Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.06.2011, Blaðsíða 4
11. júní 2011 LAUGARDAGUR4 GENGIÐ 10.06.2011 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 220,6298 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,43 114,97 186,28 187,18 165,35 166,27 22,168 22,298 21,048 21,172 18,201 18,307 1,4283 1,4367 183,35 184,45 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 24° 19° 22° 17° 20° 17° 19° 19° 22° 16° 24° 24° 33° 18° 18° 15° 21°Á MORGUN 3-8 m/s, hvassara allra austast. MÁNUDAGUR 5-13 m/s NV-til, annars 3-8. 10 12 12 11 11 5 14 9 10 10 10 4 7 6 6 6 4 4 5 3 7 10 7 8 6 15 15 7 8 6 13 10 NÆSTUM ÞVÍ BONGÓBLÍÐA Guði sé lof fyrir breytingar í veðr- inu! Við megum vel við una um helgina í mildu og sólríku veðri. Bongóblíða er kannski ekki rétta orðið en þetta er þó nokkuð langt skref í rétta átt. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður HEILBRIGÐISMÁL Fæðubótarefni eru oft illa merk og innra eftirliti þeirra fyrirtækja sem þau selja er oft ábótavant. Þetta var niðurstaða könnunar sem Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit sveitarfélag- anna stóðu að síðastliðinn vetur. Aðeins tvær vörutegundir af þeim 53 sem athugaðar voru í þessu verkefni uppfylla öll ákvæði helstu laga og reglugerða sem um þau gilda. Niðurstaða sams konar verkefnis árið 2006 var á svip- uðum nótum og því ljóst að ástand fæðubótarefna á markaði hefur lítið skánað síðan 2006. - jss Tvær af 53 stóðust skoðun: Fæðubótarefni eru illa merkt SAMGÖNGUR „Menn geta ekki lagt beint fyrir framan inngang bygg- inga. Það ættu þeir að vita sem hafa ekið bifreið,“ segir Hösk- uldur Ásgeirsson, framkvæmda- stjóri tónlistar- og ráðstefnuhúss- ins Hörpu. Brögð hafa verið að því að fólk leggi bílum fyrir framan Hörpu og hunsi merkingar sem banna slíkt. Höskuldur segir unnið að því að bæta úr til að tryggja að bannið fari ekki framhjá neinum. Þá verður eftirlit aukið og þeir sektaðir sem leggja ólöglega. - jab Merkingar bættar við Hörpu: Ekki má leggja við innganginn BANNAÐ AÐ LEGGJA Brögð eru að því að bann við því að lagt sé við inngang Hörpu hafi ekki verið virt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA KJARAMÁL Flugmenn Icelandair hafa hafið atkvæðagreiðslu um að boða til verkfallsaðgerða. Í tilkynningu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna segir að viðræður hafi verið árangurs- lausar. Verði aðgerðirnar sam- þykktar mun yfirvinnubann hefj- ast 24. júní. Icelandair á einnig í kjaradeilum við flugvirkja, sem lögðu niður vinnu hluta úr degi síðustu þrjá daga. Fundað var á ný í gær, en ef þær viðræður skila ekki árangri munu flugvirkjar aftur grípa til aðgerða 20. júní. - þj Kjaradeilur Icelandair: Flugmenn kjósa um aðgerðir KJARADEILUR Icelandair stendur í kjaradeilum við flugvirkja og flugstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA FJÁRMÁL Svört atvinna og skipu- lögð glæpastarfsemi getur þrifist innan félaga á Íslandi án sýnilegra vandkvæða vegna sveigjanleika í félagafrelsi, að mati Aðalsteins Hákonarsonar, sviðsstjóra eftir- litssviðs Ríkisskattstjóra. Hann skrifar grein í nýjasta tölublað fréttablaðs RSK, Tíund. Aðalsteinn segir að þeir sem vinni við skatteftirlit sjái þess merki að aukið frelsi á sumum sviðum atvinnulífsins, minna eftir lit og undanþáguákvæði í lögum leiði af sér vaxandi til- hneigingu til skattasniðgöngu. Það séu ekki smámunir, heldur skipulagður ásetningur sem oftar en ekki sé stór í sniðum. Jafnvel sé um að ræða skipulagða glæpa- starfsemi. Undanþágur og aukið frelsi hafi veitt lögbrjótum meira skjól og fleiri dæmi séu nú en áður um að einstaklingar hafi búið til eigin reglur og aðferðir við skatt- skil í þessu skjóli. Nánast ótakmarkað frelsi til að stofna félög hefur orðið til þess að menn eigi fjölmörg slík og ef einhverju þeirra gengur illa er það skilið eftir í reiðuleysi, eignir þess seldar til annars félags eða teknar í notkun af öðru félagi. Dæmi séu um félög sem hefji við- skipti og semji aldrei ársreikning eða skili skattframtali. „Þegar stjórnvald fer að amast við slík- um félögum þá eru þau yfirgef- in eins og sökkvandi skip og nýtt félag stofnað eða tekið í notkun til að halda áfram.