Fréttablaðið - 30.09.2011, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sími: 512 5000
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl - júní 2011
RISAlagersala
Forlagsins
er á Fiskislóð 39
Opið alla daga kl. 10–19,
fimmtudaga kl. 10–21
Yfir
1000
titlar90
%
afslát
tur
allt a
ð
12 DAGA HIGH RISK CPO
LÍFVARÐA-
NÁMSKEIÐ
17. - 30. OKTÓBER 2011
LÆRÐU BEITINGU SKOT-
VOPNA, ÁHÆTTUAKSTUR,
SJÁLFSVÖRN OFL.
OVSKOLI.IS/LIFVARSLA
Föstudagur
skoðun 18
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Outlet
Föstudagur
30. september 2011
228. tölublað 11. árgangur
OUTLETFÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 2011 Kynningarblaðbuxurskórjakkarkjólarfylgihlutir
jakkaföt
V ið erum stolt af því að bjóða upp á fallegar og vandað-ar vörur á afslætti sem er að lágmarki 30% en getur farið upp í 80%,“ segir Hlíf Sævars-dóttir verslunarstjóri og röltir með blaðamanni um bjarta og vel skipulagða verslunina. „Við reyn-um að hlusta eftir rödd viðskipta-vina okkar og leitum að þeim vörum sem þeir óska eftir, en allt-af á lægra verði en hinn almenni markaður býður upp á.“En hvaða vörumerki býður Korpu-outlet upp á? „Við bjóð-um upp á fjölmörg vörumerki frá verslunum Zöru, Debenhams, Útilífs og Hagkaupa en einnig erum við með Levi ś, Champion, Nike, Didriksons, Arena, Puma, Oroblu og Sanpellegrino svo eitt-hvað sé nefnt. Í þessum merkj-um erum við með úrval af barna-fötum, herrafötum og dömuföt-um, þannig að fjölskyldan getur dressað sig upp fyrir lítinn pen-ing,“ segir Hlíf og brosir.
Innkaupaferðir til hátískuborgaEn Hlíf fer líka reglulega í inn-kaupaferðir til helstu stórborga hátískunnar og kaupir inn fyrir Korpu-outlet. „Við höfum farið til London á kaupsýningar og núna síðast fórum við til Parísar. Þar keyptum við mjög skemmti-leg barnaföt og herraföt sem fara karlmönnum sérstaklega vel, enda í nýjustu tísku. Þá eru fylgi-hlutir alltaf vinsælir á haustin, enda þurfum við þá oft á húfum, hönskum, sokkum og skóm að halda og við birgðum Korpu-outlet svo sannarlega upp af því. Einnig bjóðum við upp á úrval af
mjög fallegum og sígildum skart-gripum sem fara vel með haust-tískunni. Þetta er sá hluti outlets-ins sem er eins og í almennum verslunum, en samt alltaf á lægra verði en sambærilegar vörur á þeim markaði.
Hvaða verður í tísku núna í vetur og hvaða litir? „Svartur er vitaskuld alltaf vinsæll á veturna en sá litur sem verður hvað heit-astur er karrígulur. Undanfarin ár höfum við séð mikið af dýra-mynstrum eins og hléb
nema hvað snákamynstrið mun koma sterkt inn. Þá eru leggings að fjara út en víðari buxur að koma í staðinn. Þá verða harem-buxur inni, fylltir hælar, stuttir, þröngir leðurjakkar og hring-treflar svo eitthvað sé nefnt,“ segir Hlíf og auðvitað fæst þetta allt í Korpuoutlet.
Útsölur og tilboðÞað er ekki nóg með að Korpu-outlet bjóði miki
„tax free“ daga. „Við erum alltaf á tánum fyrir viðskiptavini okkar. Við viljum að þeir fái sem mest fyrir sem minnst. Við auglýsum gjarnan þessa daga en erum einn-ig með Facebook-síðu þar sem við hvetjum fólk til þess að skrá sig til þess, einmitt, að fylgjast með þessum sérstöku afsláttum og tilboðum. Þar setjum við einn-ig fleiri upplýsingar inn einþeg
Korpu-outlet er stærsta outlet landsinsKorpu-outlet við Korputorg er stærsti markaður landsins með fjölbreytt vöruúrval fyrir alla fjölskylduna. Það býður upp á
vörur sem koma úr verslunum, vörur sem þar eru í umboðssölu og svo glænýjar vörur frá London og París.
