Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.06.2011, Qupperneq 86

Fréttablaðið - 11.06.2011, Qupperneq 86
11. júní 2011 LAUGARDAGUR50 sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Stóra stundin rennur upp í dag hjá íslenska U-21 landsliðinu. Strákarnir mæta sterku liði Hvíta- Rússlands í Árósum í opnunarleik E v r ópu mei st a ra mótsi ns í Danmörku. Biðin hefur verið löng, allt frá því að liðið tryggði sér farseðilinn til Danmerkur með 2-1 sigri á Skotum í Edinborg hinn 11. október síðastliðinn. Allir leikmennirnir 23 gátu æft í gær og eru klárir í slaginn. Ísland æfði tvívegis í Álaborg, þar sem liðið gistir á meðan riðlakeppnin fer fram, en heldur til Árósa í dag. Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn Sigþórsson verða þar með í för, en þeir veiktust báðir á miðvikudagsmorgun. Útlitið var tvísýnt með Kolbein en hann treysti sér til að æfa með liðinu í gær af fullum krafti. Þjálfarinn Eyjólfur Sverrisson var ekki búinn að velja byrjunarliðið sitt þegar hann hitti fjölmiðla á blaðamannafundi í gær. „Það verður tilkynnt á töflufundi fyrir leikinn, eins og venjulega. Ég er ekki búinn að ákveða mig en er með nokkrar uppstillingar í huga. Við eigum enn eftir að sofa eina nótt og ýmislegt getur gerst,“ sagði Eyjólfur. „Ég á von á hörkuleik á morgun. Hvít-Rússar voru með á síðasta móti líka og slógu Ítali út í umspilinu fyrir þessa keppni. Það er félagsliðabragur á liðinu, sem er gríðarlega öflugt og vinnusamt,“ bætti þjálfarinn við. Aðstoðarmaður hans, Tómas Ingi Tómasson, hefur ásamt Eyjólfi skoðað andstæðinginn vel. „Við erum ekkert ósvipuð lið,“ sagði hann. „Þeir hafa að vísu spilað 4-4-2 í síðustu leikjum og við ættum því að vinna miðjuna á móti þeim, sem við þurfum að gera. En þeir eru duglegir, teknískir og fljótir að sækja þegar þeir fá sínar skyndisóknir. En það eru líka svæði opin hjá þeim sem við ætlum okkur að nýta.“ Mikilvægi leiksins er eðlilega mikið og gæti reynst erfitt að þurfa að elta önnur lið í riðlinum ef Ísland nær ekki í stig í dag. „Við viljum þrjú stig,“ sagði Eyjólfur. „Við fáum þrjá leiki og verðum einfaldlega að sanka að okkur stigum til að ná okkar markmiði, sem er að komast upp úr riðlinum.“ Fyrirliðinn Bjarni Þór Viðarsson segir að þrátt fyrir knappan undirbúning standi leikmenn klárir á sínum hlutverkum. „Ef við byrjum af krafti og gerum það sem Jolli vill hef ég engar áhyggjur. Við vitum að Hvít-Rússar eru með mjög sterkt lið en ef við verðum á tánum frá fyrstu mínútu verðum við í góðum málum,“ sagði Bjarni. Eyjólfur tekur í sama streng og hefur tröllatrú á sínum mönnum. „Við værum ekki komnir svona langt ef við værum ekki með gott lið. Og það vitum við sjálfir.“ Leikurinn hefst klukkan 16 en eftir hann hefst viðureign Dana og Svisslendinga, sem eru með Íslandi í riðli. Keppni í B-riðli hefst svo á morgun. ÆFINGU U-21 LANDSLÐSINS seinkaði um 40 mínútur í gær þar sem rútubílstjóri liðsins átti erfitt með að skila liðinu á réttan áfangastað. Bílstjórinn ætlaði fyrst að fara með liðið á vitlausan stað en villtist svo á leið sinni á æfingasvæði AaB, þar sem strákarnir hafa æft síðustu tvo daga. Rútan lenti einnig í umferðateppu sem seinkaði för hennar enn. Strákarnir létu það þó ekki á sig fá og mættu óvenju vel gyrtir í brók á æfinguna - allir sem einn. Ef við byrjum af krafti og gerum það sem Jolli vill hef ég engar áhyggjur. BJARNI ÞÓR VIÐARSSON FYRIRLIÐI ÍSLENSKA U 21 LANDSLIÐSINS Edda Garðarsdóttir landsliðskona í fótbolta Eiríkur Stefán Ásgeirsson og Anton Brink fjalla um EM U21 í Danmörku eirikur@frettabladid.is - anton@frettabladid Á minni lífsleið hef ég búið í fjórum löndum. Alls staðar hef ég verið spurð að því hvern- ig í ósköpunum við Íslendingar getum átt svona marga íþrótta- menn í fremstu röð. Mín kenning er sú að meginþorri Íslendinga sé öfgasinnaður. Taki hlutverk sitt í samfélaginu alvarlega og sé mjög gjarn á að fara yfir strikið í áhugamálum sínum. Og við erum ávallt stolt af sjálfum okkur og því sem okkar er og verður. Hvaða Íslendingur kannast ekki við það að fá einhverja dellu eftir að hafa prófað eitt skipti og þá liggur leiðin í verslunarleið- angur að kaupa bestu og flottustu græjurnar sem í boði eru? Auðvitað er okkur lífsins ómögulegt að vera með gamlan driver á golfnámskeiðinu. Það er ekki hægt að taka heilsuna í gegn nema kaupa sér árskort í