“ Þá segir Aðalsteinn að æ algengara sé að félög kaupi eða eignist aflahlutdeild eða aflamark án þess að eiga nokkurt skip. „Oft eru engar upplýsingar um undir- liggjandi magn þótt viðskiptin séu upp á hundruð milljóna.“ Einnig sé félögum skipt upp í öllum mögulegum tilgangi, oft til skattahagræðingar. Þá hafi sam- runar fyrirtækja farið úr böndun- um og gangi út á að búa til veikari einingar en áður. Þessi staðreynd blasi við í hundraðavís í íslensku viðskiptalífi og sé án efa einn af orsakavöldum hrunsins. Hefðbundið skatteftirlit með núverandi mannafla hefur engan möguleika á að ráða við allt sem aflaga fer í skattaumhverfinu, segir Aðalsteinn. Þeir sem vald- ið hafa mættu leiða hugann að því hvort ekki sé best að lagfæra regluverkið með því að setja inn aukin skilyrði og takmörk, og einnig bæta þau úrræði sem bæði skattyfirvöld og innheimtumenn skatta geta gripið til. „Skattyfirvöld þyrftu einnig úrræði til að bregðast við skipu- lögðum undanskotum.“ Þau ættu til dæmis að geta fært skyldur félaga með takmarkaða ábyrgð yfir á eigendur þeirra persónu- lega, ef félögin skila ekki gögnum. thorunn@frettabladid.is Aukið frelsi veldur meiri skattsvikum Aukið frelsi, minna eftirlit og undanþágur leiða til vaxandi skattsvika. Svört at- vinna og skipulögð glæpastarfsemi virðist geta þrifist án sýnilegra vandkvæða. Skattyfirvöld þurfa úrræði, segir sviðsstjóri hjá Ríkisskattstjóra. RÍKISSKATTSTJÓRI Sviðsstjóri hjá Ríkisskattstjóra segir óheft frelsi og undanþágur í lögum leiða af sér óvenjuleg og oft ólögleg viðskipti, aukið flækjustig og undanskot á sköttum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BELGÍA Robert Gates, varnar- málaráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi ríki Atlantshafs- bandalagsins (Nató) harðlega á fundi ríkjanna í gær. Hann segir skorta á pólitískan vilja og nægt fjármagn til hernaðar hjá mörg- um ríkjum. Nató eigi ekki bjarta framtíð fyrir höndum nema fleiri ríki taki meiri þátt í verkefnum sambandsins. Gates varaði við því að Banda- ríkin væru þreytt eftir áratug í stríði og erfiða fjárhagsstöðu. Þolinmæði og vilji þingsins muni þverra gagnvart sam- bandinu. Þar yrði ekki vilji til þess að auka fjárframlög fyrir ríki sem vilji ekki taka fullan þátt í verkefnum þess. Þá gagnrýndi Gates ríki fyrir að uppfylla ekki skyldur sínar í Afganistan. Hann gagnrýndi þau þó enn meira fyrir framgang þeirra í Líbíu, og sagði að sprengjur væru að klárast eftir aðeins ellefu vikna loftárás- ir á landið. Önnur Natóríki hefðu ekki fjárfest í nægum vopnum til að standa í lengri átökum. Talskona Nató, Oana Lungescu, sagði í gær að framkvæmdastjóri sambandsins, Anders Fogh Rasm- ussen, deildi þessum áhyggjum Gates. Ójafnvægi milli Evrópu og Bandaríkjanna sé staðreynd og Evrópuríki gætu dregist enn frekar aftur úr Bandaríkjunum. - þeb Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir sprengjur á þrotum í Líbíu: Gagnrýndi Natóríki harðlega ROBERT GATES ÞÝSKALAND Þýskir embættismenn tilkynntu í gær að kólígerlasýking- in, sem dregið hefur að minnsta kosti 30 manns til dauða, væri upprunnin í baunaspírum. Þar með eru neytendur ekki lengur varaðir við að borða ferska tóm- ata, gúrkur og salat. Að loknum fundi Rússlands- forseta og forseta framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins sagði sá síðarnefndi að Rússar ætluðu að aflétta innflutnings- banni á grænmeti frá Evrópusam- bandinu. - ibs Matareitrunin í Þýskalandi: Sýkingin rakin til baunaspíra BANDARÍKIN, AP Yfirvöld í Alaska gerðu í gær opinberan tölvupóst Söruh Palin frá því að hún var ríkisstjóri þar. Margir fjölmiðlar og einstak- lingar höfðu óskað eftir því að fá aðgang að tölvupósti hennar í aðdraganda síðustu forsetakosn- inga í Bandaríkjunum. Tölvupósturinn þykir gefa innsýn í starf hennar sem ríkis- stjóri, leið hennar að útnefningu sem varaforsetaefni og erfiðleika í tengslum við fjölskyldu hennar. - þeb Búið að bíða í tæp þrjú ár: Tölvupóstur Palin gefinn út
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.