Hlíf fer líka reglulega í innkaupaferðir til helstu stórborga hátískunnar og kaupir inn fyrir Korpuoutlet. „Við höfum farið til London á
kaupsýningar og núna síðast fórum við til Parísar.”
MYND/ANTON
ÓTRÚLEGT VERÐ Á LEVI´SGALLABUXUM
Korpu-outlet flytur sjálft inn Levi´s gallabuxur frá Bandaríkj-unum og getur því boðið þær á 9.995 kr. og 11.995 kr. en þetta er með lægsta verði sem þekkist á Íslandi. Buxurnar hafa verið einstaklega vinsælar hjá karl-mönnum, enda fást öll nýjustu og flottustu sniðin. Þá hefur Champion-sportfatnaðurinn, sem hæfir karlmönnum en ekki síður konum og börnum, verið rifinn út en sem betur fer er von á stórri sendingu í næstu viku.
GERSEMAR Í SKÓMSkóúrvalið er mikið í verslun Korpu-outlet og langir rekkar af skóm, bæði á börn, herra og konur. Konurnar hafa einstaklega gaman af því að skoða úrvalið ogsérstakl
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Atvinnu- og nýsköpunarhelgi verður haldin á Suðurnesjum
um helgina. Tilgangurinn er að stuðla að því að góðar hugmyndir
verði að veruleika. Þátttakendur mæta á staðinn, með eða án
hugmyndar, og fá innblástur og leiðsögn við að byggja upp við-
skiptahugmynd. Viðburðurinn fer fram í húsnæði Keilis á Ásbrú og
hefst í dag klukkan 17.30. Skráning er hafin á anh.is
M ads Holm, verkefna-stjóri hjá Norræna húsinu, er í forsvari fyrir kokkakeppni sem stendur yfir á Norðurlöndun-um. Keppnin er hugsuð fyrir ungt áhugafólk um matreiðslu á aldrin-um 18 til 24 en markmiðið hennarer eðal annars að kynmatar
Matur sem leyn r á sér
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1 lifur
4 nýru
Hreinsið nýrun oglif i
1 lítil eða hálfstór rófa3-4 gulrætur1 blaðl
GRILLAÐ LAMBANÝRA OG LIFUR
FYRIR 4
Mads Holm finnst gott að grilla innmat. Hann er í forsvari fyrir norræna kokkakeppni.
föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 30. september 2011
HILDUR
HAFSTEIN
Uppgötvaði
lækningamátt steina
● UPPSKRIFT AÐ
NÁTTÚRULEGRI FEGURÐ
SAMFÉLAGSMÁL Foreldrar á Akra-
nesi hafa ekki sent dóttur sína í
skólann í rúma viku af ótta við að
þar muni hún hitta unglingspilt
sem nýverið kom í ljós að hefur
brotið gegn henni kynferðislega.
Telpan stundar nám í einum af
yngri bekkjum annars grunnskóla
bæjarins og drengurinn er í ung-
lingadeild sama skóla.
Telpan greindi foreldrum
sínum frá brotunum í janúar. Þau
áttu sér stað þegar hún var á síð-
asta ári í leikskóla og drengurinn
var tólf ára. Telpan var þá tíður
gestur á heimili drengsins.
Foreldrarnir fóru með málið
til lögreglu, sem tilkynnti það
til barnaverndaryfirvalda. Bæði
telpan og drengurinn hafa síðan
hlotið viðhlítandi aðstoð.
Foreldrarnir hafa síðan reynt
að fá skóla- og bæjaryfirvöld til að
koma í veg fyrir samgang dóttur
sinnar við piltinn, en án árangurs.
Í stöðumati Barnahúss vegna
telpunnar frá í ágúst segir að
gerðar hafi verið viðeigandi
ráðstafanir innan skólans til að
tryggja að þau hittust ekki, til
dæmis í frímínútum og í matsal,
en foreldrarnir telja skólann hafa
svikið það loforð og leiðir þeirra
liggi reglulega saman. Þetta valdi
stúlkunni mikilli vanlíðan og því
hafi þau ákveðið að taka telpuna
úr skóla þar til viðunandi lausn
fyndist.
