Fréttablaðið - 30.09.2011, Side 10
30. september 2011 FÖSTUDAGUR10
Lögreglumenn hafa mót-
mælt nýlegum gerðardómi
um kjör stéttarinnar.
Meðal laun lögreglumanna
voru um 513 þúsund krón-
ur á mánuði á síðasta ári.
Verður að skoða launin í
samhengi við vinnuframlag
segja lögreglumenn.
Forsvarsmenn lögreglumanna
segja launakjör innan stéttar innar
hafa dregist aftur úr viðmiðunar-
stéttum á borð við tollverði á
undan förnum árum. Samningavið-
ræður Landssambands lögreglu-
manna við ríkið runnu út í sand-
inn án þess að tækist að semja, og
í kjölfarið kvað gerðardómur upp
úrskurð sem kemur í stað kjara-
samninga.
Í gerðardóminum kemur fram
að laun lögreglumanna eigi að
hækka í samræmi við launahækk-
anir á almennum markaði, auk
þess sem álagsgreiðslur lögreglu-
manna hækka lítillega. Þessi
niður staða er algerlega óásættan-
leg að mati lögreglumanna, eins og
komið hefur fram í yfirlýsingum
frá félögum lögreglumanna og í
ályktunum frá fundum sem þeir
hafa haldið í sínum hópi.
Samkvæmt upplýsingum frá
fjármálaráðuneytinu voru meðal-
laun lögreglumanna á síðasta ári
um 513 þúsund krónur á mán-
uði. Af þeirri upphæð voru dag-
vinnulaun um 284 þúsund krón-
ur, yfirvinnulaun um 110 þúsund,
vaktaálag um 59 þúsund og álags-
greiðslur og önnur laun um 60 þús-
und krónur.
Steinar Adolfsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
lögreglumanna, segir að skoða
verði heildarlaunin í samhengi
við vinnuframlag lögreglumanna.
Að baki þessum launum liggi bæði
langir vinnudagar, vaktavinna og
álag í starfi. Meta verði vinnu-
framlag lögreglumanna til launa.
„Það má taka hvaða viðmiðun-
arstétt sem er, til dæmis tollverði,
og setja þann fjölda vinnustunda
sem lögreglumenn vinna inn í
launakerfi þeirra til að sjá hversu
mikið lögreglumenn hafa dregist
aftur úr viðmiðunarstéttunum,“
segir Steinar.
Hann bendir á að lögreglumenn
séu margir á bakvöktum, og á
þeim hvíli ríkari skylda en öðrum
ríkisstarfsmönnum um að vinna
yfirvinnu. Þá megi lögreglumenn
ekki vinna aðra vinnu án sam-
þykkis vinnuveitanda.
Segir yfirmenn ekki of marga
Meðaltal launa heillar stéttar þar
sem eru bæði nýliðar og yfirmenn
með mikla starfsreynslu gefa þó
ekki alltaf rétta mynd af raun-
verulegum launum, enda dreif-
ingin talsverð.
Meðaltal er fundið með því að
leggja saman laun allra lögreglu-
manna og deila í með fjöldanum.
Önnur aðferð er að finna mið-
gildið, það er raða lögreglumönn-
um í röð eftir launum, og finna svo
þann sem er í miðjum hópnum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja (BSRB) er miðgildi launa
lögreglu manna mjög svipað og
meðaltalið. Í tölum sem teknar
voru saman fyrir Fréttablaðið
kemur fram að meðallaunin í októ-
ber í fyrra voru ríflega 522 þúsund
krónur, en miðgildi launa í sama
mánuði var tæplega 524 þúsund
krónur.
Í þessum tiltekna mánuði var
meðaltalið og miðgildið svipað.
Það er fremur óvenjulegt þegar
laun stórra hópa eru skoðuð, því
yfirleitt er meðaltalið hærra en
miðgildið. Það skýrist af því að
hlutfallslega fáir eru með há laun
sem hífa upp meðaltalið, en hafa
ekki jafn mikil áhrif á miðgildið.
Í tilviki lögreglumanna benda
þessar tölur til þess að um helm-
ingur þeirra sé með laun yfir
meðal talinu, en um helmingur með
laun undir meðaltalinu.
Steinar segir oft hafa verið bent
á mikinn fjölda yfirmanna innan
lögreglunnar. Þar sé þó verið að
líta á stöðuna frá röngu sjónar-
horni. Í raun sé fjöldi yfirmanna
alls ekki of mikill. Staðreyndin sé
sú að almennum lögreglumönnum
hefur verið fækkað óhóflega mikið
á síðustu árum.
Steinar bendir einnig á að endur-
nýjun í stéttinni hafi verið minni
undanfarin ár en búast mætti við.
Það skili sér í reyndari lögreglu-
mönnum með lengri starfsaldur,
og þar með hærri laun.
Hærri laun en tollverðir
Landssamband lögreglumanna
er aðildarfélag BSRB. Meðallaun
starfsmanna allra aðildarfélaga
voru um 353 þúsund krónur á síð-
asta ári. Dagvinnulaun voru ívið
lægri en hjá lögreglumönnum,
en yfirvinna, vaktaálag og aðrar
greiðslur hífa lögreglumennina
upp.
Meðallaun tollvarða, sem einn-
ig heyra undir BSRB, voru um
466 þúsund krónur á mánuði í
fyrra, samkvæmt samantekt fjár-
málaráðuneytisins. Dagvinnu-
launin eru svipuð hjá stéttun-
um, yfirvinnan og vaktaálagið
sambærileg, en lögreglumenn síga
fram úr vegna álagsgreiðslna og
annarra greiðslna. Miðgildi launa
tollvarða er svipað og meðallaun.
Önnur stétt innan BSRB sem
gengur vaktir eru sjúkraliðar. Á
síðasta ári voru meðallaun sjúkra-
liða um 345 þúsund krónur. Þar af
voru um 242 þúsund fyrir dag-
vinnu, 35 þúsund fyrir yfirvinnu,
58 þúsund vegna vaktaálags og
önnur laun voru ríflega 10 þúsund
krónur.
Vilja að vinnuframlag sé metið til launa
FRÉTTASKÝRING: Launakjör lögreglumanna
Meðallaun nokkurra starfsstétta
opinberra starfsmanna
600
500
400
300
200
100
0
Þú
su
nd
k
ró
nu
r
■ Önnur laun
■ Vaktaálag
■ Yfirvinnulaun
■ Dagvinnulaun
Lögreglumenn Sjúkraliðar Tollverðir BSRB
meðallaun
512.788
344.888
465.794
352.902
HEIMILD: FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
þúsund krónur
voru meðallaun
lögreglumanna
á síðasta ári samkvæmt
samantekt fjármálaráðu-
neytisins.
513