Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 2
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Magnús, sjáið þið ekki skóginn
fyrir trjánum?
„Allt er vænt sem vel er grænt!“
Magnús Gunnarsson er formaður Skóg-
ræktarfélags Íslands sem í samstarfi við
Háskólann í Reykjavík vill taka að sér
uppbyggingu útivistarparadísar í Öskju-
hlíð. Þar er þegar mikill trjágróður.
SPURNING DAGSINS
afé er flottur veitingastaður í Eagle C
iðbæjarins við Hafnarbúðir,mhjarta
tu 9, í sama húsi og fuglasafnGeirsgö
Búið er að byggja flottan pall Íslands.
sem vilja njóta veitinganna fyrir þá
a.utandyr
50 viðskiptavini þarf til að virkja tilboðið
í krafti fjöldans
790 kr. GILDIR 24 TÍMA
1.800 kr. 56% 1.010 kr.P
IP
A
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á fimm-
tugsaldri, sem var stunginn í
slagæð í hálsi með hnífi á veit-
ingastaðnum Monte Carlo á
fimmtudagskvöld, er kominn úr
öndunarvél. Hann var útskrif-
aður af gjörgæsludeild Landspít-
alans í gær, samkvæmt upplýs-
ingum frá vakthafandi lækni, og
fluttur á almenna deild.
Árásarmaðurinn, sem er tæp-
lega fertugur með erlent ríkis-
fang, hefur verið úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 29. júlí næst-
komandi. - jss
Fórnarlamb á batavegi:
Var útskrifaður
af gjörgæslu
FJARSKIPTI Undirbúningur að lagn-
ingu á nýjum sæstreng til gagna-
flutninga milli Evrópu og Norð-
ur-Ameríku í gegnum Ísland er
hafinn. Leggja á strenginn næsta
sumar, en eigendur hans horfa
meðal annars til viðskipta við
gagnaver hér á landi.
Strengurinn mun liggja frá
meginlandi Evrópu til Bretlands,
Íslands og loks Norður-Ameríku.
Hann verður í eigu fyrirtækis-
ins Emerald Atlantis, sem er að
stórum hluta í eigu breska sjóðsins
Wellcome Trust.
Lagning strengsins hefur verið
þrjú ár í undirbúningi, og eru
botnrannsóknir á væntanlegri leið
strengsins nú að hefjast, segir Jón
Birgir Jónsson, talsmaður Emerald
Atlantis á Íslandi. Stefnt er að því
að leggja strenginn næsta sumar,
og taka hann í notkun síðar á árinu.
Kostnaður mun hlaupa á nokkr-
um milljörðum króna. Strengur-
inn verður fjármagnaður að einum
þriðja með eigin fé en að tveimur
þriðju með lánum, segir Jón Birgir.
Fyrsti áfangi af þremur hefur
þegar verið að fullu fjármagnaður.
Nýi strengurinn mun gera Ísland
að mun fýsilegri kosti fyrir gagna-
ver erlendra stórfyrirtækja vegna
mikillar afkastagetu og hraða,
segir Jón Birgir. - bj
Leggja nýjan sæstreng fyrir gagnaflutninga milli Evrópu og Norður-Ameríku:
Horfa til viðskipta við gagnaver
STRENGUR Sérstök skip þarf til að leggja
sæstrengi, og er stefnt á að strengur
Emerald Atlantis verði lagður næsta
sumar.
UMFERÐ Sala á steinolíu hefur
snaraukist á undanförnum árum.
Í fyrra var hún tíu sinnum meiri
en árið 2005. Mjög hefur færst í
vöxt að steinolía sé notuð á eldri
dísilbíla, ýmist hrein eða blönduð
í dísil, enda er lítrinn af steinolíu
tugum króna ódýrari en dísilolíu-
lítrinn.
Í tölum frá Flutningsjöfnun-
arsjóði, sem Fréttablaðið hefur
aflað sér, má sjá að salan á stein-
olíu tók gríðarlegan kipp á milli
áranna 2007 og 2008, þegar hún
nálega fimmfaldaðist á einu ári.
Þetta hefur verið sett í samhengi
við verðhækkanir á dísilolíu á
árinu 2007, en það ár varð hún
í fyrsta sinn dýrari en bensínið.
Síðan hefur salan enn aukist og
var á síðasta ári yfir 1.120 þús-
und lítrar, samanborið við 118
þúsund lítra árið 2005. Heimild-
ir Fréttablaðsins herma að vís-
bendingar séu um að sala henn-
ar hafi enn aukist það sem af er
þessu ári.
Hægt er að nálgast steinolíu í
dælum á bensínstöðvum og svo
virðist sem jafnt megi nota hana
í stað dísilolíu á dísilbíla sem ekki
eru af allra nýjustu gerð. Nýleg-
ustu dísilvélar hafa búnað sem
ekki ræður við steinolíuna. Þeir
sem Fréttablaðið ræddi við sögðu
að viss áhætta væri engu að síður
fólgin í því að nota steinolíuna á
eldri dísilbíla, enda kynni það að
slíta vélunum hraðar en ella.
Ekkert olíugjald leggst á steinol-
íu enda er hún ekki ætluð sem elds-
neyti fyrir ökutæki. Olíugjaldið er
55 krónur á hvern lítra svo það er
ljóst að töluverður sparnaður hlýst
af því að nota hana í stað dísilolí-
unnar eða með henni. Þrátt fyrir
að ekkert olíugjald leggist á hana
er notkun hennar lögleg, ólíkt lit-
aðri dísilolíu sem einnig er undan-
þegin olíugjaldi. stigur@frettabladid.is
Sala á steinolíu hefur
tífaldast á sex árum
Algengt að steinolíu sé dælt á dísilbíla. Ekki ólöglegt þótt ekkert olíugjald sé
lagt á steinolíuna. Rúmlega 1,1 milljón lítra seld í fyrra, samanborið við 118
þúsund lítra 2005. Fimmfaldaðist á einu ári eftir að dísill varð dýrari en bensín.
STEINOLÍA Á KAGGANN Þessi dældi steinolíu á bílinn sinn á bensínstöð N1 á Ártúnshöfða í gær. Það er töluvert ódýrara en að
fylla hann af dísil og áhöld eru um hvort bílnum verður nokkuð meint af. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
Fjöldi seldra lítra af
steinolíu 2005 - 2010
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
11
8.
21
9
lít
ra
r
19
9.
13
8
lít
ra
r
21
1.
90
9
lít
ra
r
Heimild: Flutningsjöfnunarsjóður
1.
12
3.
30
7
lít
ra
r
96
5.
65
2
lít
ra
r
93
0.
88
4
lít
ra
r
HEILBRIGÐISMÁL Þórarinn Tyrf-
ingsson, yfirlæknir á Vogi, segir
fyrirhugaða rannsókn á tengslum
áfengissýki og dánarmeina afar
mikilvæga. Persónuvernd hafnar
að leyfa rannsóknina þar til betur
liggur fyrir hvernig tryggja eigi
öryggi viðkvæmra upplýsinga um
einstaklinga sem fengu meðferð við
áfengissýki.
„Þetta er hið besta mál,“ segir
Þórarinn um rannsóknina sem
tveir háskólanemar hyggjast vinna
undir handleiðslu og á ábyrgð Vil-
hjálms Rafnssonar hjá Rannsókn-
arstofu í heilbrigðisfræði. Nota á
sjúkraskrár Vogs frá árinu 1980
og bera saman við dánarmeinaskrá
Hagstofunnar.
Þórarinn telur rannsóknina ekki
aðeins geta hnykkt á því að líflík-
ur áfengissjúklinga minnki heldur
muni upplýsingarnar gagnast bæði
sjúklingunum og heilsugæslunni til
að vera á varðbergi. Oft sé tekið á
annan hátt á drukknu fólki og þeim
sem séu undir áhrifum fíkniefna
þegar þeir koma á slysavarðstof-
una.
„Vilhjálmur hefur sýnt fram á að
lífslíkur þessa fólks eru mjög lágar.
Það er í meiri hættu á að deyja á
næstu tíu árum heldur en ef það
kæmi á bráðamóttöku með alvar-
lega sjúkdóma,“ segir Þórarinn.
