Fréttablaðið - 23.08.2011, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 23. ágúst 2011 15
Til að hægt sé að svara því hvort við séum hvalveiðiþjóð þurf-
um við fyrst að skilgreina hug-
takið hvalveiðiþjóð. Við lítum hik-
laust á okkur sem fiskveiðiþjóð og
vart nokkur ágreiningur um það.
Hlutfallslega er ekkert þjóðríki
eins háð hafinu með afkomu sína
og hefur það að sjálfsögðu mótað
afstöðu Íslendinga til hafsins og
nýtingu þess. Litið er á nýtingar-
réttinn á auðlindum sjávar sem
nánast heilagan rétt þjóðarinnar.
Tungutak þjóðar innar og hugtaka-
notkun hefur endurspeglað þetta.
Þegar hvalveiðar hófust við
Ísland um 1600, eftir að Bask-
ar höfðu uppgötvað Íslandsmið á
leið sinni norður að Svalbarða, og
í þrjú hundruð ár þaðan í frá, til
1900 stunduðu Íslendingar engar
hvalveiðar í atvinnuskyni. Danir
komu á eftir Böskum ásamt Hol-
lendingum. Svo komu Frakk-
ar og síðar settu Norðmenn upp
stórar hvalstöðvar á Vestfjörð-
um. Þetta voru því erlendar stór-
þjóðir sem stunduðu hér stór-
felldar hval veiðar en Íslendingar
máttu heppnir heita ef þeir fengu
íhlaupavinnu á planinu. Undan-
tekningin frá þessu voru tilraunir
nokkurra vestfirskra bænda að
hefja veiðar á hrefnu og andar-
nefjum en þær tilraunir voru
endasleppar.
Strax 1866 var farið að gæta
mikillar óánægju meðal lands-
manna með hvalveiðar útlend-
inga hér. Þá og áratugina á eftir
voru haldnir fjölmargir borgara-
fundir allt frá Siglufirði til Eski-
fjarðar þar sem krafist var tak-
markana á veiðarnar og jafnvel
hvalveiðibanns. Athygli vekur að
bæjarstjórn Ísafjarðar lét ekki sitt
eftir liggja en lýsti formlega yfir
áhyggjum sínum vegna ofveiði
á hvölum við landið. Megin-
áhyggjurnar snérust um mengun
og ólykt sem stafaði frá hval-
stöðvunum, arðrán og slæm áhrif
veiðanna á fiskgengd. Í kringum
aldamótin 1900 voru höfuð stöðvar
hvalveiðifyrirtækja sem hér gerðu
út í borgum eins og Ósló, Ham-
borg, Leith og New York en engar
í Reykjavík.
1913 ákváðu íslensk stjórn-
völd einhliða að setja á algert
hvalveiði bann við Ísland þrátt
fyrir mikinn þrýsting og mótmæli
frá Norðmönnum sem studd voru
af Dönum. Nær víst má telja að
ákvörðunin hafi verið liður í sjálf-
stæðisbaráttu Íslendinga og að
með henni hafi heima stjórnin vilj-
að sýna hvað í henni bjó. Í fimm-
tán ár, allt til 1928, stóðu íslensk
stjórnvöld gegn þrýstingi erlendra
ríkja um að hefja hvalveiðar að
nýju. Það ár snéru fjögur verk-
smiðjuskip Norðmanna að nýju á
Íslandsmið en rétt eins og Frakkar
nokkrum árum áður gripu Norð-
menn í tómt í leit sinni að Íslands-
sléttbaki. Til að byrja með höfðu
veiðarnar beinst að þessum hæg-
fara hval sem auðvelt var að skutla
en þegar hér var komið sögu var
hann horfinn af Íslandsmiðum
og hefur nær ekkert sést síðan.
Hvalveiðar lágu að mestu niðri
á stríðs árunum en það var ekki
fyrr en 1948 með stofnun Hvals
hf. að atvinnu veiðar undir stjórn
Íslendinga hófust. Þær stóðu i 41
ár þar til alþjóðlegt hvalveiðibann
tók gildi við Ísland. Þá höfðu þjóð-
ir heims komist að þeirri niður-
stöðu að hætta skyldi alfarið
veiðum og milliríkja viðskiptum
með hvalaafurðir í hagnaðar-
skyni. Ákvörðunin sem tekin var
af Alþjóða hvalveiðiráðinu, sem
Íslendingar voru meðal stofn-
aðila að, var útgerðarmönnum og
stjórnvöldum hér á landi ekki að
skapi og þegar Íslendingar gengu
að nýju í Alþjóðahvalveiðiráðið
var það gert með fyrirvara um
réttinn til hvalveiða í atvinnu-
skyni.
Í fjögur hundruð ára sögu
hvalveiða við landið spannar
samanlagður tími iðnaðarveiða
Íslendinga aðeins tæplega fimm-
tíu ár. Aðrar þjóðir gerðu hér út
á hval í nærfellt 350 ár. Á síðustu
öld náðu gegndarlausar hval veiðar
hámarki og leiddu til víðtækra
friðunaraðgerða sem langflestar
þjóðir heims styðja. Íslendingar
voru sennilega fyrstir þjóða til
að ákveða hvalveiðibann og setja
þannig markvert og framsýnt for-
dæmi. Erum við hvalveiðiþjóð?
Varla miðað við söguna eða þá
staðreynd að aðeins örfá árstörf
eru í þessari deyjandi atvinnu-
grein.
