Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 80
11. júní 2011 LAUGARDAGUR44 HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 11. júní 2011 ➜ Tónleikar 15.00 Kvintett Reynis Sigurðssonar flytur dagskrá helgaða djassistanum George Shearing utandyra á Jómfrúar- torginu og er aðgangur ókeypis. 19.00 Hljómsveitirnar Cliff Clavin, Myrká, Chino, Gunslinger, Made my mud og Deaf Happiness spila á rokk- tónleikunum Vegareiði í Bragganum, Egilsstöðum. Aðgangur ókeypis. 21.00 Brasilísk tónlistarveisla með Jussanam og Agnari Má Magnússyni verður á Café Haiti í kvöld. Aðgangs- eyrir er kr. 1000. 21.00 Blúsfagnaður verður á Gallery Bar 46 í kvöld þar sem hljómsveitirnar Brimlar, Bergþór Smári og Mood og Lame Dudes spila. Aðgangseyrir er kr. 1.000, kaldur á krana innifalinn. 22.00 Hljómsveitin Miri mun spila á tónlistarhátíð í Kanada og heldur upp- hitunartónleika á Faktorý í kvöld ásamt hljómsveitunum Bob og Vigri. Aðgangs- eyrir er kr. 1.000. 22.00 Hljómsveitin Creedence Trav- ellin Band heldur tónleika á Græna hattinum. Aðgangseyrir er kr. 2.000. 22.00 Tónleikaveisla verður á Sódómu í kvöld með hljómsveitunum Green Lights, Samaris og Útidúr. 18 ára ald- urstakmark. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Tónlistarhátíð 16.00 Einleiks- tónleikar í Reykholtskirkju með Ástríði Öldu Sigurðardóttur píanóleikara. Tón- leikarnir eru hluti af árlegu tónlist- arhátíðinni IsNord. Miðaverð á hátíð- ina er kr. 2000. ➜ Heimildamyndir 10.00 Skjaldborg, hátíð íslenskra heimildarmynda, er haldin á Patreks- firði um helgina. Armband á hátíðina kostar kr. 3.000. Frekari upplýsingar á skjaldborg.is. ➜ Sýningarspjall 14.00 Einar Garibaldi ræðir við gesti um sýninguna Myndin af Þingvöllum í Listasafni Árnesinga í Hveragerði í dag. Aðgangur ókeypis. ➜ Kvikmyndir 20.00 Pólskir kvikmyndadagar eru í Bíó Paradís þessa helgina. Sýndar verða fjórar kvikmyndir frá sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar, gull- aldarskeiði pólskra kvikmynda og er aðgangur ókeypis. ➜ Bæjarhátíðir 10.00 Fjölskylduhátíðin Kótilettan er haldin um helgina á Selfossi. Þekktir tónlistarmenn, tívólí og ýmis skemmti- atriði. Helgarpassi á böll og tónleika kr. 5.900. Nánari upplýsingar á kotilettan.is ➜ Tónlist 20.00 Margrét Lóa Jónsdóttir skáld- kona og Páll B. Szabo tónlistarmaður flytja frumsamið tónverk Páls við ljóð Margrétar úr bókinni Tímasetningar í verksmiðjunni á Hjalteyri. ➜ Leiðsögn 14.00 Gönguferð um hinn forna kaupstað Gásir fer fram undir leiðsögn Herdísar S. Gunnlaugsdóttur. Gangan hefst á bílastæði Gásakaupstaðar og þátttökugjald er kr. 500. ➜ Myndlist 10.00 Listmálarinn Steinþór Marinó Gunnarsson er með málverkasýningu á Café Mílanó. Síðustu dagar sýningar- innar. 14.00 Listamaðurinn Magnús Helga- son tekur á móti gestum og gangandi milli kl. 14-16 og leiðir um sýningu sína Guð birtist mér sem nú stendur yfir í Gallerí ágúst. ➜ Markaðir 12.00 Pop-up markaður verður haldinn á Grettisgötu 3 frá kl. 12-18. Hönnuðir sem selja eru Mokomo, Heli- copter, Beroma, Royal Extreme, Begga design og Eight of Hearts. 