Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 38

Fréttablaðið - 20.07.2011, Page 38
20. júlí 2011 MIÐVIKUDAGUR30 SUNDLAUGIN MÍN Ég veit um fullt af liði hér á Íslandi sem ætlar að taka þátt. ERPUR EYVINDARSON RAPPARI „Náttúrulaugin í Selárdal er alveg yndisleg. Hún er það snyrtileg að það lítur út fyrir að einhver sé í vinnu þarna, en svo er ekki.“ Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður. Aðgengi ferðamanna að Detti- fossi verður lokað að austanverðu á fimmtudag og föstudag á meðan tökur á stórmyndinni Prómeþeusi fara þar fram. Opið verður fyrir aðgang vestan megin við fossinn. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum stóð til að loka aðgeng- inu bæði austan- og vestanmegin en hætt var við það. „Það var í raun farinn millivegurinn til að loka ekki alfarið fyrir umferð ferðamanna. Það var eftir mjög góða samvinnu við Samtök ferðaþjónustunnar og Vatnajökulsþjóðgarð sem það var ákveðið,“ segir Þór Kjartansson, starfsmaður framleiðslufyrirtækis- ins True North ,sem aðstoðar töku- lið Prómeþeusar. Hann bætir við að björgunarsveitarmenn verði á vakt vestan megin við fossinn til að leið- beina fólki á réttan stað svo það fái litið hinn glæsilega foss án þess að trufla tökurnar. Aðspurður segir Þór að tökulið Prómeþeus- ar, með leikstjórann Ridley Scott í farar- broddi, sé gríðarlega ánægt með dvölina á Íslandi og allt hafi gengið eins og í sögu. „Ísland hefur skart- að sínu fegursta og á eflaust eftir að vekja mikla lukku þegar það kemst á hvíta tjaldið,“ segir hann. Tökur á Prómeþeusi hófust 11. júlí við rætur Heklu og er áætlað að þær standi yfir í tvær vikur. Með helstu hlutverk fara Óskars- verðlaunaleikkonan Charlize Theron, X-Men-hetjan Micha- el Fassbender og Lisbeth Salander-leikkonan Noomi Rapace. - fb Scott takmarkar aðgengi að Dettifossi ÁNÆGÐUR Á ÍSLANDI Leik- stjórinn Ridley Scott er gríðarlega ánægð- ur með dvölina á Íslandi. DETTIFOSS LOKAÐUR AF Aðgengi að Dettifossi verður lokað að austanverðu á fimmtudag og föstudag. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þegar mér bauðst hlutverkið í Gulleyjunni var ég ekki lengi að stökkva á það,“ segir Þórunn Erna Clausen en þegar Frétta- blaðið náði af henni tali var hún stödd uppi í sumarbústað. „Það er gaman að segja frá því að Siggi {Sigurjónsson] hringdi í mig í hléi á einleiknum Ferðasögu Guðríðar og bauð mér hlutverkið. Það var búið að ganga vel að sýna einleikinn og þessi dagur varð því alveg extra góður eftir símtalið við Sigga.“ Eins og Fréttablaðið hefur greint frá skrifuðu félagarnir Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson leikgerðina að Gull- eyjunni upp úr skáldsögu Roberts Louis Stevenson og leikur Þór- unn þar við hlið Björns Jörundar Friðbjörnssonar, Þóru Karitasar Árnadóttur og Kjartans Guðjóns- sonar. Sýningin verður frumsýnd í byrjun næsta árs og er samstarf Leikfélags Akureyrar og Borgar- leikhússins. „Aðallega hlakka ég til að skylmast og berjast almenni- lega. Þegar ég var í skólanum var það eitt af mínum sérsviðum en ég hef voða lítið þurft að nota þá kunnáttu hingað til.“ Það er nóg fram undan hjá Þór- unni eftir fríið en hún er aðstoð- arleikstjóri í Galdrakarlinum í Oz, sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu í september. Einnig ætlar hún að hlaupa í skarðið fyrir Nínu Dögg Filipp- usdóttur í ferð Vesturports með leiksýninguna Faust til Kóreu í október. Sex mánuðir eru síðan eiginmaður Þórunnar, tónlistar- maðurinn Sigurjón Brink, lést og vill Þórunn meina að öll vinnan hjálpi henni í sorgarferlinu. „Ég er þannig týpa að ég þrífst best þegar ég hef nóg að gera. Einn- ig er ég fegin að hafa eitthvað að hlakka til og einbeita mér að á þessum erfiðu tímum.“ alfrun@frettabladid.is Gott að hafa nóg fyrir stafni SJÓRÆNINGI Þórunn Erna Clausen hefur í nógu að snúast á næstunni en hún bregður sér í hlutverk sjóræningja í sýningunni Gulleyjan í leikstjórn Sigurðar Sigur- jónssonar. 10.000 manns hafa séð Hárið. T ð ðrygg u þér mi a! HÁRIÐ SILFUR TUNGLIÐ „Algjör snilld“ Júlíus Júlíusson, Mbl. Miðasala á harid.is PI PA R\ PI PA R\ PA R\ IP A R\ PI PA R\ PA R\ PI PA R\ PA R\ A R\ IP A R\ PA R\ A R IP A R PA R AAPAAAIP A PI PAA PI PAIP AAPAAIP APAPPPIPIPIPI W A TB W A W A W A W A W A TB WWWWWWW TB W TB W TB W TB • SÍ A S ÍA S ÍASÍ AÍÍÍÍAÍÍSÍÍÍ SSS •• 19 1 11 91 1 11 91 11 19 1 11 19 1 11 19 11 1 11 9 66666666 Fim. 21. júlí kl. 19 Fim. 21. júlí POWERSÝNING! kl. 22 Fös. 22. júlí kl. 19 Mið. 27. júlí kl. 19 Fim. 28. júlí kl. 19 Fim. 4. ágúst kl. 19 Höfum b ætt við fleiri au kasýnin gum! UPPSEL T UPPSEL T ÖRFÁ SÆ TI „Keppnin er fyrst og fremst hugs- uð fyrir ungt fólk sem er að reyna að koma sér á framfæri,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson. Erpur situr í dómnefnd nor- rænu rappkeppninnar Rap It Up. Keppnin er opin öllum ungum röppurum á Norðurlöndum á aldrinum 14 til 22 ára, en eina skilyrðið er að þeir rappi á nor- rænni tungu. Rap It Up hófst hinn 11. maí og geta þátttakendur sent inn sitt framlag til 14. ágúst. Keppendur hlaða upp einföldum myndböndum á vefsíðuna www. rapitup.org, og sérstakur vinnu- hópur sér síðan um að velja átta bestu framlögin. Dóm- nefndin, með Erp innan- borðs, sér svo um að skera úr um sigur- vegara á úrslita- kvöldi í Stokk- hólmi hinn 30. september og fær sigurvegarinn 1.000 evrur að launum og tækifæri til að taka upp í fyrsta flokks hljóðveri í Stokk- hólmi. „Ég veit um fullt af liði hér á Íslandi sem ætlar að taka þátt,“ segir Erpur, sem oft er beð- inn um að dæma í söng- og tón- listarkeppnum hérlendis. Hann er því fljótur að koma auga á þá sem hafa hæfileika. „Ég heyri það mjög snemma ef það er eitthvað varið í liðið. Jafnvel þó að lista- maðurinn sé ekki fullmótaður, þá sér maður alveg ef það eru ein- hverjir hæfileikar þarna.“ Dómnefnd keppninnar er skip- uð einvalaliði norrænna hipphopp- ara og ber Erpur þeim vel söguna. „Salazar Brothers eru goðsagna- kenndasta rapphljómsveit Svía. Ég er búinn að fylgjast með þeim síðan ég var ellefu ára gamall. Joddski frá Noregi er mjög þekkt- ur og Per Vers frá Danmörku er algjört „legend“,“ segir Erpur, en fleiri norrænir rapparar sitja einnig í dómnefnd. Áhugasamir geta kynnt sér reglur keppninnar og fengið frek- ari upplýsingar á vefsíðunni www. rapitup.org. kristjana@frettabladid.is ERPUR EYVINDARSON: SÉ HÆFILEIKA SNEMMA Dæmir norræna rapparakeppni TIL Í SLAGINN Erpur Eyvindarson situr í dómnefnd norrænu rappkeppninnar Rap It Up. Sigurvegari keppninnar fær peningaverðlaun og tækifæri til að taka upp í fyrsta flokks hljóðveri í Stokkhólmi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ástarsambönd fárra Íslendinga vekja meiri athygli en þau sem glamúrgellan Vala Grand stofnar til. Það fór til að mynda ekki fram hjá neinum þegar hún byrjaði með hinum danska Nicolai Voll, sem rekur hugbúnaðarfyrirtæki í heima- landi sínu, fyrir nokkrum vikum. En eins og allt þá er hamingjan hverful og í gær kom í ljós að Vala og Voll eru hætt saman í bili. Vala segir sjálf að þau hafi ákveðið að taka sér „pásu”. Pressan birti svo stutt viðtal við Voll sem sagði að BMW-bíll sem hann á að hafa gefið Völu þegar þau voru saman sé ekki hennar. Það sé mis- skilningur því bíllinn sé hans. - afb FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.