Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 51

Fréttablaðið - 11.06.2011, Page 51
LAUGARDAGUR 11. júní 2011 13 UPPLÝSINGAMIÐLUN Listasafn Reykjavíkur óskar eftir að ráða deildarfulltrúa við kynningar- og markaðs- deild safnsins. Um er að ræða 50% starf, sem getur verið sveigjanlegt að einhverju leyti. Gert er ráð fyrir að starfsmaður hefji störf upp úr miðjum júlí. Starfið felst í miðlun upplýsinga í gegnum heima- síðu, fréttabréf og samfélagsmiðla (Facebook, Twitter, Flickr, YouTube, Vimeo og Foursquare). Einnig er gert ráð fyrir að starfsmaður þrói og leiti nýrra leiða í rafrænni miðlun á sýningum og viðburðum safnsins og starfi að öðrum þeim verkefnum sem heyra undir deildina. Umsóknarfrestur er til 20. júní. Sjá nánar á heimasíðu safnsins: listasafnreykjavikur.is Atvinnuþróunarfélag Suðurlands óskar eftir að ráða verkefnastjóra/ráðgjafa Hlutverk Atvinnuþróunarfélags Suðurlands er að styðja við verkefni sem leiða til eflingar atvinnulífs á Suður- landi. Starfssvæði félagsins nær frá Lómagnúpi í austri að Hellisheiði í vestri. Til að rækta hlutverk sitt veitir félagið ráðgjöf og fjárhagslega styrki til áhugaverðra verkefna. Félagið leggur áherslu á hraða, gæði og vönduð vinnubrögð við úrlausn verkefna. Félagið vinnur í nánu samstarfi við einstaklinga, fyrirtæki, önnur innlend atvinnuþróunarfélög, opinbera aðila og erlenda aðila á sviði byggðaþróunar. Starfssvið • Samstarf með fyrirtækjum, einstaklingum og sveitar- félögum að atvinnuþróun og nýsköpun á starfs- svæðinu. • Gerð rekstrar– og viðskiptaáætlana. • Almennar úttektir, aðstoð og endurskipulagning á rekstri fyrirtækja. Hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði viðskipta–, og/eða hagfræði. • Góð þekking innsæi og áhugi á atvinnu– og efna hagslífi á landsbyggðinni. • Góð hæfni í mannlegum samskiptum. • Færni í ræðu og riti. • Frumkvæði, sjálfstæði, framsýni og metnaður. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. ágúst nk. Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2011 og skal umsóknum með upplýsingum um starfsferil og menntun skilað til Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfossi eða að senda þær á netfangið iva@sudur.is. Ekki er um sérstök umsóknar- eyðublöð að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Nánari upplýsingar veitir Sædís Íva Elíasdóttir, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélagsins í síma 480-8210 eða iva@sudur.is Bæði konur og karlar eru hvött til þess að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins er að finna á www.sudur.is Starf óskast á stór – Reykjavíkursvæðinu Húsvörður – Rekstrarstjóri Óska eftir starfi sem húsvörður/rekstrarstjóri, hef reynslu af umhirðu fasteigna, eftirliti kerfa, smáviðhaldi sem og mati á því sem þarf að framkvæma og fl. Get hafið störf strax. -- upplýsingar í síma 8955406 og e-mail: sis6@internet.is Viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði Vodafone leitar að kraftmiklum, framsæknum og þjónustulunduðum einstaklingi í stöðu viðskiptastjóra á fyrirtækjasviði. Í boði er krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf hjá öflugu fyrirtæki. Starfið krefst leiðtogahæfileika, sjálfstæðra og faglegra vinnubragða. Ábyrgðarsvið: Hæfniskröfur: Áhugasamir eru hvattir til að leggja inn umsókn á vodafone.is fyrir 21. júní 2011. Nánari upplýsingar veita Sonja M. Scott starfsmannastjóri, sonjas@vodafone.is og Trausti Guðmundsson deildarstjóri viðskiptastjórnar, traustig@vodafone.is. Við bjóðum gott fólk velkomið í skemmtilegan hóp starfsmanna sem setur viðskiptavininn í fyrsta sæti! UPPLÝSINGAFRÆÐINGUR VIÐ BÓKASAFN OG UPPLÝSINGAÞJÓNUSTU HR www.hr.is Háskólinn í Reykjavík auglýsir eftir upplýsingafræðingi. Starfið felst í upplýsingaþjónustu, notendafræðslu, kynningum og vinnu við vef. HÆFNISKRÖFUR Háskólamenntun í bókasafns- og upplýsingafræði. Reynsla af notendafræðslu eða annarri kennslu er kostur. Mjög góð tölvu- og tungumálakunnátta (íslenska og enska). Áhugi á rafrænum upplýsingum og vilji til að fylgjast með nýjungum á því sviði. Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem hefur ánægju af mannlegum samskiptum, sýnir frumkvæði og er skipulagður og sjálfstæður í starfi. Starfshlutfall getur verið á bilinu 70–100%. Umsóknir skal senda á netfangið appl@hr.is fyrir 3. ágúst, merktar viðkomandi starfi og skulu innihalda kynningarbréf, starfsferilskrá, mynd og upplýsingar um umsagnaraðila. Nánari upplýsingar veitir Guðrún Tryggvadóttir, forstöðumaður BUHR (gudrunt@hr.is). Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Bókasafn og upplýsingaþjónusta HR (BUHR) styður við sköpun og miðlun þekkingar við HR. Áhersla er lögð á aðgang að gögnum á rafrænu formi og er stefnt að því að aðgangur að rafrænu efni sé sambærilegur við það sem best gerist í alþjóðlegu háskólasamfélagi. Við Háskólann í Reykjavík stunda 3000 nemendur nám í fjórum deildum. Yfir 250 fastir starfsmenn starfa við skólann auk fjölda stundakennara. Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði fyrir einstaklinga og samfélag, með áherslu á tækni, viðskipti og lög.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.