Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 94
11. júní 2011 LAUGARDAGUR58
Tuttugu lottófyrirtæki í tíu Evr-
ópulöndum skrifuðu hinn 7. júní
síðastliðinn undir samstarfssamn-
ing um að byrja með nýtt lottó
undir nafninu Euro Jackpot. Vinn-
ingsupphæðin í nýja lottóinu yrði
aldrei lægri en tíu milljónir evra,
eða 1,7 milljarðar íslenskra króna.
Hann gæti þó orðið allt að níutíu
milljónum evra, eða tæpir fimm-
tán milljarðar íslenskra króna.
Löndin tíu eru Þýskaland, Holland,
Danmörk, Ísland, Noregur, Sló-
venía, Finnland, Eistland, Ítalía og
Spánn. Samtals búa um 200 millj-
ónir manna í þessum löndum.
„Það er ekkert öruggt í hendi,
þetta er gríðarlega flókið tækni-
lega en við gerum okkur vonir um
að línur skýrist hinn 23. nóvem-
ber. Þetta er frábær hugmynd en
hún þarf líka að fá leyfi hjá ríkis-
stjórnum allra þeirra landa sem
eiga aðild að þessu,“ segir Stefán
Konráðsson, framkvæmdastjóri
Íslenskrar getspár.
Samkvæmt frétt sem birtist
í ríkisútvarpi Eistlands er gert
ráð fyrir því að fyrsti drátturinn
í lottóinu verði strax á næsta ári
en Stefán vill ekki staðfesta það;
enn eigi eftir að hnýta ansi marga
lausa hnúta. „Við höfum unnið í
þessu í sex ár, höfum kannað hvort
þetta væri raunhæfur möguleiki.
Samningaviðræðurnar hafa síðan
staðið yfir í þrjú ár,“ segir Stef-
án, sem kveðst þó vera spenntur
fyrir þessu, ef af verður. Og það er
kannski ekkert skrýtið að Stefán
skuli setja varnagla við málið, því
fyrir þremur árum greindi Frétta-
blaðið frá því að nýtt milljarðalottó
væri væntanlegt. Þá átti lottóið að
hefjast strax síðar sama ár.
Stærsti lottópotturinn sem
Íslendingar geta unnið í dag er
Víkingalottóið, sem dregið er í á
miðvikudögum. Einfaldur pott-
ur í því er yfirleitt um hundrað
milljónir íslenskra króna. Vin-
sælasta lottóið er hins vegar hið
sígilda Lottó á laugardögum, þar
sem dregið er í beinni útsendingu.
Þar er fyrsti vinningur í kringum
fimm milljónir íslenskra.
freyrgigja@frettabladid.is
PERSÓNAN
Hrefna Hagalín og Kristín Bára
Haraldsdóttir reka saman fram-
leiðslufyrirtækið Krúnk, sem sá
um framleiðslu tónlistarmynd-
bands ítölsku pönksveitarinnar The
Minnies.
Hrefna og Kristín Bára eru stadd-
ar í Berlín um þessar mundir, þar
sem upptökur á myndbandinu fóru
fram, en Einar Snorri leikstýrir því.
Söguþráðurinn er eins konar ástar-
saga og fór leikarinn Tómas Lem-
arquis með hlutverk í myndband-
inu. Hljómsveitin The Minnies var
stofnuð árið 1994 og hefur í gegnum
árin eignast tryggan aðdáendahóp
víða um heim. Hrefna og Kristín
Bára framleiddu áður stuttmynd-
ina Knowledgy og auglýsingu fyrir
fatahönnuðinn Munda, svo fátt eitt
sé nefnt.
