Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 35

Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 35
Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 É g er skírður eftir heima- högunum, jörðinni Geir- mundarstöðum í Skagafirði þar sem ég er fæddur og uppalinn og hef búið allt mitt líf,“ segir bóndinn og tónlistarmaðurinn Geirmundur Valtýsson, sem einn- ig er fjármálastjóri í Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki. „Ég vil alltaf hafa brjálað að gera en ég er samt ekki ofvirkur, bara skipulagður. Ég er ekki eins og Ómar Ragnarsson sem borð- ar barnamat, heldur borða ég holl- an, góðan og orkugefandi mat sem heldur mér unglegum og spræk- um,“ segir Geirmundur, sem um hverja einustu helgi spilar á böllum þvers og kruss um landið og síðast í nótt á bæjarhátíðinni Kótelettunni á Selfossi, þangað sem hann ók frá Króknum eftir vinnu í kaupfélaginu til að spila til klukkan fjögur í nótt. „Ég er vanur að skutlast þetta á milli staða og tel það ekki eftir mér. Áður fyrr kom konan oft með en ballstandi fylgir mikil næturvinna og vökur sem ekki er hægt að leggja á konur. Ég þekki svo orðið hverja einustu holu á þjóðvegunum eftir áratugi í bransanum, allar beygjurn- ar og jarðirnar, því ég er svo mik- ill bóndi í mér og nýt þess að fara um sveitir lands,“ segir Geirmundur keikur. Hann var á tólfta árinu þegar hann lærði að spila á harmóníku og sló í gegn á balli sveitunga sinna aðeins fjórtán ára gamall. „Ég hef alltaf verið að slá í gegn, aftur og aftur, og eitt leitt af öðru. Hausinn á mér er fullur af tónlist og tónlistin mín fíkn,“ segir Geir- mundur hlæjandi og þakkar fyrir að hafa aldrei smakkað vín né tóbak þrátt fyrir að hafa eytt bróðurparti allra helga fullorðinsára sinna í ball- stússi tónlistarmannsins. Alls hefur hann gefið út þrettán hljómplötur með frumsaminni tónlist. Fyrsta lag Geirmundar sem sló í gegn var Bíddu við árið 1972 og seinna sama ár kom stuðsmellurinn Nú er ég léttur. „Þessi lög eru enn rót- vinsæl og alltaf beðið um þau. Mér finnst erfitt að gera upp á milli lag- anna minna en smitast oftast með þegar lag verður afar vinsælt eins og Eurovision-lögin Lífsdansinn, Látum sönginn hljóma og Með vax- andi þrá. Ætli Ort í sandinn sé ekki í einna mestu dálæti, enda frábær útsetning, fallegur texti og sung- ið með englalegri jólarödd Helgu Möller,“ segir Geirmundur. Til ballhalds á Geirmundur sér tvær Hljómsveitir Geirmundar, eftir því hvert hann er pantaður hverju sinni. Önnur er fyrir norðan og hin í Reykjavík, enda spilar hann minnst einu sinni í mánuði á Kringlukr- ánni, þar sem hann verður einmitt á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní. „Þar verða aðalhátíðahöldin og þangað kemur fólk í bakaleiðinni 2 Öndin kaffihús í Ráðhúsi Reykjavíkur býður hönnuð- um að koma á kaffihúsið og kynna og selja vörur sínar um helgar í sumar. Anna Kristín Jensdóttir fatahönn- uður ríður á vaðið um helgina, en hún hannar föt og fylgihluti undir nafninu Starstruck Design. MYND/PÉTUR INGI BJÖRNSSON Sveiflukóngurinn Geirmundur Valtýsson á Geirmundarstöðum sinnir búskap og ballsöng um hverja helgi. Tónlistin er mín fíkn „Ég vil alltaf hafa brjálað að gera, en ég er samt ekki ofvirkur, bara skipulagður.“ Sumargleði Mikið úrval af fallegum skóm og töskum Gæði & Glæsileiki FÁKAFENI 9 - Sími: 553 7060 Opið mánud-föstud. 11-18 & laugard. 11-16 Sérverslun með Meira í leiðinniWWW.N1.IS VEIÐIKORTIÐ FÆSTÁN1 FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.