Fréttablaðið - 20.07.2011, Side 34
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR26
sport@frettabladid.is
ANDRI MARTEINSSON var rekinn í gær sem þjálfari Víkings í Pepsi-deild karla. „Við erum að sjálfsögðu byrjaðir í
viðræðum við þjálfara. Það verður unnið hratt í kvöld og við eigum fastlega von á því að tilkynna nýjan þjálfara á morgun
(í dag),” sagði Björn Einarsson, formaður Knattspyrnudeildar Víkings í gær. „Þetta var mjög erfið ákvörðun en stjórnin og
Andri sjálfur voru sammála um það að félagið skipti öllu máli,” sagði Björn.
Vínlandsleið 6-8 S: 530 9400 www.totem.is
VERSLUN
Gaddaskór
Complete TFX Star
Léttir og góðir alhliða
gaddaskór.
Henta vel fyrir flestar
greinar í frjálsum íþróttum.
Stærðir: 35-45
Verð: 13.990 kr.
Usain Bolt
Fljótasti maður
heims, hleypur
alltaf í PUMA
Söluaðilar: Borgarsport Borgarnesi, Sportver Akureyri, Tákn Húsavík,
Íslensku Alparnir Egilsstöðum, Fjarðasport Neskaupstað,
Sport-X Hornafirði, Axel Ó Vestmannaeyjum.
KÖRFUBOLTI Peter Öqvist, lands-
liðsþjálfari karla í körfubolta,
hefur tilkynnt þá tólf leikmenn
sem munu taka þátt í Norður-
landamótinu í Sundsvall í Svíþjóð
sem hefst um helgina.
Jón Arnór Stefánsson er í liðinu
ásamt öllum atvinnumönnum
Íslands en Öqvist valdi líka tvo
nýliða í hópinn, Grindvíkinginn
Ólaf Ólafsson og hinn 19 ára
gamla Hauk Helga Pálsson.
Logi Gunnarsson er
aldursforseti liðsins, sá sem
hefur spilað flesta landsleiki (76)
og hefur skorað flest stig (966).
Hlynur Bæringsson mun taka við
fyrirliðabandinu af Magnúsi Þór
Gunnarssyni. - óój
Íslenski NM-hópurinn:
4 Brynjar Þór Björnsson, KR
9 landsleikir (þar af 0 í byrjunarliði), 29 stig
5 Haukur Helgi Pálsson, Maryland
Nýliði í A-landsliði karla
6 Jakob Sigurðarson, Sundsvall, Svíþjóð
44 landsleikir (24), 367 stig
7 Finnur Atli Magnússon, KR
2 landsleikir (0), 0 stig
8 Hlynur Bæringsson, Sundsvall, Svíþjóð
47 landsleikir (35), 442 stig
9 Jón Arnór Stefánsson, Granada, Spáni
50 landsleikir (39), 620 stig
10 Helgi Már Magnúss., Uppsala, Svíþjóð
62 landsleikir (24), 399 stig
11 Ólafur Ólafsson, Grindavík
Nýliði í A-landsliði karla
12 Pavel Ermolinskij, KR
14 landsleikir (11), 65 stig
13 Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík
16 landsleikir (1), 53 stig
14 Logi Gunnarsson, Solna, Svíþjóð
76 landsleikir (47), 966 stig
15 Sigurður Gunnar Þorsteinss., Keflavík
21 landsleikir (10), 87 stig
NM-hópur Íslands í körfu:
Hlynur fyrirliði
REYNSLUBOLTAR Jón Arnór, Logi og
Hlynur, nýr fyrirliði. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohn-
sen er orðinn leikmaður AEK í
Grikklandi. Það verður tíunda
atvinnumannafélagið hans á ferl-
inum og það fimmta síðan hann
yfirgaf Barcelona fyrir tveim-
ur árum. Eiður Smári skrifaði
undir tveggja ára samning í gær,
eignaði sér treyju númer 22 og
var kynntur til leiks á vel sóttum
blaðamannafundi í gær.
Eiður Smári byrjaði þó ekki vel
því hann mætti hálftíma of seint
á fundinn þar sem faðir hans,
Arnór Guðjohnsen, lenti í umferð-
arteppu í Aþenu. Eiður Smári
vildi ekki byrja fundinn án föður
síns og umboðsmanns. Eiður bað
þó alla viðstadda afsökunar á töf-
inni um leið og hann hóf fundinn.
Stavros Adamidis, hinn 37 ára
forseti AEK, brosti út að eyrum á
blaðamannafundinum um leið og
hann bauð Eið Smára velkominn.