13.00 Fatamarkaður verður haldinn á skemmtistaðnum Faktorý. Sunnudagur 12. júní 2011 ➜ Tónleikar 23.00 Þungarokkssveitirnar Exizt, Darknote og Thingtak spila á Sódóma í kvöld. Aðgangseyrir er kr. 1.000. ➜ Tónlistarhátíð 16.00 Sönghópurinn Voces Thules flytur miðaldatónlist í Stefánshelli (til- heyrir Surtshellakerfinu). Hlýr fatnaður æskilegur. Tónleikarnir eru hluti af tón- listarhátíðinni IsNord og er miðaverð á hátíðina kr. 2.000. ➜ Sýningarspjall 15.00 Pétur H. Ármannsson arkitekt verður með sýningarstjóraspjall um sýninguna Hugvit í Hafnarborg. Ræðir hann um sýninguna og hugmyndir Ein- ars Þorsteins Ásgeirssonar hönnuðar. Einnig verður vinnustofa opin fyrir fjöl- skylduna kl. 14. Aðgangur ókeypis. Mánudagur 13. júní 2011 ➜ Tónleikar 20.00 Árlegir styrktartónleikar Lauf, Félags flogaveikra, verða í Fríkirkjunni í kvöld. Flutt verða íslensk og erlend dýralög. Allur ágóði rennur til Laufs. 20.00 Óperukórinn í Reykjavík og Bærum sinfóníuhljómsveitin í Noregi munu fylla Eldborg, sal Hörpu, af norskri tónlist í kvöld. Miðaverð er kr. 2.900. 21.00 Hljómsveitin Dægurflugurnar spilar íslensk dægurlög á Café Rósen- berg í kvöld. Aðgangseyrir er kr. 1.500. Þriðjudagur 14. júní 2011 ➜ Opin æfing 20.00 Píanóleikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson og bassa- söngvarinn Kristinn Sigmundsson munu flytja einn áhrifa- mesta söngljóðaflokk allra tíma, Vetrarferð- ina, í Eldborgarsal Hörpu næstkomandi fimmtudag. Tónleikagestum býðst að koma á opna æfingu í kvöld þar sem þeir veita innsýn inn í vinnu sína og dýpka skilning áhorfenda á verkinu. Tryggvagötu 19 | 101 Reykjavík Sími 562 5030 | www.kolaportid.is Opið laugardag og mánudag frá kl. 11-17. Lokað hvítasunnudag. Opið síðan 1989 KOLAPORTIÐ TRÖLLIN VITA SÍNU VITI Trolls – Philosophy and Wisdom geymir stórglæsilegar myndir af tröllum í íslenskri náttúru eftir Brian Pilkington og sígilda tröllaspeki. Tilvalin fyrir erlenda vini á öllum aldri. Óperukórinn í Reykjavík og Bærum sinfóníuhljómsveit frá Noregi halda tónleika í salnum Eldborg í Hörpu mánudagskvöld- ið 13. júní klukkan 20. Stærsta verk tónleikanna er kór- verkið Völuspá eftir David Monrad Johansen, samið fyrir blandaðan kór, þrjá einsöngvara og hljóm- sveit. Einnig eru á efnisskránni þekkt verk eftir norska tónskáldið Edvard Grieg, meðal annarra tvö af þekktustu sönglögum hans, Jeg elsker dig og Söngur Sólveigar úr Pétri Gauti. Þá flytja Óperukórinn og Jóhann Smári Sævarsson bassi kórverkið Landsýn; óð til Ólafs Tryggvasonar Noregskonungs, sem flutt er í íslenskri þýðingu Sigurðar Júlíusar Jóhannessonar læknis í Kanada, auk fleiri verka. Einsöngvarar eru Þóra Einars- dóttir sópran, Sesselja Kristjáns- dóttir messósópran og Jóhann Smári Sævarsson bassi. Stjórnandi er Garðar Cortes. Völuspá í Hörpu TÓNLEIKAR Garðar Cortes stjórnar tónleikum Óperukórsins í Reykjavík og Bærum sinfóníuhljómsveitarinnar í Hörpu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.