Að sögn Hrefnu gengu tökur vel
fyrir sig og nú er verið að ganga frá
allri eftirvinnslu. „Þetta voru rosa-
lega fínar tökur og vinalegur töku-
hópur og þetta gekk allt eins og í
sögu,“ segir hún. Þær stöllur hafa
verið með annan fótinn í Berlín frá
því í febrúar og unnið að ýmsum
verkefnum með Einari Snorra. „Við
erum ekki fluttar hingað, við flutt-
um til dæmis ekki búslóðina með
okkur út, heldur langaði okkur að
prófa að vinna úti og fannst Berl-
ín henta vel því héðan er stutt að
fara til annarra borga í Evrópu. Við
ætlum bara að sjá hvernig hlutirnir
þróast og ef vel gengur væri gaman
að vera hér áfram. Annars sjáum
við bara hvað setur,“ segir Hrefna
að lokum. - sm
Gera myndband fyr-
ir ítalska pönksveit
FRAMLEIÐA MYNDBAND Hrefna Hagalín
og Kristín Bára Haraldsdóttir framleiddu
tónlistarmyndband fyrir ítölsku pönk-
sveitina The Minnies. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Steinþór Helgi
Arnsteinsson
Aldur: 27 ára
Starf: Umboðs -
maður,
tónleikahaldari,
verkefnastjóri
hjá Senu, Gettu
betur-þjálfari og
ýmislegt tilfall-
andi.
Hjúskaparstaða: Einhleypur.
Fjölskylda: Alinn upp af einstæðri
móður og rek föðurlegg til Noregs.
Búseta: Bý í 101.
Stjörnumerki: Hrútur.
Steinþór Helgi stendur nú á eigin fótum
eftir að hafa flutt út frá móður sinni.
„Ég er mjög sáttur við útkomuna,“
segir Gestur Valur Svansson, leik-
stjóri gamanþáttanna Tríó sem
voru frumsýndir á RÚV á fimmtu-
dagskvöld.
Tríó virðist ætla að vekja mis-
jöfn viðbrögð hjá almenningi. Á
fréttablogginu Fréttir af Facebook
á Eyjunni voru tekin saman nei-
kvæð ummæli úr ýmsum áttum
í kjölfar frumsýningar þáttar-
ins. Kvikmyndagerðarmaður-
inn Gagga Jónsdóttir bað RÚV
til dæmis um að endurgreiða sér
afnotagjöldin með millifærslu. Á
RÚV hafði hins vegar ein kvörtun
borist samkvæmt Sigrúnu Stef-
ánsdóttur dagskrárstjóra. „Það
hringdi ein kona. Hún var að
kvarta undan bíómyndum almennt
og Tríói líka,“ segir hún.
Ertu ánægð með þáttinn?
„Ja, svona efni er ekki akkúrat
uppáhaldsefnið mitt. Ég get ekki
miðað við að ég sé týpískur áhorf-
andi.“
En kom til greina að taka þátt-
inn af dagskrá vegna harðra við-
bragða á netinu?
„Nei, ég held ég láti ekki þessa
300 sem blogga eins og vitleysing-
ar á kvöldin ráða hvað er í sjón-
varpinu. Ég læt ekki Facebook
stjórna dagskránni hérna,“ segir
Sigrún.
Leikstjórinn Gestur Valur fékk
frábær viðbrögð við fyrsta þætti
Tríós. „Ég er virkilega ánægður
með það — ég held að það hafi
verið 114 SMS í símanum í morg-
un,“ segir hann.
Gestur segist ekki hafa orðið
var við þau slæmu viðbrögð sem
Eyjan bendir á en hvetur fólk til
að halda áfram að fylgjast með.
„Þetta er bara byrjunin. Það er
alltaf tæknilega erfitt að gera
fyrsta þáttinn, maður þarf að
kynna inn persónurnar og vera
grípandi svo fólk vilji sjá meira,“
segir hann. „Mér finnst það hafa
tekist og er nokkuð sáttur. Þætt-
irnir verða betri og betri.“
- afb
Bloggarar ráða ekki hvað er í sjónvarpinu
MISJÖFN VIÐBRÖGÐ Gestur Valur Svans-
son, leikstjóri Tríós, hefur fengið góð við-
brögð við þáttunum. Á Facebook voru
hins vegar margir ekki nógu ánægðir.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TÍMAMÓTATÓNLEIKAR
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR GUSGUS VERÐA Á
LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 18. júní.