„Það fylgir því mikill heiður og
ánægja að geta kynnt leikmann
eins og Guðjohnsen. Hann mun
koma með mikil gæði inn í okkar
lið og þetta er ein af stærstu leik-
mannakaupunum í sögu okkar
félags. Ég vil bjóða Guðjohnsen
velkominn í stærsta félagið í
Grikklandi. Þetta er stór dagur
fyrir AEK og fyrir gríska knatt-
spyrnu,“ sagði Adamidis.
Eiður Smári var á leiðinni í
West Ham þegar hann frétti
af freistandi tilboði frá Arnari
Grétars syni og félögum hjá AEK.
„Forsetinn og Arnar sann-
færðu mig um að þetta væri rétta
áskorunin fyrir mig. Ég vissi ekki
mikið um félagið fyrir fram en ég
vil fá að taka þátt í að skrifa sögu
AEK. Ég hreifst strax af metnaði
forsetans og áhuga hans á að fá
mig til félagsins,“ sagði Eiður
Smári á blaðamannafundin-
um. Hann sagðist ekki þekkja
mikið til leikmanna liðsins en
hafði heyrt að þetta væri góð
blanda af yngri og eldri leik-
mönnum.
„Ég lofa aldrei einhverju sem
ég get ekki staðið við. Ég lofa
því aðeins að klæðast AEK-bún-
ingnum stoltur og gera mitt allra
besta. Þetta er ný áskorun fyrir
mig. Ég veit ekki alveg hvað ég
er að fara út í,“ sagði Eiður Smári
sem var líka spurður út í form-
ið, sem hefur verið mikið á milli
tannanna á fólki eftir yfirlýs-
ingar Tony Pulis, stjóra Stoke, í
fyrra.
„Þeir sem efast um leikform
og líkamlegt ástand mitt fá svör
við þeim vangaveltum inni á vell-
inum. Það er ekki til neins að
svara því hér. Ég ætla að svara
því inni á vellinum. Ég ætla að
reyna að spila minn besta bolta
og ná árangri með AEK. Það var
mikilvægt fyrir AEK að félagið
skyldi vinna bikarinn í fyrra en
ég vil gera enn stærri hluti með
félaginu á þessu tímabili,“ sagði
Eiður Smári. Eiður viðurkenndi
að móttökurnar á flugvellinum
á mánudaginn hefðu haft mikil
áhrif á hann.
„Þegar ég lenti á flugvellinum
þá rann það strax upp fyrir mér
að væntingarnar til mín eru
gríðarlegar og það verður mikil
pressa á mér. Það er samt alltaf
pressa í fótbolta og við verðum
bara að vinna í því að nýta
hana rétt. Ég hef mikla reynslu
af því að spila fótbolta undir
pressu. Ég verð ánægður ef
stuðningsmennirnir fá tækifæri
til að fagna í lok tímabilsins,“
sagði Eiður Smári.
Eiður Smári er ekki alfarinn
til Grikklands þrátt fyrir að hafa
skrifað undir samning við AEK
í gær. Hann mun fljúga aftur
heim til Íslands til þess að ganga
frá sínum málum áður en hann
hittir nýju liðsfélagana. Eiður
Smári mun síðan hitta AEK-liðið
á fimmtudag eða föstudag en liðið
er í æfingaferð í Slóveníu.
ooj@frettabladid.is
Miklar væntingar gerðar til mín
„Þetta er stór dagur fyrir AEK og fyrir gríska knattspyrnu,“ sagði forseti AEK þegar hann tilkynnti Eið
Smára Guðjohnsen sem nýjan leikmann félagsins í gær. Eiður Smári mætti seint á blaðamannafundinn en
baðst afsökunar á því enda ekki gott að byrja í mínus hjá kröfuhörðum blaðamönnum í Grikklandi.
EIÐUR SMÁRI Hittir liðsfélaga sína fyrst í
æfingaferð í Slóveníu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Blikar fá tækifæri
klukkan 18.45 í kvöld til þess
að bjarga andlitinu og reyna
jafnframt að enda sjö leikja
taphrinu íslenskra liða í
forkeppni Meistaradeildarinnar.
Blikar fá norsku meistarana
í Rosenborg í heimsókn á
Kópavogsvöllinn en Rosenborg
vann fyrri leikinn í Þrándheimi
5-0 fyrir viku. Það var sjöunda
tap ríkjandi Íslandsmeistara í röð
í forkeppni Meistaradeildarinnar
en FH (2010 og 2009) og Valur
(2008) töpuðu öllum sínum
leikjum.
