Fréttablaðið - 20.07.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 20.07.2011, Blaðsíða 19
GRÆNN LÍFSSTÍLL MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2011 Kynningarblað Verslun, fróðleikur, endurvinnsla, uppskriftir, umhverfismerki. Heilsuhúsið flytur inn svokallaða Baggupoka. „Þetta eru pokar sem eru eins í sniðinu og inn- kaupapokar,“ upplýsir Jóhanna en auðvelt er að brjóta pokana saman. „Þeir eru endurnýtan- legir og fást í skemmtilegum mynstrum og útfærslum,“ segir Jóhanna glaðlega. Jóhanna segir að með því að nota Baggupoka sé hægt að draga úr plastpokanotkun um 300 til 700 poka á ári á mann. „Það er mjög mikið þegar allt er lagt saman.” ENDURNÝTANLEGIR BAGGUPOKAR Baggupokarnir fást í skemmtilegum mynstrum og útfærslum. Heilsuhúsið býður upp á lífrænt vottaðar og hollar matvörur, ásamt bætiefnum, snyrtivörum og hreinlætisvörum. Við reynum að hjálpa fólki að halda sig við og velja góðan lífsstíl. Við reynum að auð- velda fólki valið því við erum með framúrskarandi gott starfs- fólk sem veitir góðar ráðlegging- ar,“ segir Jóhanna Kristjánsdótt- ir, rekstrarstjóri Heilsuhússins. „Heilsuhúsið var stofnað árið 1979 þannig að við erum búin að slíta barnsskónum og erum komin vel á fertugsaldurinn.“ Jóhanna segir að búðirnar byggist upp á lífrænt vottuðum og hollum matvörum. „Svo erum við líka með bætiefni, snyrtivörur og umhverfisvænar hreinlætisvör- ur. Við erum til dæmis með bæti- efni frá Higher Nature sem er ein- göngu selt í Heilsuhúsinu og við getum sagt að það sé svona Rolls Royce bætiefnanna,“ upplýsir Jó- hanna brosandi. Að sögn Jóhönnu er leitast eftir því við val á vörum Heilsuhússins að þær séu lífrænt vottaðar, nátt- úrulegar og í sem bestu gæðum, án allra aukaefna og tilbúinna bragðefna og rotvarnarefna. „Við veljum ekki vörur með hertum grænmetisolíum eða vörur sem unnar eru úr genabreyttum mat- vælum,“ segir Jóhanna og bend- ir á að reynt sé að bjóða upp á ís- lenskar vörur eins og kostur er. „Við höfum alltaf stutt og ýtt undir íslenska framleiðslu og þá sem framleiða lífrænar íslenskar vörur, bæði grænmeti, matvörur og snyrtivörur. Við erum með gott úrval af snyrtivörum frá íslensk- um aðilum en líka frá erlendum framleiðendum. Þær eru án skað- legra aukaefna, paraben-efna og jarðolía.“ Er grænn lífsstíll vinsæll í dag? „Já, ekki spurning. Fólk er farið að þekkja muninn á lífrænum vörum og þeim vörum sem ekki hafa líf- ræna vottun. Mér finnst fólk vanda sig betur núna heldur en oft áður við að velja vörur og vill gera vel,“ útskýrir Jóhanna og tekur fram að fólk virðist leggja meiri áherslu á val lífrænna vara. „Það skiptir til dæmis miklu máli hvað fólk ber á húðina. Það er jafn mikilvægt og það sem við borðum. Stór hluti af þeim kremum sem við berum á okkur fer beint inn í líkamann enda eru læknar búnir að upp- götva að setja lyf í plástur,“ segir Jóhanna og bætir við að því skipti það auðvitað máli hvað borið sé á líkamann. Jóhanna tekur fram að Heilsu- húsið sé ekki bara verslun heldur miðli það líka fróðleik. „Við erum með vildarklúbb sem heitir Íbúar Heilsuhússins. Fólk getur sótt um kort á netinu og rafrænum punktum er safnað þegar versl- að er. Svo er alltaf einn afsláttar- dagur í mánuði,“ segir Jóhanna. Rafrænt fréttabréf kemur út átta til tíu sinnum á ári. „Svo gefum við út stórt blað í dagblaðsformi á hverju ári sem heitir Heilsufrétt- ir og er dreift út um allar koppa- grundir.“ Verslanir Heilsuhússins eru sjö, þar af eru fjórar á höfuðborg- arsvæðinu; á Laugaveginum, í Kringlunni, á Smáratorgi og í Lág- múla, en Heilsuhúsið rekur einnig þrjár verslanir utan höfuðborgar- svæðisins; ein er á Selfossi, önnur í Keflavík og sú þriðja á Akureyri. Nánari upplýsingar má finna á www.heilsuhusid.is. Verslun og miðlar fróðleik Jóhanna segir að leitast sé eftir því að vörur Heilsuhússins séu lífrænt vottaðar, náttúrulegar og í sem bestum gæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG „Við erum með safabar á þremur stöðum, í Lágmúla, Kringlunni og á Laugavegi,“ segir Jóhanna Kristjánsdóttir hjá Heilsuhúsinu og bætir við að þar sé eingöngu notast við lífrænt ræktað hráefni. Jóhanna segir að engiferskot á safabarnum sé mjög vinsælt. „Við erum með stóran viðskiptavina- hóp sem fær sér engiferskot til að hressa sig við. Það er vel sterkt og margir þurfa að telja í sig kjark til að skutla engiferskotinu í sig.“ ENGIFERSKOT VINSÆLT Á SAFABAR Jóhanna segir að margir þurfi að telja í sig kjark til að skutla engiferskoti í sig. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.