Sjúkraskrár Vogs hafa nú þegar
verið notaðar til erfðarannsókna
með heimild Persónuverndar að
sögn Þórarins. „Það er allt háð
ströngum leyfum og við höfum allt-
af reynt að fara mjög varlega með
þessi gögn hjá okkur,“ segir yfir-
læknirinn. - gar
Yfirlæknir á Vogi segir könnun á tengslum áfengissýki og dánarmeina mikilvæga:
Fullir fá aðra meðferð á bráðavakt
ÞÓRARINN TYRFINGSSON Yfirlæknirinn á Vogi segir vandamál að ekki sé litið á
áfengissýki sem alvörusjúkdóm og því sé lítið fé sett í forvarnir og meðferð.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
EFNAHAGSMÁL Alþjóðlega mats-
fyrirtækið Moody‘s segir láns-
hæfiseinkunn íslenska ríkisins
endurspegla hóflegan styrk hag-
kerfisins og sterkar stofnanir
þess. Þetta kemur fram í árlegri
skýrslu fyrirtækisins um Ísland.
Hjá Moody‘s hefur Ísland ein-
kunnina Baa3 sem er aðeins
einum flokki yfir rusflokki. Þá
eru horfur landsins neikvæðar.
Í skýrslunni eru neikvæðu
horfurnar sagðar til komnar
vegna erfiðra verkefna stjórn-
valda við að laga stöðu ríkisfjár-
mála og þess hve berskjaldað
hagkerfið er fyrir ytri áföllum.
Þó er tekið fram að Ísland hafi
náð miklum árangri í að rétta
hagkerfið við eftir kreppuna sem
skall á haustið 2008. - mþl
Árlegt mat Moody‘s á Íslandi:
Hóflegur styrk-
ur hagkerfisins
SAMGÖNGUR Flugmenn hjá Ice-
landair hafa náð nýjum kjara-
samning við félagið. Skrifað var
undir samninginn á níunda tím-
anum í gærkvöldi með fyrirvara
um samþykki félagsmanna.
Flugmenn munu nú greiða
atkvæði um samninginn.
Atkvæðagreiðslan hefst í dag og
á henni að vera lokið á miðviku-
daginn eftir viku segir Haf-
steinn Pálsson, formaður Félags
íslenskra atvinnuflugmanna.
Yfirvinnubanni flugmanna
hjá félaginu, sem tók gildi í gær,
hefur nú verið aflýst.
Hafsteinn vildi ekki skýra í
smáatriðum muninn á þessum
samningi og þeim sem flugmenn
felldu fyrir skömmu fyrr en
samningurinn hefur verið kynnt-
ur félagsmönnum. Munurinn snúi
þó einkum að starfsöryggi flug-
mannanna, sem hafi verið bitbein
í viðræðunum við Icelandair. - bj
Flugmenn ná samningum:
Yfirvinnubanni
verið aflýst
VÍSINDI Sé barnshafandi kona undir
miklu álagi gæti stressið haft var-
anleg áhrif á fóstrið í móðurkviði
samkvæmt niðurstöðum rannsókn-
ar þýskra sálfræðinga sem birtist í
virtu sálfræðitímariti.
Ekki er hægt að fullyrða að
stress á meðgöngu, til dæmis
vegna ofbeldis af hálfu maka, hafi
alltaf áhrif á ófædd börn. Vísinda-
mennirnir sem unnu að rannsókn-
inni segja niðurstöðurnar þó benda
eindregið til þess að börnunum
sé hættara en öðrum við stressi,
geðrænum kvillum og hegðunar-
vandamálum á lífsleiðinni, að því
er fram kemur í frétt BBC. - bj
Vara við stressi á meðgöngu:
Gæti haft
varanleg áhrif
SLÖKUN Börnum stressaðra mæðra er
hættara við kvillum en öðrum börnum.
NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Pakistönsk stjórn-
völd létu milljónir dollara renna
til samtaka í Bandaríkjunum.
Þau áttu að reyna að hafa áhrif á
stefnu bandarískra stjórnvalda í
málefnum tengdum Pakistan.
Bandaríska alríkislögreglan,
FBI, sakar forsprakka Kasmír-
bandaríska ráðsins um að vera
óskráður erindreki pakistanskra
stjórnvalda, og hafa með ólögleg-
um hætti fengið árlega 500 til 700
þúsund Bandaríkjadali frá Pak-
istan árum saman. Pakistönsk
stjórnvöld segja ásakanirnar ekki
eiga við rök að styðjast. - bj
Ólöglegur erindreki Pakistans:
Handtekinn í
Bandaríkjunum