FH slapp síðast við tap þegar
liðið náði 1-1 jafntefli á útivelli
á móti Bate Borisov frá Hvíta-
Rússlandi 8. ágúst 2007. FH var
líka síðasta liðið til að vinna leik
í forkeppni Meistaradeildarinnar
þegar liðið vann 4-1 sigur á HB
frá Færeyjum 18. júlí 2007. Síðan
hafa Íslandsmeistarar leikið tíu
leiki í röð í Evrópukeppni án þess
að vinna. - óój
Forkeppni Meistaradeildar:
Sjö töp í röð
FYRIR STOLTIÐ Blikar þurfa að snúa
bökum saman í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Pepsi-deild kvenna
Grindavík-Valur 0-6
0-1 Dagný Brynjarsdóttir (30.), 0-2 Thelma Björk
Einarsdóttir (33.), 0-3 Kristín Ýr Bjarnadóttir (37.),
0-4 Caitlin Miskel (39.), 0-5 Rakel Logadóttir
(54.), 0-6 Kristín Ýr Bjarnadóttir (67.)
KR-Afturelding 0-3
0-1 Marcia Rosa Silva (18.), 0-2 Anna Garðarsd.
(26.), 0-3 Íris Dóra Snorradóttir (54.)
Fylkir-Stjarnan 1-4
0-1 Gunnhildur Yrsa Jónsd. (4.), 0-2 Gunnhildur
(15.) 0-3 Ashley Bares (17.), 0-4 Gunnhildur (73.),
1-4 Anna Björg Björnsdóttir (78.)
STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI:
Stjarnan 10 9 0 1 29-7 27
Valur 10 8 1 1 29-8 25
ÍBV 10 6 2 2 18-5 20
Þór/KA 10 6 1 3 20-21 19
1. deild karla
Þróttur-ÍA 0-6
Ólafur Valur Valdimarsson 2 (55., 61.), Arnar Már
Guðjónsson (27.), Ragnar Leósson (42.), Gary
Martin (50.), Einar Logi Einarsson (90.+3).
STAÐA EFSTU LIÐA Í DEILDINNI:
ÍA 13 12 1 0 39-5 37
Selfoss 12 8 1 3 25-12 25
Haukar 12 6 2 4 17-13 20
Þróttur R. 13 6 2 5 16-21 20
BÍ/Bolungarvík 12 6 1 5 17-22 19
ÚRSLITIN Í GÆR
FÓTBOLTI Stjörnukonur eru áfram
með tveggja stiga forskot á toppi
Pepsi-deildar kvenna eftir leiki
gærkvöldsins. Stjarnan og Valur,
toppliðin í Pepsi-deild kvenna,
unnu bæði leiki sína á útivelli en
Afturelding vann síðan 3-0 útisig-
ur á KR í þriðja leiknum. Þetta
var fyrsti deildarsigur Mosfells-
liðsins síðan í maí.
Gunnhildur Yrsa Jónsdótt-
ir kom Stjörnunni yfir strax á
fjórðu mínútu með skalla eftir
hornspyrnu Soffíu Gunnars-
dóttur og ellefu mínútum síðar
skoraði Gunnhildur aftur eftir
stoðsendingu frá Soffíu. Ashley
Bares skoraði síðan þriðja markið
tveimur mínútum síðar og Stjarn-
an var því komin í 3-0 eftir aðeins
17 mínútna leik. Gunnhildur inn-
siglaði þrennu sína 17 mínútum
fyrir leikslok með skalla eftir
hornspyrnu frá Ingu Birnu Frið-
jónsdóttur áður en Anna Björg
Björnsdóttir minnkaði muninn.
Valskonur komust aftur á sigur-
braut með 6-0 stórsigri á botnliði
Grindavíkur. Dagný Brynjars-
dóttir opnaði marka reikninginn
eftir hálftíma leik og í framhald-
inu skoraði Valsliðið þrjú mörk
til viðbótar á næstu tíu mínútum.
Eftir það voru úrslitin ráðin en
Valsliðið bætti við tveimur mörk-
um í seinni hálfleik. Kristín Ýr
Bjarnadóttir skoraði tvö marka
Vals.
Afturelding sótti þrjú stig á
KR-völlinn og vann þar sinn
fyrsta deildarsigur síðan í maí-
mánuði. Afturelding komst líka
upp fyrir KR og upp í 7. sætið
með þessum 3-0 sigri. Marcia
Rosa Silva skoraði fyrsta markið
og nýju stelpurnar í Mosfellsbæn-
um, Anna Garðarsdóttir (beint úr
aukaspyrnu) og Íris Dóra Snorra-
dóttir, skoruðu báðar í sínum
fyrsta leik með liðinu.
- óój
Stjarnan og Valur með góða sigra í Pepsi-deild kvenna:
Stjörnustúlkur eru
áfram á siglingu
ÞRENNA FYRIRLIÐANS Stjörnustelpur
fagna Gunnhildi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN