Fréttablaðið - 22.08.2011, Blaðsíða 6
22. ágúst 2011 MÁNUDAGUR6
LÍBÍA Uppreisnarmenn komu inn
í miðborg Trípólí, höfuðborgar
Líbíu, í gærkvöldi. Þeir mættu
ekki mikilli mótstöðu en þó voru
blóðugir bardagar sagðir fara
fram á götum borgarinnar þegar
Fréttablaðið fór í prentun. Upp-
reisnarmönnum var fagnað mikið
þegar þeir nálguðust miðborgina.
Óstaðfestar fregnir hermdu í
gærkvöldi að synir Gaddafís hefðu
verið teknir höndum. Uppreisnar-
menn hafa undanfarið nálgast
borgina bæði úr vestri og austri,
með hjálp frá NATO, sem seg-
ist aðeins gegna því hlutverki að
vernda óbreytta borgara. Óstað-
festar fregnir herma að hópur
uppreisnarmanna hafi komist inn
í Trípólí af sjó á laugardag og lent
í átökum við stuðningsmenn Gadd-
afís. Í gærkvöldi sögðu stjórnvöld
að 1.300 manns hið minnsta hefðu
látist frá því á laugardagskvöld og
meira en fimm þúsund hefðu særst.
Fréttir bárust af skot bardögum
austan, sunnan og vestan við mið-
borgina auk sprenginga. Skotbar-
dagar áttu sér meðal annars stað
við hótel þar sem erlendir frétta-
menn dveljast. Starfsfólk hótelsins
er sagt hafa lagt á flótta og eru um
tuttugu fréttamenn þar einir.
Ástandið breyttist á nokkrum
klukkustundum í gærkvöldi, en
fyrr um daginn höfðu uppreisnar-
menn þurft að hörfa til baka undan
árásum herliðs Gaddafís. Þeir
höfðu náð hverjum bænum á fætur
öðrum á sitt vald fram að því.
Talsmaður Líbíustjórnar ósk-
aði í gær eftir tafarlausu vopna-
hléi. Hann sagði fólk tekið af lífi
í mörgum borgum af uppreisnar-
mönnunum og NATO. Múammar
Gaddafí hélt síðan sjónvarpsávarp
í ríkissjónvarpi Líbíu nokkru síðar
og kvaðst þá ekki ætla að yfirgefa
borgina. Hann hvatti fjölskyldur í
Trípólí til að grípa til vopna. „Nú
er tímabært að berjast fyrir stjórn-
málaskoðanir ykkar, fyrir olíuna
ykkar og fyrir landið ykkar,“ sagði
hann. Stuðningsmenn hans segja
að í borginni séu tugir þúsunda til-
búnir að verja einræðisherrann.
Komið er að lokum einræðis-
stjórnarinnar, sagði Oana Lung-
escu, talskona NATO, í gær. Hún
sagði þrjá háttsetta embættis-
menn hafa snúið baki við Gaddafí
á síðustu dögum og það svæði sem
hann stjórnaði minnkaði sífellt.
„Því fyrr sem Gaddafí gerir sér
grein fyrir því að hann getur ekki
sigrað, þeim mun betra verður
þetta fyrir alla.“
thorunn@frettabladid.is
EFNAHAGSMÁL „Það er grafalvarlegt
mál þegar hagfræðiprófessor sem
ætlar sér að gagnrýna útreikninga
biður ekki um útreikninga og skýr-
ingar frá samtökunum sjálfum,“
segir Andrea Ólafsdóttir, formaður
Hagsmunasamtaka heimilanna.
Þórólfur Matthíasson, deildar-
forseti hagfræðideildar Háskóla
Íslands, gerði í laugardagsblaði
Fréttablaðsins athugasemdir við
útreikninga samtakanna á verð-
tryggingu lána.
Hagsmunasamtökin bíða nú nið-
urstöðu umboðsmanns Alþingis
vegna kvörtunar samtakanna. Þau
vilja meina að reglur Seðlabanka
Íslands um að leggja skuli verð-
tryggingu ofan á höfuðstól lána
standist ekki lög.
Andrea segir Þórólf ekki vera
í aðstöðu til að gagnrýna tölurn-
ar, þar sem hann styðjist ekki við
tölur sem samtökin hafi lagt fram.
Þórólfur hafi
skoðað útreikn-
inga sem lög-
fræðingurinn,
sem skrifaði
greinargerðina
sem um er rætt,
hafi verið að
leika sér með í
vinnuskjali.
„Við teljum
því að Þórólfur
sé ekki að bera saman raunveruleg
lán, sem við höfum verið að bera
saman, og mismuninn á heildar-
kostnaði lána,“ segir Andrea.
Hún bætir við að samtökin telji
vilja löggjafans með upphaflegu
löggjöfinni teikna upp mynd af
útreikningum sem séu eins og þeir
sem í dag eru notaðir til að reikna
óverðtryggð lán.
„Óverðtryggð lán er í raun rang-
nefni því með þeim er verðbólgan
tekin inn í vextina og staðgreidd.
Þetta eru í raun verðtryggð lán
þannig að upphaflegt lán er verð-
bætt í þeirri mynd sem löggjaf-
inn ætlar með verðtryggingu, með
breytilegum vöxtum sem eru stað-
greiddir. Framkvæmdin eins og
hún er í dag á verðtryggðum lánum
er óheimil að okkar mati, og um
það snýst kæran til Umboðsmanns
Alþingis,“ segir Andrea. - kg
Því fyrr sem Gaddafí
gerir sér grein fyrir
því að hann getur ekki sigrað,
þeim mun betra verður þetta
fyrir alla.
OANA LUNGESCU
TALSKONA NATO
Við teljum því að
Þórólfur sé ekki að
bera saman raunveruleg lán,
sem við höfum verið að bera
saman, og mismuninn á
heildarkostnaði lána.
ANDREA ÓLAFSDÓTTIR
FORMAÐUR HAGSMUNASAMTAKA
HEIMILANNA
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
7
3
7
0
NÝ
BRAGÐTEGUND– BÉARNAISE
NÝ
BRAGÐTEGUND– SÍTRÓNA OG
KARRÍ
Eiga kröfur leikskólakennara
rétt á sér?
Já 83,7%
Nei 16,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á Landspítalinn að verða
undanþeginn niðurskurði á
næstu fjárlögum?
Segðu skoðun þína á visir.is
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna vísar gagnrýni prófessors á bug:
Ekki í aðstöðu til að gagnrýna
ANDREA
ÓLAFSDÓTTIR
NOREGUR „Við höfum misst 77 mann-
eskjur sem vildu eyða lífi sínu í að
bæta samfélagið sem við erum
öll hluti af.“ Þetta sagði Haraldur
Noregs konungur í gær á minningar-
athöfn um fórnarlömb hryðjuverk-
anna í Noregi fyrir mánuði.
Tæplega sjö þúsund manns voru
viðstaddir minningarathöfnina, þar
á meðal þjóðhöfðingjar og forsætis-
ráðherrar Norðurlandaríkjanna.
Dagurinn var opinber sorgardagur
í landinu.
Konungurinn komst við í ræðu
sinni á athöfninni. Hann sagðist
meðal annars vilja þakka öllum
sem komið hefðu nálægt hjálpar-
starfi í kjölfar árásanna, og þakk-
aði forsætisráðherranum Jens
Stoltenberg sérstaklega fyrir. „Ég
held fast í trúna á að frelsi sé sterk-
ara en ótti. Ég held fast í trúna á
opið norskt lýðræði og samfélag.“
„Saman sigruðum við hatrið,“
sagði forsætisráðherrann í ræðu
sinni. Hann hvatti Norðmenn til
að líta til hver með öðrum og vera
á varðbergi gagnvart fordómum.
Að ræðunni lokinni stóðu við-
staddir upp fyrir honum. Á staðn-
um voru þeir sem lifðu árásirnar
af, aðstandendur fórnarlambanna,
fólk sem vann að björgunar störfum
og embættis- og stjórnmálamenn.
- þeb
Jens Stoltenberg var meðal ræðumanna á minningarathöfn um fórnarlömb:
Sigruðu hatrið í sameiningu
ATHÖFNIN Jens Stoltenberg hélt ræðu
ásamt nokkrum öðrum. Þá voru nöfn
hinna látnu lesin upp og fjölmörg
tónlistar atriði hljómuðu. NORDICPHOTOS/AFP
DANMÖRK Lars Barfoed, dóms-
málaráðherra Danmerkur,
segir ekki tilefni til sérstaks
átaks gegn ölvun við hjólreiðar,
þar sem ekki sé um að ræða
„sannkallað umferðaröryggis-
vandamál“.
Nýleg könnun sýnir að 40
prósent Dana hafa hjólað undir
áhrifum áfengis síðasta árið.
Barfoed sagði að í þeim til-
fellum sem hjólreiðafólk væri
gripið ölvað væri því yfirleitt ráð-
lagt að teyma hjólið í stað þess að
sektum væri beitt. - þj
Dómsmálaráðherra Dana:
Ekki alvarlegt
að hjóla fullur
HEIM Nemendur í Irene-Wakonda
skólanum mæta ekki lengur í skólann á
föstudögum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BANDARÍKIN Irene-Wakonda
grunnskólinn í Suður-Dakota er
einn af mörgum skólum í Banda-
ríkjunum sem hafa stytt skóla-
vikuna um einn dag. Þetta er
liður í aðgerðum skólayfirvalda
til að mæta niðurskurði.
Í haust er talið að um fjórð-
ungur allra grunnskóla í Suður-
Dakota munu aðeins starfa fjóra
daga í viku. Yfirvöld telja þessa
leið vænlegasta í niðurskurðinum
en foreldrar skólabarna óttast að
þetta muni bitna á börnunum.
„Auðvitað mun þetta bitna
á börnunum. Þau missa heilan
skóladag,“ var haft eftir einu for-
eldri. - sm
Skera niður í Bandaríkjunum:
Stytta skólavik-
una um dag
VÍSINDI Hinar hættulegu E-töfl-
ur geta nýst í baráttunni gegn
sumum tegundum krabbameins í
blóði, ef vísindamönnum tekst að
gera þær öflugri.
Árið 2006 var sýnt fram á að E-
töflur og sum þunglyndislyf gætu
drepið krabbameinsfrumur en
gallinn var sá að nota þurfti þær
í svo stórum skömmtum að með-
ferðin yrði jafnframt banvæn.
Vísindamenn við háskóla í Eng-
landi og Ástralíu sjá nú fram á
að geta gert töflurnar öflugri,
svo ekki þurfi að nota jafn stóra
skammta. - gb
Nýtt vopn gegn krabbameini:
E-töflur gætu
læknað krabba
Uppreisnarmönnum fagn-
að við komuna til Trípólí
Uppreisnarmenn höfðu náð hlutum Trípólí, höfuðborgar Líbíu, á sitt vald í gærkvöldi. Stjórnvöld segja að
1.300 hafi látist í átökum í borginni frá því á laugardagskvöld. Synir Gaddafís sagðir handteknir.
UPPREISNARMENN Sprengingar og skothríðir heyrðust víða um Trípólí í gærkvöldi. Þessir uppreisnarmenn voru á leið til Gada-
yem, vestan við borgina, í gærdag. NORDICPHOTOS/AFP
KJÖRKASSINN