Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.06.2011, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 11.06.2011, Qupperneq 45
LAUGARDAGUR 11. júní 2011 7 www.or.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 5 53 50 6 /1 1 Við leitum að leiðtogum Orkuveita Reykjavíkur leitar að kraftmiklum einstaklingum til að takast á við ögrandi verkefni í rekstri fyrirtækisins. Með skipulags- og áherslubreytingum er nú þörf fyrir leiðtoga í störf framkvæmdastjóra nýs þróunarsviðs og við leitum að framúrskarandi fagfólki í störf umhverfisstjóra og öryggisstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Öll störfin krefjast sjálfstæðis og ögunar í vinnubrögðum, stjórnunarhæfni, lipurðar í mannlegum samskiptum og frumkvæðis við úrlausn viðfangsefna. Í ljósi jafnréttisáætlunar OR eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um þessi störf. Nánari upplýsingar um starfið gefur Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, í síma 516 7707 eða bjarnibj@or.is. Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Hilmar Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is) og Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga: www.capacent.is. Umsóknum skal skilað fyrir 20. júní 2011. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomanda í starfið. Orkuveita Reykjavíkur er veitufyrirtæki og þjónustufyrirtæki í eigu almennings sem sér um 200.000 notendum fyrir húshitun, drykkjarvatni, rafmagni og fráveitu. Í Orkuveitunni vinnur traustur hópur starfsmanna sem hefur lagt hart að sér í ólgusjó síðustu ára. Grunngildi OR eru virðing, hagsýni, heiðarleiki, eldmóður, traust og sveigjanleiki. www.or.is Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Þróunarsvið er eitt af fjórum meginsviðum Orkuveitu Reykjavíkur. Undir sviðið heyra auðlindarannsóknir, kerfisrannsóknir og hermun, forðafræði og auðlindavöktun. Sviðið ber ábyrgð á langtímaþróun á umfangi og hagkvæmni veitukerfa í samræmi við framtíðarsýn Orkuveitunnar og notkunarspár. Sviðið annast einnig undirbúning nýframkvæmda, mat á umhverfisáhrifum, hönnun og hönnunarstjórn og öflun leyfa til framkvæmda vegna veitukerfa. Umsjón með nýsköpun og þróun innan Orkuveitunnar er á ábyrgð sviðsins. Framkvæmdastjóri þróunarsviðs situr í framkvæmdastjórn Orkuveitunnar. Menntunar- og hæfnikröfur: • Háskólamenntun á framhaldsstigi er skilyrði. • Háskólamenntun á sviði reksturs er æskileg. • Reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum. • Reynsla af áætlana- og samningagerð. • Reynsla af verkefnastjórnun, nýsköpun og þróun. Öryggisstjóri Öryggisstjóri hefur forystu um eflingu öryggis- og heilbrigðisvitundar innan Orkuveitu Reykjavíkur. Hann ber ábyrgð á innleiðingu „núll-slysa stefnu“ í fyrirtækinu, fræðslu stjórnenda og starfsfólks, gerð áhættumats verkefna og ferla auk skýrslugerðar og eftirfylgni. Öryggisstjóri heyrir undir forstjóra og vinnur náið með gæðastjóra að umbótum. Menntunar- og hæfnikröfur • Víðtæk þekking og reynsla af öryggis- og vinnuumhverfismálum. • Menntun sem nýtist í starfi. • Leiðtogahæfni. • Færni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti. Umhverfisstjóri Umhverfisstjóri hefur forystu um að metnaðarfullri umhverfisstefnu Orkuveitu Reykjavíkur sé fylgt í hvívetna. Hann hefur umsjón með þróun umhverfismála í störfum fyrirtækisins og leiðir umbótaverkefni og fræðslu á því sviði. Umhverfisstjóri heyrir undir forstjóra og vinnur náið með gæðastjóra. Umhverfisstjóri hefur eftirlit með vöktun mikilvægra umhverfisþátta á borð við auðlindanýtingu og tilhögun framkvæmda og sér um gerð árlegrar umhverfisskýrslu. Umhverfisstjóri er talsmaður umhverfismála inn á við og út á við. Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Framhaldsmenntun í umhverfis- eða náttúruvísindum er æskileg. • Þekking og reynsla af umhverfisstjórnun er æskileg. • Færni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Héraðsdómur Reykjavíkur óskar eftir að ráða einn dómritara og tvo aðstoðarmenn dómara Ráðið verður í störfin frá og með 1. september nk. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar um starfsemi héraðsdóm- stólanna má finna á www.domstolar.is Upplýsingar veita: Rannveig J. Haraldsdóttir rannveig@hagvangur.is Inga Steinunn Arnardóttir inga@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 26. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á www. hagvangur.is Dómritari Leitað er að duglegum og samviskusömum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, er sveigjanlegur og á auðvelt með mannleg samskipti. Starfið felur í sér undirbúning þinghalda í þingbók, bókun í dómsal, skráningu og frágang málsskjala ásamt almennum skrifstofustörfum. • Gerð er krafa um stúdentspróf en háskólapróf er æskilegt. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur. • Dómritari þarf að vera nákvæmur í vinnubrögðum og sýna færni í mannlegum samskiptum. • Dómritari þarf jafnframt að hafa gott vald á íslenskri tungu og búa yfir góðri tölvukunnáttu (ritvinnslu). Laun greiðast til samræmis við ákvæði stofnana- samnings SFR og dómstólaráðs. Aðstoðarmaður dómara Lausar eru tvær stöður löglærðra aðstoðarmanna dómara. Um er að ræða starf á grundvelli 17.gr. laga nr. 15/1998 um dómstóla. Til aðstoðar dómurum eru ráðnir lögfræðingar sem fullnægja skilyrðum 2.-6. tölul. 2.m.gr. sömu laga. • Aðstoðarmaður dómara þarf að búa yfir skipulagshæfileikum og vera sjálfstæður í starfi, ásamt því að vera sveigjanlegur og sýna færni í mannlegum samskiptum. • Aðstoðarmaður dómara þarf jafnframt að hafa gott vald á íslenskri tungu og búa yfir góðri tölvukunnáttu. Laun greiðast til samræmis við ákvæði stofnana- samnings BHM og dómstólaráðs.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.