Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 22

Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 22
KYNNING − AUGLÝSINGGrænn lífsstíll MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 20114 Svanurinn er opinbert norrænt umhverfismerki. Kröfur Svansins ná yfir alla helstu umhverfisþætti vöru eða þjónustu. Má þar nefna orku- og hráefnanotkun, losun mengandi eða hættulegra efna, umbúðanotkun, flutning og meðhöndlun úrgangs. Tilgangur Svansins er að ýta undir sjálfbæra þróun svo að komandi kynslóðir hafi jafna möguleika og nútíma- menn til að mæta þörfum sínum. Alls er hægt að votta um 70 mis- munandi vöru- og þjónustuflokka. Á Íslandi hafa 17 Svansvottanir verið gefnar út frá 2000. Þær eru eftirfarandi: 1. Prentsmiðjan hjá Guðjón Ó – frá 2000 2. Farfuglaheimilin í Laugardal – frá 2004 3. Undri – iðnaðarhreinsir – frá 2006 4. Sólarræsting – frá 2007 5. ISS-ræstingar – frá 2009 6. Prentsmiðjan Oddi – frá 2009 7. Farfuglaheimilin Vesturgötu – frá 2010 8. Kaffihús kaffitárs – frá 2010 9. Hreint ehf.-ræstingar – frá 2010 10. Prentsmiðja Svansprent – frá 2010 11. Ísafoldarprentsmiðja – frá 2010 12. Nostra-ræstingar – frá 2010 13. AÞ-þrif-ræstingar – frá 2010 14. Háskólaprent – frá 2010 15. Hótel Rauðaskriða – frá 2011 16. Hótel Eldhestar – frá 2011 17. Prentmet ehf.- prentsmiðjan Reykjavík – frá 2011 SAUTJÁN MEÐ SVANSVOTTUN Nánari upplýsingar um Svansvottun og þau skilyrði sem þarf að uppfylla eru á www.svanurinn.is. FRÆÐSLUVEFUR UM GRÆNAN LÍFSSTÍL Umhverfisstofnun hefur sett á fót undirsíðu á heimasíðu sinni, www.ust.is, sem fjallar um grænan lífsstíl í tengslum við bílinn, garðinn, heimilið, snyrtivörur, börn og varasöm efni svo dæmi séu nefnd. Í heimilisflokknum er meðal annars hægt að kynna sér end- urvinnslu og atriði sem ætti að hafa í huga varðandi rafmagns- tæki, hreinsivörur, inniloft, raka og myglu. Í meðgöngu- og barnaflokknum er fjallað um fatnað, leiksvæði, leikföng og annað sem þeir sem vilja skapa börnum heilnæmar aðstæður ættu að hafa í huga. GRÆNIR SMOKKAR Umhverfisvæn sjónarmið má tileinka sér með ýmsum hætti, þar á meðal með kaupum á vistvænum smokkum. Talið er að á heimsvísu séu árlega notaðir í kringum tíu milljarðar smokka sem fara beinustu leið í ruslið. Smokkaframleiðendur hafa ákveðið að stemma stigu við mengun af völdum þessara hefðbundnu gúmmísmokka með framleiðslu á „náttúru- legum“ smokkum. Þá er hægt að velja fram yfir hina sem ekki brotna niður í náttúrunni. BYLTING Í TÖLVU SKJÁUM? Þýskir vísindamenn hafa þróað tækni sem þeir segja að geti stórbætt orkunýtingu á lífrænum díóðuljósgjöfum. Ef þeir ná að fullkomna tæknina munu í fram- tíðinni koma á markað hræódýrir tölvuskjáir sem eru mjög þunnir, eyða afskaplega litlu rafmagni en eru samt með góð myndgæði. Þetta eru svokall- aðir OLED-skjáir sem vísindamenn við Fraunhofer Institut leitast við að fullkomna. Þó eiga þeir eftir að yfirstíga nokkrar hindranir og finna réttu útfærsl- una.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.