Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 11

Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 11
11MIÐVIKUDAGUR 20. júlí 2011 marathon.is Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður að morgni Menningarnætur, 20. ágúst. Vegalengdir við allra hæfi, allt frá Latabæjarhlaupi fyrir börnin og upp í heilt maraþon. Boðhlaup – hlauptu maraþon með félögum þínum Gerðu Reykjavíkurmaraþonið þitt enn skemmtilegra. Í boðhlaupi taka 2–4 sig saman og skipta heilu maraþoni á milli sín. Nánar á marathon.is. Hlaupastyrkur – hlaupum til góðs Þú getur látið gott af þér leiða með hlaupinu. Á hlaupastyrkur.is getur þú safnað áheitum til stuðnings góðgerðarfélagi að eigin vali með því að fá vini og vandamenn til að heita á þig. - Stoltur bakhjarl hlaupsins síðan 1997 ... og styðja Líf styrktarfélag í leiðinni! Kannanir á viðhorfi stjórn- enda fyrirtækja til þróunar efnahagsmála eru reglulega birtar. Guðjón Emilsson hagfræðingur hefur kannað forspárgildi slíkra kann- anna. Capacent hefur undanfarin ár kannað viðhorf stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins ársfjórðungs- lega með það fyrir augum að meta væntingar stjórnenda um stöðu og framtíðarhorfur efnahagsmála. Könnunin hefur ver ið fra m- kvæmd fyrir Samtök atvinnu- lífsins í sam- starfi við Seðla- banka Íslands og fjármála- ráðuneytið. Nýjustu niður stöður könnunarinnar voru birtar fyrir skömmu og kom þá í ljós að mikill meirihluti stjórn- enda fyrirtækja telur aðstæð- ur í atvinnulífinu vera slæmar. Það kom þó ekki beint á óvart því niðurstöður könnunarinnar hafa verið á þann veg allt frá hruni. Fjórðungur fækkar starfsfólki Hins vegar kom á óvart merkjan- leg lækkun sem varð á mati stjórn- enda á aðstæðum eftir sex mánuði en matið hefur ekki verið lægra síðan í desember 2009. Bjartsýni er meiri á höfuð- borgar svæðinu en á landsbyggð- inni en bjartsýnustu stjórnendur- nir koma úr fjármálageiranum, þjónustufyrirtækjum, iðnaðar- fyrirtækjum og verslunargeiran- um. Mest svartsýni ríkir í bygg- ingastarfsemi, í samgöngum og flutningum. Þá hafa langflest fyrirtæki yfir nægu starfsfólki að ráða en einungis 13 prósent fyrir- tækja áforma fjölgun starfsmanna borið saman við 26 prósent fyrir- tækja sem áforma fækkun. Niðurstöður þessarar reglulegu könnunar eru ávallt forvitnilegar. Sú spurning vaknar þó óhjákvæmi- lega hve mikið er að marka stjórn- endur íslenskra fyrirtæja að þessu leyti, það er, hve mikið forspárgildi könnunin hefur um þróun helstu hagstærða. Guðjón Emilsson, hag- fræðingur hjá Seðlabankanum, rannsakaði forspárgildi fyrir- tækjakönnunar Capacent á síðasta ári. Hann birti niðurstöður sínar í ritinu Efnahagsmál sem Seðla- bankinn gaf út í janúar. Svörin hafa forspárgildi „Það er einna áhugaverðast að þegar kreppan skellur á þá virð- ist fylgni könnunarinnar við helstu hagstærðir aukast töluvert. Í fljótu bragði virðist sem sagt sem for- spárgildið aukist. Að sama skapi verða svörin einsleitari eftir árið 2008. Mig grunar hins vegar að þetta skýrist af þeim sérstöku aðstæðum sem hafa verið hér á landi frá hruni og að fylgnin muni aftur liðast í sundur þegar frá líður kreppunni,“ segir Guðjón um niðurstöður sínar. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á að svör úr fyrirtækjakönn- unum geta haft forspárgildi um þróun ýmissa hagstærða. Í rann- sókn Guðjóns kom í ljós að til- tölulega lítið samband var á milli svara í könnuninni og hagstærða frá árinu 2002 og fram að fjár- málahruni en að sambandið hafi batnað talsvert þegar tímabilið frá hruni til loka árs 2010 er skoðað. Þau svör í könnuninni sem virð- ast hafa mest forspárgildi eru svör við spurningum sem fjalla um fyrirtæki stjórnandans en ekki um almennar aðstæður í hagkerfinu. Þannig hafa mest for- spárgildi svör við spurningum er varða mat á starfsmannafjölda, getu fyrirtækja til að bregðast við óvæntri aukningu í eftirspurn og sölu og tólf mánaða breyt- ingu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum. Nálgast stjórnendur á tvo vegu Þá kemur svar við spurningu um mat á aukningu innlendrar eftir- spurnar eftir vörum og þjónustu best út þegar stjórnendur eru beðnir um að horfa sex mánuði fram í tímann. Þegar litið er heilt ár fram í tímann eru það spurning- ar um áætluð fjárfestingarútgjöld í varanlegum rekstrarfjármunum og um fjárfestingar alls sem koma best út. „Það er í raun hægt að nálgast viðhorf stjórnenda á tvo vegu,“ segir Guðjón og bætir við: „Þú getur spurt stjórnandann hvað hann telji að verðbólga verði eftir eins og sex mánuði en þú getur líka spurt hann hvað hann telji að verð sinnar vöru eða þjónustu muni hækka mikið á sama tímabili. Stjórnandinn er líklegri til að hafa betri tilfinningu fyrir verðþróun eigin vöru en almennri verðþróun. Og með því að styðjast við seinni spurninguna er, að ég held, hægt að fá betri verðbólgumælikvarða.“ GUÐJÓN EMILSSON Atvinnulífið gleggra eftir hrun Í REYKJAVÍK Ef til vill kemur ekki á óvart að stjórnendur íslenskra fyrirtækja hafi betri tilfinningu fyrir stöðu eigin fyrirtækis en almennum horfum í efnahagsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÉTTASKÝRING: Hvernig gengur að spá fyrir um hagþróun með könnunum meðal stjórnenda fyrirtækja? Magnús Þorlákur Lúðvíksson magnusl@frettabladid.is Stjórnandinn er líklegri til að hafa betri tilfinningu fyrir verð- þróun eigin vöru en almennri verðþróun. GUÐJÓN EMILSSON HAGFRÆÐINGUR Í SEÐLABANKANUM

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.