Fréttablaðið - 20.07.2011, Qupperneq 21
KYNNING − AUGLÝSING20. JÚLÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR
Fallegt ævintýri hófst í Skaga-firði með byggingu f lokk-unarstöðvar sem var opnuð
í mars árið 2008. Þá gátu viljugir
sveitungar komið með sitt flokkaða
rusl á stöðina. Fyrir ári tók Sveitar-
félagið Skagafjörður sig síðan til og
ákvað að skylda alla í þéttbýli til að
flokka. „Það hefur gefist vel,“ segir
Ómar Kjartansson, framkvæmda-
stjóri Flokku ehf. „Fólk tók fullan
þátt í þessu. Það var einn og einn
sem var óánægður en ég held að
það sé komið í gott lag og bæjar búar
bara ánægðir með þetta.“
Hið nýstárlega við þetta fyrir-
komulag á sínum tíma var að ekið
var með tunnurnar heim til fólks og
því látin í té viðeigandi ílát, ókeyp-
is og vandræðalaust. Kynningar-
fundir voru haldnir og fólki kennt
að f lokka. Árangurinn lét ekki á
sér standa. „Nú urðum við 35 pró-
sent af óendurvinnanlegum úr-
gangi miðað við magnið sem var
fyrir breytingarnar,“ segir Ómar.
„Tveggja hólfa bíll sækir tunnurnar.
Ein tunnan er græn, fyrir mismun-
andi plast, pappír og málma. Svarta
tunnan er fyrir óendurvinnanlegt
en í henni er 35 lítra hólf fyrir líf-
rænan úrgang,“ segir Ómar sem
kveður fólk nú vilja tíðari losun.
„En það er, tel ég, hjá fólki sem fer
ekki eftir leiðbeiningum. Hjá þeim
sem brjóta saman og raða geng-
ur mjög vel og þarf því ekki að losa
tunnurnar oftar.“
Að sögn Maríu Bjarkar Ingva-
dóttur, frístundastjóra hjá sveitar-
félaginu, hafa margir breytt neyslu-
venjum sínum eftir innleiðingu
flokkunarkerfisins. „Þegar fólk sér
að það er að henda allt að 60 kílóum
af lífrænum úrgangi, það er mat, á
mánuði þá hugsar það sinn gang
og fer að haga innkaupum sínum
skynsamlegar.”
Tún er faggild og alþjóðlega viður-
kennd vottunarstofa fyrir lífræna
og sjálfbæra framleiðslu. Á þessu
ári hafa fleiri sótt um að framleiða
vörur í samræmi við alþjóðlega
staðla um lífrænar aðferðir en fyrri
ár og stöðugt fjölgar fyrir tækjum
sem vinna úr lífrænu hráefni. Þá
er umsóknum frá sauðfjárbænd-
um að fjölga að sögn Rannveigar
Guðleifsdóttur sem er verkefna-
stjóri hjá Túni. „Lífrænar aðferðir
byggjast á því að vinna sem mest
með náttúrunni, nota engan tilbú-
inn áburð og forðast öll eiturefni
og erfðabreyttar lífverur. Einnig er
áhersla á velferð dýra, að þau hafi
rúmt um sig og hæfilega útivist,“
segir hún og lýsir ferlinu nánar.
„Þegar við fáum umsókn frá
framleiðanda fer matsmaður á
staðinn og athugar hvað þarf að
lagfæra til að starfsemin stand-
ist ströngustu kröfur. Öll mál eru
lögð fyrir nefnd sem ákveður hvort
vottun verður samþykkt. Aðlögun-
artími í landbúnaði er yfirleitt tvö
ár, búreksturinn er undir eftirliti
þann tíma og síðan tekur við árlegt
eftirlit. Yfirleitt er fólk mjög áhuga-
samt og vill gera hlutina vel.“
Rannveig segir lífrænan bú-
skap ekki endilega þurfa að vera
stórt skref fyrir þá sem hafa verið
í framleiðslu.
„Þetta er allt spurning um
hugar far. Ef t ir hr un hef ur
áburðar- og fóðurverð hækk-
að svo mikið að bændur hafa
reynt að draga úr notkun tilbú-
ins áburðar og fóðurbætis og nota
búfjáráburð og rækta eigin fóður
í meira mæli. Oft þurfa þeir samt
að breyta húsnæði og aðstöðu bú-
peningsins og það kallar á útgjöld
en margir bændur sem hafa skipt
yfir í lífrænan búskap segja hann
mun hagkvæmari en þann hefð-
bundna.“
Ef t irspurn ef t ir l í f rænum
vörum hér á landi er meiri en
framboð að sögn Rannveigar.
„Fólk verður bara að muna eftir
að leita eftir vottunarmerki á þeim
vörum sem það kaupir, ef það vill
kaupa lífrænt. Það er staðfesting á
því að unnið hafi verið eftir þess-
um alþjóðlegu reglum.“
Allt spurning
um hugarfar
„Ferlið er allt eftirlitsskylt,“ segir Rannveig Guðleifsdóttir, verkefnastjóri hjá Túni, um líf-
ræna framleiðslu. MYND/VILHELM
Hótel Náttúra
Gisting Baðhús Slow Food
Leirböð Nudd Yoga
Bowen Golf Hestaferðir
Hjólreiðar Gönguferðir
Náttúruupplifun
Hollir safar svíkja engan. Hér eru uppskriftir að tveimur
ljúffengum.
Gulrótarsafi
Saxið niður gulrætur, engi-
fer (örlítið) og
epli eftir smekk
og bla nd ið
saman í raf-
magnskvörn
á s a m t s m á
vatni og klökum.
Sumum finnst gott
að hella út í dálitlu
a f t i lbú nu m
eplasafa.
Berið fram
í g lasi
með
röri.
Tómatsafi
Hreinsið fimm tómata að
utan sem innan og sker-
ið í báta. Hitið í potti (sem
ekki smitar út frá sér) ásamt
niður skornum rauðlauk og
selleríi eftir smekk í um það
bil hálftíma. Gætið þess að
hafa lok ofan á pottinum.
Hrærið í þar til tóm-
atarnir verða mjúk-
ir. Setjið tómatana
í rafmagnskvörn
og f jarlægið
kjötið. Setjið
tómatsaf-
ann í pott
ásamt te-
skeið af
syk ri og
sa lt ið og
piprið eft ir
s mek k . L át ið
suðuna koma upp. Kælið
og berið fram.
Tveir þrusugóðir
Að sögn Ómars Kjartanssonar framkvæmdastjóra Flokku ehf. hefur gengið vel að fá íbúa
sveitarfélagsins Skagafjarðar til að flokka úrgang.
Allir ánægðir með að flokka
LÍFRÆN PARADÍS
Þjóðverjar eru þekktir fyrir
dálæti sitt á lífrænum mat. Hótel
Ulrichshof í Bæjaralandi býður
eingöngu barnafólki með lítil
börn í gistingu sem í þokkabót
aðhyllist lífrænan lífsstíl og
neytir eingöngu lífrænnar fæðu.
Þangað getur fólk komið og
áhyggjulaust látið hvað sem er
inn fyrir sínar varir án þess að
óttast að um ólífræna vöru sé að
ræða. Allt á staðnum er lífrænt
og náttúrulegt: leiktækin fyrir
börnin, sápan sem ræstitækn-
arnir nota og nammið í sjálf-
salanum, auk þess sem hótelið
er hitað upp með afgangsspreki
úr bæverskum skógum.