NÝJA PLATAN ARABIAN HORSE HEFUR
FENGIÐ TOPPDÓMA Á ÍSLANDI OG
ERLENDIS OG ÞETTA ER ÞVÍ EINN AF
TÓNLISTARVIÐBURÐUM ÁRSINS.
STÓRVIÐBURÐUR Í ÍSLENSKRI TÓNLIST
Í BEINNI ÚTSENDINGU Á LÍFINU Á VÍSI.
Í BEINNI Á LÍFINU Á VÍSI
„Ég man ekki eftir að hafa rek-
ist áður á að einhver sé að taka
myndirnar mínar í leyfisleysi og
setja á boli,“ segir listamaðurinn
Hugleikur Dagsson.
Vefsíðan Mysoti.com býður
notendum sínum upp á að prenta
myndir á boli og selja í vefverslun
sinni. Óprúttinn notandi vefsíð-
unnar var með bol til sölu merkt-
an mynd Hugleiks Dagssonar úr
bókinni Popular Hits og rukkaði
tæpa 22 dali fyrir stykkið — um
2.500 íslenskar krónur.
„Það fer aldrei í taugarnar á
mér ef einhver einn og einn er að
gera þetta fyrir sig,“ segir Hug-
leikur. „Það sem er leiðinlegt við
þetta er að við vorum að fara að
prenta akkúrat þessa mynd á bol,
þannig að það er pirrandi að ein-
hver úti í útlöndum hafi verið
fyrri til. En það er fyrir öllu að
þessi muni ekki græða meira á
bolnum sínum en við græðum á
okkar.“
Fréttablaðið hafði samband við
Steve Hunt, eiganda Mysoti.com,
sem var miður sín yfir málinu og
hefur tekið bolinn úr sölu. „Ég
tek höfundarrétt mjög alvarlega
og hyggst taka alla boli þessa til-
tekna notanda úr sölu, enda hefur
hann notað mikið af höfundar-
réttarvörðum myndum frá fólki
og fyrirtækjum.“
Hunt sagði enn fremur að ef
notandinn sem stal mynd Hug-
leiks hefði hagnast á þeim til-
tekna bol yrðu gerðar ráðstafanir
til að borga Hugleiki fyrir ómak-
ið. Hann tók þó fram að svo virt-
ist sem enginn bolur með mynd-
inni hefði selst. - afb
Hætt að selja stolinn Hugleiksbol
PIRRANDI Óprúttinn notandi vefsíðunn-
ar Mysoti.com tók mynd Hugleiks Dags-
sonar ófrjálsri hendi og hugðist selja
á bol í vefverslun síðunnar. Hugleikur
segir það pirrandi þar sem hann ætlar
að selja bol með sömu mynd, sem sést
hér fyrir ofan.
STEFÁN KONRÁÐSSON: ÞETTA ER FRÁBÆR HUGMYND
Íslendingar með í nýju
evrópsku milljarðalottói
SANDUR AF SEÐLUM
Ef Euro Jackpot verður að veruleika eiga Íslendingar möguleika á að vinna
allt frá 1,7 milljörðum íslenskra króna í hverri viku upp í tæpa fimmtán
milljarða. Alls eiga tíu lönd aðild að þessum risapotti og því gætu um 200
milljón spilarar verið að keppa um hinar háu fjárhæðir. Stefán Konráðsson
segir nýja lottóið frábæra hugmynd.
Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi
eða fengið sendan daglegan tölvupóst
með blaði dagsins. Nánari
upplýsingar á: visir.is/dreifing
FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU