Fréttablaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 30. september 2011 19
Brottvísun kanadíska náms-mannsins Jordan Chark er
skömm fyrir íslensk stjórnvöld.
Lýsing talsmanna Útlendinga-
stofnunar á gildandi lögum er
villandi og lögin sjálf löggjaf-
anum og ráðamönnum til lítils
sóma.
Aðeins á upphafsreit. Ungur
Kanadabúi lærir íslensku í gegn-
um netið. Hann kemur til lands-
ins þremur mánuðum fyrir 18 ára
afmælið sitt. Fær inni í Háskóla
Ísland í íslensku fyrir útlendinga.
Fer strax á annað ár. Útlendinga-
stofnun vísar þessu varnarlausa
barni heim, í hlýjan faðm fjöl-
skyldunnar.
En eru lög ekki lög? Ja, hver
eru nákvæmlega lögin? Stjórnar-
skráin tiltekur að rétti útlendinga
til að dveljast á Íslandi skuli
skipað með lögum. Það er gert
með lögum um útlendinga. Í þeim
lögum eru tilgreindir nokkrir
flokkar dvalarleyfa. Í sumum
þeirra flokka er krafa um lág-
marksaldur. Slík krafa er ekki til
staðar þegar kemur að dvalar-
leyfum vegna náms.
Umrætt aldursskilyrði er hins
vegar sett í reglugerð um útlend-
inga. Nú er það fyllilega sjálfsagt
að ráðherra setji reglugerð til
að skýra einstök atriði laganna,
t.d. varðandi skilyrði framfærslu
sem geta tekið breytingum frá
ári til árs. En það er fráleitt að
jafnstórt atriði og lágmarks aldur
umsóknar dvalarleyfis eigi að
setja í reglugerð.
Líklegast var ráðherra á hálum
ís fyrst þegar reglugerðin var
sett. Síðan hefur lögunum verið
breytt og nú er tiltekið að ráð-
herra megi setja „frekari skilyrði
fyrir dvalar- og búsetuleyfi“.
Með því var það nákvæmlega
gert sem stjórnarskráin reynir
að hindra: Framkvæmdarvaldinu
var færður óútfylltur tékki til að
setja hvaða viðbótarskilyrði sem
er fyrir því að menn geti dvalið
löglega á landinu.
Næsta hneisa felst í lýsingu
Útlendingastofnunar á gildandi
reglum. Eftirfarandi kom fram í
fréttum Stöðvar 2 um málið:
„Í samtali við fréttastofu segir
forstjóri Útlendingastofnunar
reglurnar vera skýrar. Þeim sem
eru ekki orðnir átján ára verður
ekki veitt dvalarleyfi á Íslandi
en Jordan verður átján ára nú í
desember. Því hafi hann verið
beðinn um að yfirgefa landið
en málið var jafnframt tilkynnt
barnaverndarnefnd. Útlendinga-
stofnun hafi enga heimild til að
veita undanþágu frá reglunum.“
Sé rétt eftir haft þá fer for-
stjóri Útlendingastofnunar hér
með rangt mál. Eftirfarandi
ákvæði má finna í reglugerð um
útlendinga:
„Útlendingur sem sækir um
dvalarleyfi skal hafa náð 18 ára
aldri. Útlendingur yngri en 18
ára getur einungis fengið dvalar-
leyfi í tengslum við dvalarleyfi
foreldris eða forsjármanns. Frá
þessu má víkja ef:
a. barn hefur sérstök tengsl
við landið eða þá aðila sem það
hyggst búa hjá hér á landi,
b. lögformlega hefur verið
gengið frá því í heimaríki barns
að forsjá þess flytjist til þess
aðila sem mun annast það hér á
landi og
c. niðurstaða könnunar barna-
verndarnefndar í því umdæmi
þar sem barnið hyggst dveljast
hér á landi mæli ekki gegn því.
Útlendingastofnun getur enn
fremur ákveðið að víkja frá skil-
yrðum 1. og 2. málsliðar ef ríkar
sanngirnisástæður mæla með
því.“
Sem sagt: Útlendingastofnun
hefur víst heimild til að veita
undanþágu frá umræddri 18 ára
reglu. Að uppfylltum þremur skil-
yrðum. Forstjórinn hefði getað
sagt að ekki ekki hafi verið sótt
um undanþágu eða að skilyrðum
hennar hafi ekki verið fullnægt,
en að halda því fram að undan-
þágan sé ekki til staðar er rangt.