Sálfræðingur Barnahúss segist
í svari til foreldranna hafa verið
bjartsýnn á það í byrjun að ekki
þyrfti að aðskilja börnin. „En
eftir því sem liðið hefur á með-
ferð stúlkunnar hefur skoðun
mín hvað það varðar tekið mikl-
um breytingum þar sem [hún]
sýnir alvarleg kvíða- og streitu-
einkenni sem frekar hafa aukist
en hitt undanfarið.“
Skóla- og bæjaryfirvöld bera
hins vegar fyrir sig að barni
verði ekki vikið úr skóla eða það
fært annað nema það hafi brotið
verulega gegn agareglum skól-
ans. Í þessu tilviki hafi brotið
verið alls ótengt skólanum og
því verði pilturinn ekki færður
annað án samþykkis foreldra
sinna.
Pilturinn hefur hitt sálfræðing
vegna málsins og kemur fram í
minnisblaði bæjar yfirvalda
vegna þess að sú meðferð hafi
gengið vel, hann hafi horfst í
augu við gerðir sínar og fylgt
öllum fyrirmælum. Litlar líkur
séu á því að hann brjóti aftur af
sér. - sh, þeb / sjá síðu 8
Tóku dóttur sína úr skóla af
ótta við að hún hitti geranda
Ung stúlka hefur ekki mætt í skóla í rúma viku því foreldrar hennar óttast að þar hitti hún unglingspilt
sem braut á henni kynferðislega. Brotið var ótengt skólanum og því verður piltinum ekki vikið þaðan.
[Hún] sýnir alvarleg
kvíða- og streitu-
einkenni sem frekar hafa
aukist en hitt undanfarið.
SÁLFRÆÐINGUR BARNAHÚSS
STORMUR V-TIL Sunnan hvass-
viðri á landinu í dag og stormur
V-til síðdegis og fram á nótt. Víða
rigning en úrkomulítið N-lands. Hiti
8-14 stig.
VEÐUR 4
12
10
10
12
13
Stúlknasveit til
landsins
Bresku stúlkurnar í The
Saturdays taka upp
myndband á Íslandi.
fólk 50
LÖGREGLUMENN SÝNDU SAMSTÖÐU Á fjórða hundrað lögreglumanna gengu frá lögreglustöðinni á Hverfisgötu að fjár-
málaráðuneytinu í gær til að sýna óánægju með launamál í verki. Lögreglumenn leggja áherslu á að fá verkfallsrétt aftur. Sjá síður 2 og 10. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Neyðin sem gleymdist
Flóðin í Pakistan hafa haft
áhrif á milljónir manna.
föstudagsviðtalið 16
FH vann fyrir norðan
Valur, HK og FH unnu öll
sigra í N1-deild karla í gær.
sport 46
VIÐSKIPTI Birgir Jónsson, sem var
ráðinn forstjóri Iceland Express
fyrir fáeinum dögum, hefur hætt
störfum.
„Ég hef sagt starfi mínu lausu
sem forstjóri Iceland Express eftir
aðeins 10 daga í starfi,“ segir í til-
kynningu sem Birgir sendi fjöl-
miðlum seint í gærkvöldi. „Þegar
til mín var leitað og ég beðinn um
að taka þetta starf að mér setti ég
mjög ströng skilyrði um hvern-
ig samstarfi mínu við eigendur
félagsins yrði háttað. Ég vildi fá
mikið frelsi til að endurskipu-
leggja reksturinn og ég setti fram
hugmyndafræði og vel skilgreind
atriði sem ég vildi fá að vinna
að með sjálfstæðum hætti, en að
sjálfsögðu í nánu og eðlilegu sam-
starfi við stjórn félagsins. “
Í tilkynningunni segir Birgir að
strax á fyrstu dögum hans í starfi
hafi orðið ljóst að samkomulag það
sem hann gerði við eigendur Ice-
land Express myndi ekki halda.
„Ég hef gengið fram fyrir
skjöldu í fjölmiðlum og lýst því
yfir hvernig ég ætlaði að snúa
fyrirtækinu til betri vegar en það
hefur verið á undanfarin misseri,“
segir í tilkynningunni.
„Þegar maður hefur tengt sig
persónulega við svo stórt mál er
lykilatriði að maður sé trúr sinni
sannfæringu og hætti um leið og
maður fær ekki stuðning til að
standa við stóru orðin.“
- th
Birgir Jónsson hættur sem forstjóri Iceland Express vegna deilna við eigendur:
Hættir eftir tíu daga í starfi