. Hinir þrír sakborningarnir voru dæmd- ir í tveggja mánaða fangelsi. Höfuðpaurinn er breskur og ættaður frá Sómalíu. Hann var sá eini sem ekki játaði sök. Hann hyggst áfrýja dómnum. Hinir þrír, einn sómalískættaður Breti einn frá Englandi og einn frá Írlandi, undu dómunum. - sh Höfuðpaur fær fjóra mánuði: Vægir dómar fyrir khat-smygl VÆGT FÍKNIEFNI Kílóin sextíu voru ætluð á markað vestanhafs. Í Bretlandi og Hollandi er khat löglegt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MENNTUN Rúmlega 9.200 manns sóttu um nám í Háskóla Íslands nú í vor og hafa aldrei fleiri sótt um. Sex þúsund sóttu um í grunn- námi, en það er fjórtán prósent- um fleiri en í fyrra. Þá vilja rúm- lega þrjú þúsund manns komast í framhaldsnám, eða tólf prósent- um fleiri en fyrir ári. Á verkfræði- og náttúruvísinda- sviði skólans fjölgaði umsóknum um sautján prósent. Allar verk- fræðigreinar njóta aukinna vin- sælda, til dæmis sækja 90 prósent fleiri um hugbúnaðarverkfræði nú en í fyrra. Þá eykst aðsókn að tölvunarfræði um 65 prósent, og ferðamálafræði um rúman þriðj- ung. Umsóknir um grunnnám í guð- fræði tvöfölduðust milli ára, en 40 prósentum fleiri vilja stunda nám á hugvísindasviði nú en í fyrra. Mest er aukningin í tungumálum. Viðskiptafræði er sem fyrr fjöl- mennasta grein félagsvísinda- sviðs, fjölgun milli ára nemur tæpum fjórðungi. Þá fjölgaði umsóknum um nám í þjóðfræði um tæp 40 prósent. Alls fjölgaði umsóknum á sviðinu um átta pró- sent. Færri sækjast eftir að stunda nám á heilbrigðisvísindasviði skólans, en þó hafa aldrei fleiri skráð sig í inntökupróf í læknis- fræði og sjúkraþjálfun, eða 380 manns. Fækkunin er í sálfræði og hjúkrunarfræði, en deildirnar eru þær stærstu á sviðinu. Mat- vælafræði er vinsælli en í fyrra, sem og lyfja- og næringarfræði. Umsóknum um nám á mennta- vísindasviði fækkar um tólf pró- sent þó að fleiri vilji komast í íþrótta- og heilsufræði og uppeld- is- og menntunarfræði. - þeb Metfjöldi vill í inntökupróf í læknisfræði og aðsókn í hugbúnaðarverkfræði tvöfaldast milli ára: Aldrei fleiri sótt um nám í Háskóla Íslands HÁSKÓLI ÍSLANDS Tvöfalt fleiri vilja hefja nám í guðfræði nú en í fyrra, og almennt eykst aðsókn að hugvísinda- sviði mikið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Hjón úr Mosfellsbæ sem renndu fyrir lax fyrir eigin landi við Tungufljót í Árnessýslu hafa verið dæmd til að greiða tuttugu þúsund króna sekt hvort fyrir veiðiþjófnað. Hjónin voru við stangveiðarnar í júlí í fyrra þegar lögregla kom að eftir ítrek- aðar ábendingar. Tungufljótsdeild Veiðifélags Árnesinga leigði frá sér veiðirétt- inn til fimm ára vorið 2010. Karl- inn sagði lögreglu að hann væri einn landeigenda á viðkomandi jörð og ætti þar veiðirétt því eig- endurnir hefðu ekki samþykkt að gefa réttinn frá sér. Héraðsdómur Suðurlands segir landeigendurna hins vegar hafa verið í veiðifélag- inu og að þeim hafi borið að virða ráðstafanir þess. - gar Veiddu lax fyrir eigin landi: Sektuð fyrir veiðiþjófnað TUNGUFLJÓT Eigendur einnar jarðar við ána vildu ekki hlíta ákvörðun veiði- félagsins um útleigu. KJARAMÁL Starfsgreinasamband Íslands (SGS) og Flóafélögin hafa slitið samningaviðræðum við samninganefnd sveitarfélaga. Í tilkynningu frá SGS segir að deilt sé um kjör fjölmennasta hóps SGS-fólks hjá sveitarfélög- unum, starfsfólks leik- og grunn- skóla. Sá hópur muni aðeins fá rúmlega 20 þúsund króna hækk- un fram til 31. janúar 2014 en launafólk á almennum markaði fái 34 þúsund á sama tíma. Samninganefndir SGS og Fló- ans segjast hafna þessari fram- setningu og kalla eftir því að sveitarfélögin fylgi fordæmi Reykjavíkurborgar. - þj Samningar við sveitarfélög: SGS hefur slitið kjaraviðræðum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.