Fréttablaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 22. ágúst 2011 15 Eins og meðalmennskan er nú útbreidd hér á landi og sýnist stundum allsráðandi þá má það merkilegt heita að það er stundum eins og vanti alveg meðalhóf í íslenskt samfélag, eitthvert milliregistur sem er að finna meðal fjölmennari þjóða en á erfitt uppdráttar hér: ein- hverja skynsemi. Íslendingum er stjórnað af fólki sem bannar kökubasara. Það gerðist í sumar að nokkr- ar konur á Akureyri hugðust efna til samkeppni um það hver bakaði bestu möffins-kökurnar. Voru konur hvattar til að senda inn muffur til að velja úr og átti síðan að setja þær á basar þar sem þær skyldu seldar við vægu verði. Allt átti þetta skemmti- lega framtak að verða til þess að styrkja eitthvert gott málefni þar nyrðra. Ónei! Engan svona möffins- ósóma – hér var ógn sem þurfti snarlega að bægja frá ef ekki átti illa að fara. Heilbrigðisyfir- völd bönnuðu stranglega að seld væru matvæli sem ekki væru framleidd í sérstökum og vott- uðum eldhúsum með sérstökum og vottuðum búnaði og þegar reynt var að tala við talsmann Heilbrigðiseftirlits Norðurlands svaraði hann fimlega með laga- speki og tilvísunum í paragröf, og gott ef hann vísaði ekki til jafnræðisreglu stjórnarskrár- innar sem jafnan reynist óbrigð- ult ráð fyrir lögfræðinga í vand- ræðum. Heimabökuð vandræði Nú er það kunnara en frá þurfi að segja að þótt svo ólíklega kunni að fara að Íslendingar gangi einhvern tímann í Evrópu- sambandið þá mun að minnsta kosti Jón Bjarnason ekki fylgja með í þann félagsskap – né hans ráðuneyti heldur munu þeir eflaust flýja til fjalla og stunda þaðan skæruhernað. Óneitan- lega hvarflar að manni að þessi ósveigjanlega og fáránlega regla um kökubasara í höfuð- stað Norður lands kunni að vera runnin undan rifjum manna í landbúnaðarráðuneyti til þess að telja þjóðinni trú um að svona sé nú einu sinni reglufarganið sem fylgi Evrópusambandinu. En það er sem sé ekki svo. G. Pétur Matthíasson, fyrrum fréttamaður á sjónvarpinu, tók sig til og grennslaðist einfald- lega fyrir um þetta og þá kom hið rétta á daginn, í ESB eru engar slíkar reglur – það eru íslenskir reglumenn sem banna kökukeppni, muffusölu á vegum góðgerðarfélaga, vöffluát utan heimilis, basara þar sem boðið er upp á eitthvað að snæða. Fólk sem hefur komið til Evr- ópu þekkir líka þá miklu hefð sem þar er fyrir ómiðstýrðri framleiðslu á mat þar sem alda- gamlar staðbundnar hefðir í matargerð fá að njóta sín. Því er ekki að heilsa hér á landi. Hér má ekki framleiða ost nema samkvæmt réttilega útfylltum og „vottuðum“ aðferð- um. Ekki má prófa sig áfram með og framleiða til sölu mat nema að undangenginni smá- smugulegri rannsókn þar sem gengið er út frá því sem gefnu að viðkomandi hyggist byrla almenningi ólyfjan. Á meðan förum við um landið og snæðum smurolíuborgara og kjúklingabita sem bragðast eins og djúpsteiktur pappi. Það er gott að banna Íslendingum er stjórnað af fólki sem bannar kökubasara. Hvers vegna? Það er náttúrlega hugsan- legt að það sé af ótta við sjúk- dóma og sýkla því að sóða skapur sé hér landlægur í eldhúsum landsmanna og almennt miklu meiri en tíðkast meðal þjóða á meginlandi Evrópu. Það kann að vera runnið undan rifjum þeirra sem vilja telja okkur trú um að við fáum öll gin- og klaufaveiki ef leyft verður að flytja inn kjöt frá útlöndum. Það kann líka að hugsast að bannið sé til komið vegna ótta- blandinnar virðingar embættis- manna í Gin- og Klaufaráðuneyt- inu fyrir þeim lagabókstaf sem þeim er gert að starfa eftir og daglegs ótta við að aðhafast eitt- hvað sem kunni að fara í bága við jafnræðisreglu stjórnar- skrárinnar. Svo má líka vera að það sé hreinlega gaman að banna, sé maður á annað borð í aðstöðu til þess. Þá finnur maður vald sitt. Þá ræður maður. Ekki er gott að segja. Hitt stendur eftir, að þetta bann við möffinsbakstri til að selja á basar er eitt af þessum íslensk- um skringibönnum sem heims- fræg hafa orðið: í flokki með bjórbanninu og hundabanninu sem heimurinn er enn að tala um. Hingað mun þyrpast fólk til að sjá með eigin augum þjóðina sem bannar kökubasara, hunda og bjór. Það er sem sé stundum eins og vanti hér eitthvert meðal- hóf. Það skal ýmist alfrjálst eða alkúgað. Við bjuggum hér við heimsmet í bankafrelsi um hríð, sem fólst í því að banka- stjórar máttu búa til peninga að vild – og greiða sér í laun meiri- partinn af því – en á meðan er fólki bannað að selja vöfflur til styrktar fyrir sjötta flokk í blaki. AF NETINU Ef nauðsyn ber til Gef ekki túskilding fyrir uppkast stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þar sjást fingraför lagatækna. Orðalagið „ef nauðsyn ber til” gefur valdhöfum umboð til að víkja frá grunngildum stjórnarskrár. Tjáningarfrelsi má hefta, „ef nauð- syn ber til”, sömuleiðis upplýsingafrelsi og fundafrelsi. Skráin heftir ekki grunnmúraða leyndarhyggju. Kosningareglur eru flóknar að hætti Þorkels Helgasonar, svo sem „kjördæmavarið landskjör”. Atkvæði greitt Katrínu í Reykjavík lendir hjá Ásmundi Einari í Dölunum. Þjóð- kirkjan hefur óbreytta stöðu. Ekki tekur því að skipta um stjórnarskrá upp á þessi býti. jonas.is Jónas Kristjánsson Hitt stendur eftir, að þetta bann við möffinsbakstri til að selja á basar er eitt af þessum íslensku skringibönnum sem heimsfræg hafa orðið: í flokki með bjórbanninu og hundabanninu sem heimurinn er enn að tala um. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur Í DAG Möffins-ógnin Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup staðfestir vinsældir Fréttablaðsins. Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri en lesa næsta dagblað þar á eftir. Fólkið í landinu les Fréttablaðið Allt sem þú þarft... Prentmiðlakönnun Capacent Gallup. Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.