Á síðustu öld náðu gegndarlausar hval-
veiðar hámarki og leiddu til víðtækra
friðunaraðgerða sem langflestar þjóðir
heims styðja.
Erum við hvalveiðiþjóð?
Eftirfarandi símtal fór líklega fram skömmu eftir að hin
glæsilega norræna bankavelferðar-
stjórn tók við völdum.
SFF: Sæll, er ekki öruggt að við
fáum íbúðalánin til okkar og lán til
lítilla fyrirtækja? Við lánuðum eig-
endum okkar, tengdum aðilum og
stórfyrirtækjum gríðar legar upp-
hæðir og yfirleitt án veða og þetta
verðum við auðvitað að afskrifa og
afhenda sömu aðilum aftur, skuld-
laust. Ef við fáum ekki íbúðalánin
þá höfum við engin lán til að inn-
heimta.
X: Jú, en þarf ekki að afskrifa
eitthvað af þeim líka?
SFF: Nei, nei, vinur minn. Þið
segið bara að það kosti skatt-
borgarana svo mikið, þá þegja
allir. Ef það verða einhver meiri-
háttar mótmæli þá getum við sett
upp eitthvert leikrit til bjarg-
ar heimilunum en fáum lífeyris-
sjóðina aftur með okkur í dæmið.
Við plötuðum þá alveg ægilega í
gjaldmiðlaskiptasamningunum.
Þeir mega ekki afskrifa neitt og
við segjumst bara vilja afskrifa
fullt ef lífeyrissjóðirnir gera það
líka og helst Íbúðalánasjóður og
Lánasjóður námsmanna líka.
X: Ha, Íbúðalánasjóður og LÍN
líka? En það kostar okkur peninga.
SFF: Hættu þessu væli, skilur
þú ekki hvað ég er að segja. Eng-
inn okkar þarf að afskrifa neitt
nema það sem verður fullreynt að
innheimta og viðkomandi er orðinn
gjaldþrota. Allt hitt verður auð-
vitað innheimt í botn og rúmlega
það. Þið sjáið síðan um að halda
stýrivöxtum háum þannig að við
fáum nóg af rjóma með. Það fatt-
ar enginn að stýrivextir eru miklu
lægri allt í kringum okkur.
X: Þannig að við þurfum ekkert
að borga?
SFF: Akkúrat, þetta kostar
ykkur ekkert. Það eina sem þið
þurfið að gera er að skera duglega
niður heilbrigðisþjónustu, lög-
gæslu og menntastofnanir. Ef þú
getur látið reka nokkra lækna og
kennara þá erum við tilbúnir að
láta reka fáeina láglauna þjónustu-
fulltrúa til að sýna lit. Við gætum
þá jafnvel hækkað launin okkar í
leiðinni til að viðhalda ofurlaun-
unum.
X: En hvað eiga allir þessir
starfsmenn í bönkunum að starfa
við?
SFF: Við látum þá bara leika
sér með nokkur gjaldþrota fyrir-
tæki og stunda harða samkeppni
við þau fyrirtæki sem ekki fóru
á hausinn í hruninu, athugum
hvað þau þrauka lengi áður en þau
lenda hjá okkur líka. Aðalatriðið
er að partíið geti haldið áfram hjá
okkur.
X: Öh, en erlendu ólöglegu lánin
sem þið veittuð fólki og tókuð svo
stöðu gegn krónunni?
SFF: Ef svo ólíklega vill til að
dómarar landsins geti dæmt rétt
þá ætla Ingvi Örn og Árni Páll að
sjá um það fyrir okkur með því að
breyta vaxtalögunum afturvirkt.
Við látum Gylfa bara í frontinn
fyrst en hendum honum svo aftur
í kennsluna. Álfheiður tekur svo
frumvarpið og keyrir það út úr
efnahags- og skattanefnd, hún vill
ekki að kallinn sinn missi vinnuna
hjá Lýsingu. Við tökum bara dæmi
um lán sem er ekki til og látum
það lækka mikið. Það samþykkja
það allir og svo hækkum við bara
vextina og búmm, málið er dautt.
X: Já en …
SFF: Flott, ég vissi alltaf að
þú værir okkar maður þó að þú
öskraðir þig stundum rauðan í
þinginu gegn okkur hérna í denn.
Það var flott hjá þér og nú fattar
enginn neitt. Haltu svo Lilju fyrir
utan þetta. Bæ.
Aðgerðir til bjargar gjald-
þrota fjármálafyrirtækjum
Fjármál
Hákon Hrafn
Sigurðsson
dósent við Háskóla
Íslands
Hvalveiðar
Sigursteinn
Másson
fulltrúi IFAW á Íslandi
Smiðsbúð 6 210 Garðabæ Sími 564 5040 w
w
w
.h
ir
zl
an
.i
s
SKRIFSTOFUHÚSGÖGN
á miklu betra verði !
Hæðarstillanleg
FRÓÐLEIKUR Á FIMMTUDÖGUM
Skattfrádráttur vegna
nýsköpunar – leynist
nýsköpun í þínu félagi?
25. ágúst | kl. 8:30 | Borgartúni 27
Fjallað verður um reglur er varða
skattaívilnanir vegna nýsköpunar og
framsetningu á þeim í skattframtölum.
Skráning og nánari
upplýsingar á kpmg.is