Það sem meira er þá hefur
Útlendingastofnun skýra heimild
til að víkja frá umræddum skil-
yrðum ef ríkar sanngirnisástæð-
ur mæla með því. Hér mætti auð-
veldlega færa rök fyrir því að þar
sem umsækjandi sé alveg við það
að ná 18 ára aldri, hafi myndað
tengsl við landið og ekkert bendi
til að barnaverndarsjónarmið eigi
við mæli sanngirnisrök fyrir því
að hann fái dvalarleyfið. Aftur:
Forstjóri Útlendingastofnunar
hefði getað sagt að sanngirn-
isaðstæður hafi ekki verið fyrir
hendi að mati stofnunarinnar en
það gerði hann ekki, hann sagði
að stofnunin hefði ekki getað
veitt leyfið, sem er rangt.
Í stuttu máli hvíla reglurnar
sem notaðar voru til að vísa
Jordan Chark úr landi á hæpnum
lagaheimildum. Útlendinga-
stofnun hefur síðan gefið villandi
upplýsingar um hverjar reglurnar
séu. Stífleikinn og þvermóðskan
er svo yfirvöldum til háborinnar
skammar. Kanada búinn knái á
skilið að fá afsökunarbeiðni. Á
íslensku, auðvitað.
Farðu heim, krakki
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Í stuttu máli hvíla reglurnar sem notaðar
voru til að vísa Jordan Chark úr landi
hvíla á hæpnum lagaheimildum. Útlend-
ingastofnun hefur síðan gefið villandi upplýsingar um
hverjar reglurnar séu. Stífleikinn og þvermóðskan er
svo yfirvöldum til háborinnar skammar.
AF NETINU
Evran getur farið í tvær
áttir
Evrusamstarfið verður ekki óbreytt
eftir þá kreppu sem við stöndum
í miðri. Ég held að enginn telji
svo vera – breytinga er þörf. Fyrir
þessu eru tvær ástæður: Þau ríki
sem standa betur að vígi velta því
fyrir sér hver sé fórnarkostnaðurinn
við að hafa verr stæð ríki innan
Evrusamstarfsins og hin verr
stæðu ríki velta því fyrir sér hversu
stóran þátt innilokun þeirra í sam-
starfið leikur í vandræðunum. Að
sjálfsögðu koma þessar spurningar
upp núna, sérstaklega þegar
kreppuríki líta til Íslands og sjá að
við höfum komist fyrr og betur á
lappirnar en nokkur spáði fyrir um
vegna þess að við getum handstýrt
okkar eigin gjaldmiðli að nokkru
leyti. Þannig birtast um þessar
mundir fjöldi greina um undraríkið
Ísland í evrópuskum fjölmiðlum.
Hugsjónir Evrópusambandsins
byggja á samtryggingu og er það
fallegt svo langt sem það nær.
Það fer þó ekki hjá því að raddir
heyrast á norðurhjara samstarfsins
um af hverju lönd sem leggja háa
skatta á borgara sína eigi að losa
lönd úr snörunni sem skattleggja
íbúana mun minna. Framtíðin
verður því samkvæmt mínum
spám sú að Evrusamstarfið muni
koma sér upp samræmdri skatt-
lagningu, sem verður eins og flest
annað í Evrusamstarfinu út frá
viðmiðum miðEvrópuríkja og þá
sérstaklega Þýskalands.
blog.smugan.is/drifa
Drífa Snædal
Menntakefi í molum
Fjórðungur eða 25 af hverjum
100 fimmtán ára stráka geta ekki
lesið sér til gagns samkvæmt frétt í
Fréttablaðinu.
Þetta þýðir að skólakerfið hefur
gjörsamlega brugðist. Lestrarkunn-
átta er forsenda þess að fólk geti
stundað skólanám af einhverju viti.
Nú er það svo að við höfum eitt
dýrasta skólakerfi í heimi, en samt
bregst það svona gjörsamlega
í helsta grundvallaratriðinu. Af
hverju er þetta? Eru kennararnir
ekki starfi sínu vaxnir? Virkar
menntakerfið ekki? Hvað er að.
Það er útilokað annað en að fá
svör við því og það strax.
jonmagnusson.blog.is
Jón Magnússon