líkams- rækt, hlaupaskó og nýjan vatns- brúsa. Stundum er fólk að byrja á vafasömum fæðubótarefnum af því að það vill breytast í ein- hverjar bölvaðar steríótýpur á nóinu. Eftir hrunið vitum við að hálfrar milljónarkróna flatskjá- ir og gasgrill með bakbrennara, snúningssteini og emaleruðum postulínsgrindum eru ekki lykill- inn að hamingjunni. Svona öfgar ganga frá okkur. Afreksíþróttafólk verður til þegar öfgarnar taka algjörlega yfir. Ég tek sjálfa mig og flesta kollega mína í landsliðinu sem dæmi. Á keppnistímabili er ekki nóg að æfa fótbolta 18 tíma í viku. Ég þarf líka að leika mér með bolta við hvert tækifæri sem gefst (já, ég er 31 árs). Lyfta lóðum fjóra tíma í viku til að halda við og bæta getu mína inni á fótboltavellinum. Ég fylgist með enska, spænska, sænska og ítalska bolt- anum á meðan augun haldast opin og meistaradeildin, uh, já takk! Ég tala um fótbolta heima hjá mér, við vini mína og fjöl- skyldu, liðsfélaga mína, vinnu- félaga og fólk sem ég hitti úti á götu. Svo er langtímaplanið að þjálfa fótboltafólk með hjarta, metnað og eldmóð þegar ég hætti að geta spilað sjálf. Þetta hef ég gert í „nokkur“ ár og hef aldrei velt því fyrir mér að hætta þessu af því þetta er svo skemmtilegt og eitt er víst – við stelpurn- ar erum ekki í þessu fyrir pen- ingana. Fótbolti er lífið. Erum ekki í þessu fyrir peningana HANDBOLTI Íslensku A-landsliðin í handbolta eru í eldlínunni á morg- un. Karlalandsliðið mætir Aust- urríki í Laugardalshöllinni klukk- an 16.30 í hreinum úrslitaleik um sæti á EM í Serbíu 2012 og kvenna- landsliðið er úti í Úkraínu, þar sem stelpurnar spila seinni leikinn í umspili um sæti á HM í Brasilíu í desember. Stelpurnar unnu fyrri leikinn með nítján marka mun og eru því í frábærum málum, en leikurinn hefst klukkan 14.30 að íslenskum tíma. - óój A-landslið karla og kvenna í handbolta um helgina: Komast bæði á stórmót? HANDBOLTI Íslenska handbolta- landsliðið mætir Austurríki í Laugardalshöllinni á morgun klukkan 16.30 í hreinum úrslita- leik um sæti á EM í Serbíu. Snorri Steinn Guðjónsson og Aron Pálmarsson gátu ekki verið með í sigrinum í Lettlandi en landsliðsþjálfarinn vonast eftir því að þeir verði með á morgun. Aron var sprækur á æfingu í gær og Snorri Steinn er í stífri meðhöndlun fram að leik. „Við getum ekki leyft okkur að spila með sama hætti gegn Aust- urríki og við gerðum á miðviku- daginn gegn Lettum. Austurrík- ismenn hafa reynst okkur erfiðir í síðustu leikjum og á HM í Sví- þjóð tók það okkur 50 mínútur að brjóta þá á bak aftur,“ sagði Guð- mundur. Hann segir góðan stuðn- ing nauðsynlegan og markvörður- inn tók undir það. „Það er ekkert skemmtilegra en að vinna svona leiki fyrir framan troðfulla höll,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson. - óój Meiddu leikstjórnendurnir: Aron sprækur, Snorri tæpur SNORRI STEINN Reynir allt til þess að geta spilað leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON ecco.com S í m i 5 5 3 8 0 5 0 Casual Cool II - herra Verð áður kr. 29.995 Verð nú kr. 23.995 Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150024-54411 Casual Cool - dömu Verð áður kr. 27.995 Verð nú kr. 22.995 Stærðir: 35 - 43 | Vörunr. 120023-56455 Comfort Classic - herra Verð áður kr. 33.995 Verð nú kr. 27.995 Stærðir: 42 - 44 | Vörunr. 141004-56725 Casual Cool II - herra Verð áður kr. 24.995 Verð nú kr. 19.995 Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150014-56904 Casual Cool II - herra Verð áður kr. 24.995 Verð nú kr. 19.995 Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150014-56901 Casual Cool - dömu Verð áður kr. 24.995 Verð nú kr. 19.995 Stærðir: 35 - 43 | Vörunr. 120013-56938 Casual Cool II - herra Verð áður kr. 29.995 Verð nú kr. 23.995 Stærðir: 39 - 47 | Vörunr. 150024-56462 Classic - herra Verð áður kr. 29.995 Verð nú kr. 23.995 Stærðir: 39 - 50 | Vörunr. 140524-51222 Comfort Classic - herra Verð áður kr. 33.995 Verð nú kr. 27.995 Stærðir: 40 - 47 | Vörunr. 141004-01007 20%AFSLÁTTURAF GOLFSKÓMAÐEINS Í 5 DAGA Vitum sjálfir að við erum góðir Íslenska U-21 landsliðið mætir Hvíta-Rússlandi í sínum fyrsta leik á EM í Danmörku í dag. Tilhlökkunin er mikil hjá íslensku leikmönnunum, sem eiga engu að síður von á erfiðum leik. Liðið ætlar sér sigur í dag. LÉTT Á ÆFINGU Í GÆR Strákarnir nutu sín í blíðunni í Álaborg FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.