Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 18

Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 18
18 30. september 2011 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 www. tengi.is GÆÐI,ÞJÓNUSTA OG ÁBYRGÐ - ÞAÐ ER TENGI STURTUHAUSAR Í ÚRVALI SKINNY handsturtuhaus verð kr. 1.990.- SPRING sturtuhaus kringlóttur 20 cm verð kr. 9.450.- ESPRITE CARRÉ ferkantaður 20 cm verð kr. 12.400- EMOTION sturtuhaus kringlóttur 10 cm verð kr. 3.990.- Ó ánægja lögreglumanna með kjör sín er vel skiljanleg. Þeir hafa bent á að þeir hafi dregizt aftur úr þeim viðmiðunar- hópum sem voru skilgreindir þegar lögreglumenn voru sviptir verkfallsrétti. Niðurstöðu gerðardóms telja þeir ekki taka mið af þessu kjaramisgengi. Láti vinnuveitandi þeirra, ríkið, kjaradeilur ævinlega ganga til gerðardóms eins og nú séu lögreglumenn fastir í láglaunagildru. Ofan á launamisgengið bætist að framlög til lögreglunnar hafa verið skorin niður umfram það sem forsvaranlegt getur talizt út frá öryggi borgaranna. Það skilar sér sömuleiðis í erfiðari starfs- aðstæðum lögreglumanna og álagi sem er nánast ómanneskjulegt. Lögreglumenn eiga lengri og erfiðari vinnudag en við flest og horfa dag hvern upp á æ harðari heim fíkniefnaneyzlu, ofbeldis og skipulagðrar glæpastarfsemi, sem fer saman við vaxandi virð- ingarleysi fyrir þeim sjálfum og störfum þeirra. Eins og málin standa nú er raunveruleg hætta á að flótti verði úr lögreglunni. Þeir sem þar starfa hafa flestir menntun og reynslu sem nýtist vel í öðrum störfum. Erfitt atvinnuástand er líklega eitt af því fáa sem kemur í veg fyrir að lög- reglan missi margt af sínu bezta fólki – ásamt því að í stétt lögreglu- manna eru margir sem sinna starfi sínu af hugsjón. Forystumönnum ríkisstjórnarinnar verður tíðrætt um að standa þurfi vörð um grundvöll velferðarsamfélagsins. Öflug og vel mönnuð lögregla er að sjálfsögðu hluti af þeim grundvelli. Aðgangur að frá- bærri heilbrigðis- og félagsþjónustu er lítils virði ef fólk getur ekki verið öruggt um sjálft sig og eignir sínar. Löggæzlan er grundvallar- hlutverk ríkisvaldsins sem kemur á undan flestum öðrum verkefnum í forgangsröðinni. Þess vegna hljóta stjórnvöld að reyna að finna lausnir á kjaradeilu lögreglumanna. Það kann að taka einhvern tíma, eins og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði í Fréttablaðinu í gær, en um leið ber að hafa í huga að biðlund lögreglumanna er augljóslega á þrotum. Störf lögreglumanna eru þess eðlis að í kjarabaráttu sinni geta þeir ekki gert neitt sem stofnar öryggi fólks í hættu. Það ber stjórnvöldum að virða, en ekki notfæra sér. Sömuleiðis er mikilvægt að þeir sem um þetta mál fjalla geri það með ábyrgum hætti. Það er fullkomlega ábyrgðarlaust að velta vöngum um hvort ólæti brjótist út við þingsetningu ef óeirðasveitir lögreglunnar vanti. Það er ábyrgðarlaust að skamma lögreglumenn í kjarabaráttu fyrir ákvörðun sem yfirmaður þeirra tók, um að sleppa heiðursverði við þingsetningu, eins og Ólína Þorvarðardóttir þingmaður gerði. Og það er fullkomlega galið að spyrða saman kjara baráttu lögreglumanna og athugasemdir Ríkisendurskoðunar (óháðrar eftirlitsstofnunar á vegum Alþingis) við það hvernig stjórn- endur lögreglunnar umgengust reglur um opinber útboð, eins og Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, gerði á heimasíðu sinni. Þær athugasemdir koma kjaramálum lögreglumanna að sjálf- sögðu ekkert við. Staða mála í lögreglunni er alvarlegri en svo að menn eigi að reyna að nota hana til að slá pólitískar keilur. HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Lögreglan þarf að vera vel launuð og mönnuð. Undirstaða velferðarinnar Viðskiptabankarnir beita öllu afli sínu og verja óbreytt kvótakerfi. Þeir hæla kerfinu á hvert reipi og Íslandsbanki lofar það í hástert. Bankastjórinn segir áróðurs- stríð vera í gangi og nú verði allir velunn- arar þeirra sem eiga ótímabund- inn einkarétt á hagnaðinum að verjast áformum stjórnvalda. Það er um mikla peninga að tefla, arðurinn er talinn verða 35-45 milljarðar króna á hverju ári. Reynslan kennir okkur að það má efast um dómgreind stjórn- enda bankanna. Það eru aðeins tvö ár síðan þessir bankar fóru allir á hausinn vegna óábyrgra útlána. Aðeins var hugsað um skyndigróðann og fátt var byggt upp í íslensku atvinnulífi. Á árun- um 2003-2008 keyrði um þverbak og fjármálastofnanir skuldsettu framtíðina í sjávarútveginum. Skuldirnar jukust um 400 milljarða króna, mest á ofan- greindum árum. Bankarnir stjórna nú sem þá verðlagi á veiðiheimildunum í samráði við fáeina útgerðarmenn. Gerviverðlagning kvótans er spilaborgin sem fjárhættuspil Íslands- banka og annarra banka hvílir á. Stór hluti skuldanna er byggður á skáldskap íslenskra bankastjóra um verðlag á kvóta sem hafði þann eina tilgang að eyða á stuttum tíma öllum hagnaði af sjávarútvegi næstu 15-20 árin og koma honum í hendur fárra aðila. Alþjóðaefnahagsráðið setur íslensku bank- ana á botninn meðal 143 þjóða á lista um heilbrigði banka. Þeir eiga það fyllilega skilið. Það er ekkert heilbrigt við skuldsetn- inguna í sjávarútveginum. Hún varð ekki til þess að endurnýja skipin, hún leiddi ekki til fjár- festingar í öðrum varanlegum rekstrar fjármunum, hún varð ekki til þess að auka framleiðni í útgerðinni og hún varð ekki til þess að innleiða samkeppni og auka hæfni stjórnenda. Skuldafangelsið sem viðskipta- bankarnir settu sjávarútveginn í varð aðeins til þess að 500 fjöl- skyldur velta sér upp úr auðæfum, sem aldrei áður í Íslandssögunni hafa verið jafn- mikil á höndum jafnfárra. Þetta er kerfið sem bankastjóri Íslandsbanka vill verja með kjafti og klóm. Kerfi sem mun viðhalda skuldafangelsi í sjávarútvegi. Þetta eru ráð þeirra sem eru lengst frá því að reka heil- brigt bankakerfi. Nóg er komið af þeim óráðum. Skuldafangelsi Íslandsbanka Fjármál Kristinn H. Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður Þetta eru ráð þeirra sem eru lengst frá því að reka heilbrigt bankakerfi. Hvatt til mismununar? Gunnar Smári Egilsson er nýorðinn formaður SÁÁ. Sem slíkur hefur hann lag á að koma sér í fjölmiðla, nokkuð sem hann reyndar alltaf hefur haft, og beitir oftar en ekki til þess stóryrtum yfirlýsingum. Hann kom með nýjan vinkil á launadeilu lögreglumanna í gær. Gunnari Smára er uppsigað við næturlífið í miðborg Reykjavíkur. Hann telur kráareigendur á svæðinu bera ábyrgð á stórum hluta útgjalda lögreglunnar, þar sem 70 til 80 prósent verkefna þeirra komi til vegna óhófsneyslu á áfengi og vímuefnum. Gunnar Smári leggur því til að þeir staðir sem fái að hafa opið lengur en til miðnættis borgi himinháa upphæð fyrir leyfið sem renni til launagreiðslna lögregl- unnar. Það vekur upp þá spurningu hvort lögreglumenn í landshlutum fjarri miðborg Reykjavíkur verði á lægri launum. Eða telur formaður SÁÁ að verkefnum lögreglunnar á Hólmavík fækki við minna næturlíf í Reykjavík? Að læra af sögunni Annað sem Gunnar Smári telur einboðið að gera er að hækka verð á áfengi. Með því fækki ofbeldisglæpum, því neyslan minnki. Sagan getur kennt manni ýmislegt. Hálfs lítra dós af bjórtegundinni Egils gulli kostaði í febrúar 2008 207 krónur en kostar nú 329 krónur. Hefur með öðrum orðum hækkað um tæp 60 prósent. Telur Gunnar Smári að ofbeldisglæpum hafi fækkað að sama skapi? Versta flóttatilraun sögunnar Vinsælt er að segja að þingmenn séu á flótta undan þjóðinni þar sem þingsetningunni á morgun hefur verið flýtt. Flótti sem tilkynntur er fjöl miðlum fyrir fram og gefinn út á dagskrá hvar og hvenær verður hlýtur að teljast versta flóttatilraun sögunnar. kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.