Fréttablaðið - 11.06.2011, Síða 45
LAUGARDAGUR 11. júní 2011 7
www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
5
53
50
6
/1
1
Við leitum að leiðtogum
Orkuveita Reykjavíkur leitar að kraftmiklum einstaklingum til að takast á við ögrandi verkefni í rekstri fyrirtækisins.
Með skipulags- og áherslubreytingum er nú þörf fyrir leiðtoga í störf framkvæmdastjóra nýs þróunarsviðs og við
leitum að framúrskarandi fagfólki í störf umhverfisstjóra og öryggisstjóra Orkuveitu Reykjavíkur. Öll störfin krefjast
sjálfstæðis og ögunar í vinnubrögðum, stjórnunarhæfni, lipurðar í mannlegum samskiptum og frumkvæðis við úrlausn
viðfangsefna. Í ljósi jafnréttisáætlunar OR eru konur sérstaklega hvattar til að sækja um þessi störf.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, í síma 516 7707 eða bjarnibj@or.is. Umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Hilmar Hjaltason (hilmar.hjaltason@capacent.is) og
Jóna Björk Sigurjónsdóttir (jona.sigurjonsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga: www.capacent.is.
Umsóknum skal skilað fyrir 20. júní 2011. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilsskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomanda í starfið.
Orkuveita Reykjavíkur er veitufyrirtæki og þjónustufyrirtæki í eigu almennings sem sér um 200.000 notendum fyrir húshitun, drykkjarvatni, rafmagni og fráveitu. Í Orkuveitunni vinnur traustur hópur starfsmanna
sem hefur lagt hart að sér í ólgusjó síðustu ára.
Grunngildi OR eru virðing, hagsýni, heiðarleiki, eldmóður, traust og sveigjanleiki. www.or.is
Framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Þróunarsvið er eitt af fjórum meginsviðum Orkuveitu
Reykjavíkur. Undir sviðið heyra auðlindarannsóknir,
kerfisrannsóknir og hermun, forðafræði og
auðlindavöktun. Sviðið ber ábyrgð á langtímaþróun á
umfangi og hagkvæmni veitukerfa í samræmi við
framtíðarsýn Orkuveitunnar og notkunarspár. Sviðið
annast einnig undirbúning nýframkvæmda, mat á
umhverfisáhrifum, hönnun og hönnunarstjórn og öflun
leyfa til framkvæmda vegna veitukerfa. Umsjón með
nýsköpun og þróun innan Orkuveitunnar er á ábyrgð
sviðsins. Framkvæmdastjóri þróunarsviðs situr í
framkvæmdastjórn Orkuveitunnar.
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á framhaldsstigi er skilyrði.
• Háskólamenntun á sviði reksturs er æskileg.
• Reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
• Reynsla af áætlana- og samningagerð.
• Reynsla af verkefnastjórnun, nýsköpun og þróun.
Öryggisstjóri
Öryggisstjóri hefur forystu um eflingu öryggis- og
heilbrigðisvitundar innan Orkuveitu Reykjavíkur. Hann
ber ábyrgð á innleiðingu „núll-slysa stefnu“ í
fyrirtækinu, fræðslu stjórnenda og starfsfólks, gerð
áhættumats verkefna og ferla auk skýrslugerðar og
eftirfylgni. Öryggisstjóri heyrir undir forstjóra og vinnur
náið með gæðastjóra að umbótum.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Víðtæk þekking og reynsla af öryggis-
og vinnuumhverfismálum.
• Menntun sem nýtist í starfi.
• Leiðtogahæfni.
• Færni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
Umhverfisstjóri
Umhverfisstjóri hefur forystu um að metnaðarfullri
umhverfisstefnu Orkuveitu Reykjavíkur sé fylgt í
hvívetna. Hann hefur umsjón með þróun umhverfismála
í störfum fyrirtækisins og leiðir umbótaverkefni og
fræðslu á því sviði. Umhverfisstjóri heyrir undir forstjóra
og vinnur náið með gæðastjóra. Umhverfisstjóri hefur
eftirlit með vöktun mikilvægra umhverfisþátta á borð
við auðlindanýtingu og tilhögun framkvæmda og sér
um gerð árlegrar umhverfisskýrslu. Umhverfisstjóri er
talsmaður umhverfismála inn á við og út á við.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Framhaldsmenntun í umhverfis- eða
náttúruvísindum er æskileg.
• Þekking og reynsla af umhverfisstjórnun er æskileg.
• Færni í miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Héraðsdómur Reykjavíkur óskar eftir að ráða
einn dómritara og tvo aðstoðarmenn dómara
Ráðið verður í störfin frá og með
1. september nk. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin. Nánari
upplýsingar um starfsemi héraðsdóm-
stólanna má finna á www.domstolar.is
Upplýsingar veita:
Rannveig J. Haraldsdóttir
rannveig@hagvangur.is
Inga Steinunn Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 26. júní nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
www. hagvangur.is
Dómritari
Leitað er að duglegum og samviskusömum einstaklingi
sem getur unnið sjálfstætt, er sveigjanlegur og á auðvelt
með mannleg samskipti.
Starfið felur í sér undirbúning þinghalda í þingbók,
bókun í dómsal, skráningu og frágang málsskjala ásamt
almennum skrifstofustörfum.
• Gerð er krafa um stúdentspróf en háskólapróf er
æskilegt. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
• Dómritari þarf að vera nákvæmur í vinnubrögðum og
sýna færni í mannlegum samskiptum.
• Dómritari þarf jafnframt að hafa gott vald á íslenskri
tungu og búa yfir góðri tölvukunnáttu (ritvinnslu).
Laun greiðast til samræmis við ákvæði stofnana-
samnings SFR og dómstólaráðs.
Aðstoðarmaður dómara
Lausar eru tvær stöður löglærðra aðstoðarmanna dómara.
Um er að ræða starf á grundvelli 17.gr. laga nr.
15/1998 um dómstóla. Til aðstoðar dómurum eru ráðnir
lögfræðingar sem fullnægja skilyrðum 2.-6. tölul. 2.m.gr.
sömu laga.
• Aðstoðarmaður dómara þarf að búa yfir
skipulagshæfileikum og vera sjálfstæður í starfi,
ásamt því að vera sveigjanlegur og sýna færni í
mannlegum samskiptum.
• Aðstoðarmaður dómara þarf jafnframt að hafa gott
vald á íslenskri tungu og búa yfir góðri tölvukunnáttu.
Laun greiðast til samræmis við ákvæði stofnana-
samnings BHM og dómstólaráðs.