Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 24

Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 24
24 30. september 2011 FÖSTUDAGUR Síðustu misseri hefur kastljós fjölmiðla að miklu leyti beinst að erfiðu atvinnuástandi á Suð- urnesjum. Því miður er það ekki að ástæðulausu. Það er í þessu ljósi sem forystumenn í sveitar- félögunum hér á Suðurnesjum hafa sameinast um að gera það sem í okkar valdi stendur til þess að virkja sköpunargáfu og fram- kvæmdagleði okkar með því að blása til skemmtilegra og fræð- andi vinnudaga næstu helgi. Þar er markmiðið að sem flestir finni leiðir til þess að koma gömlum eða nýjum hugmyndum á rek- spöl, kynnist nýjum samstarfs- mönnum og eflist af nærveru við annað skapandi og framkvæmda- samt fólk. Fyrirkomulag Atvinnu- og nýsköpunarhelgarinnar er þann- ig að fólki gefst tækifæri til að vinna heila helgi ásamt leiðbein- endum að viðskiptahugmyndum sem eru svo kynntar í lok helg- arinnar. Allir eru velkomnir, bæði þeir sem hafa nú þegar við- skiptahugmynd í maganum og allir aðrir sem geta hugsað sér að vinna að nýjum og spennandi verkefnum. Eins eru allir þeir velkomnir sem nú þegar hafa lagt af stað með atvinnurekstur. Þeir geta fengið góðar hugmynd- ir en um leið miðlað af reynslu sinni til þeirra sem eru skemmra á veg komnir. Það kostar ekkert að taka þátt en skráning fer fram á anh.is. Atvinnu- og nýsköpunarhelg- ar munu fara fram um allt land á næstu mánuðum en við á Suður- nesjunum munum ryðja braut- ina með að halda fyrstu helgina. Sams konar helgar fara fram um allan heim allt árið um kring og verða t.d. í Nantes í Frakklandi og Seattle í Bandaríkjunum þessa sömu helgi. Þátttakendur á Suður nesjum verða í beinu sam- bandi við þátttakendur í Evrópu og Bandaríkjunum og fylgjast þannig með framgöngu teymanna beggja vegna Atlantshafsins. Atvinnu- og nýsköpunarhelgin okkar er því hluti af stóru alþjóð- legu verkefni og erum við bæði stolt og spennt að deila sköpunar- gáfu og krafti Suðurnesja manna með frumkvöðlum um allan heim. Við hvetjum alla Suðurnesja- menn, á hvaða aldri sem er, til þess að láta þetta tækifæri ekki fara fram hjá sér. Það er aldrei að vita nema hugmyndir og sam- vinna sem verða til um þessa helgi geti leitt til nýrra og öflugra fyrirtækja. Eitt þeirra mála sem Alþingi afgreiddi nú í september var frumvarp sem gerir Íbúðalána- sjóði kleift að bjóða upp á óverð- tryggð útlán og jafnframt að veita sjóðnum heimild til að slík útlán beri breytilega vexti. Mikil samstaða var á þingi um þetta mál. Hins vegar er mikil- vægt að fram komi að hér er aðeins um mjög lítið skref að ræða og ekki er tekið á því vandamáli sem verðtryggingin hefur þegar valdið heimilum og fyrirtækjum. Tekur ekki á vandanum Áður en Íbúðalánasjóður getur boðið upp á óverð- tryggð útlán þarf sjóðurinn að vinna sig út úr verðtrygg- ingunni. Í fyrstu þarf sjóðurinn að kanna möguleika á útgáfu óverðtryggðra skulda- bréfaflokka. Sjóður- inn er fjármagnað- ur að stærstum hluta gegnum lífeyrissjóð- ina (70%) og stærstur hluti þessarar fjár- mögnunar er í formi verðtryggðra skulda- bréfa sem eru án upp- greiðsluheimilda. Af u.þ.b. 800 milljarða útlánasafni sjóðsins eru einungis tæpir 40 milljarðar sem hægt er að greiða upp strax, afganginn er ekki hægt að greiða upp fyrr en að 25 árum liðnum. Íbúðalánasjóður þarf því að ná samningum við líf- eyrissjóðina um uppgreiðslu á þessum verðtryggðu bréfum og nýrri fjármögnun í formi óverð- tryggðra bréfa. Vinna við þetta er á byrjunarstigi sem þýðir að óverðtryggð fasteignalán eru ekki handan við hornið eins og margir hafa látið í veðri vaka. Auk þess verður ekki hægt að bjóða þeim sem þegar hafa tekið verðtryggð lán að breyta þeim í óverðtryggð. Að því sögðu vakna spurningar um hvernig þessi aðgerð taki á vandanum sem verðtryggingin veldur mánaðar- lega hjá þúsundum fjölskylda. Þak á verðtrygginguna strax! Heimild til að lána óverðtryggt tekur ekki á vanda þeirra sem í dag eru með verðtryggð lán sem hækka gríðarlega um hver mánaðamót. Í ljósi þungrar skuldabyrði heimilanna eru litl- ir möguleikar hjá fólki að fara úr verðtryggðum lánum yfir í óverðtryggð húsnæðislán. Af þessum sökum ætti það að vera forgangsverkefni að setja þak á verðtrygginguna á ársgrundvelli sem miðast við verðbólgumark Seðlabankans með þolmörkum. Framsóknarflokkurinn lagði þetta til strax haustið 2009 en því miður hefur tillagan ekki náð fram að ganga. Þakið yrði fyrsta raunverulega skrefið sem stigið yrði í þá átt að afnema verðtrygg- inguna. Samkvæmt útreikningum Marinós G. Njálssonar ráðgjafa hefur komið fram að ef 4% þak hefði verið á verðtryggingunni sl. 20 ár hefði raun- ávöxtun lífeyrissjóð- anna náð að jafnaði 3,5% ávöxtun. Einnig er mikil- vægt að ná fram raunvaxtalækkun fasteignalána. Stað- reyndin er sú að raunvextir innlendra verðtryggðra hús- næðislána eru hærri heldur en þegar kemur að óverð- tryggðum húsnæðis- lánum í nágranna- l ö n d u m o k k a r. Það er ljóst að slík vaxtalækkun mundi minnka greiðslubyrði íslenskra heimila mjög mikið. Miðað við þann tíma sem ríkis- stjórnin hefur starfað og þær áherslur sem lagt var upp með vekur það furðu að ekki hafi verið lögð fram áætlun um afnám verð- tryggingar og raunhæfar lausnir í þágu þeirra sem sitja uppi með verðtryggðar skuldir. Þvert á móti berast okkur ítrekað frétt- ir af því að tekin sé staða með fjármálastofnunum og erlendum kröfuhöfum. Um 30.000 manns hafa nú skorað á ríkisstjórnina að grípa til aðgerða sambærilegum þeim sem fjallað er um hér að ofan. Það er ekki eftir neinu að bíða. Nú stendur yfir endurskoðun aðalnámskráa grunnskóla með nýrri stefnu menntamála yfirvalda sem felur í sér kjarna sem settur er saman úr sex grunnþáttum: læsi, sjálfbærni, lýðræði, jafnrétti, heil- brigði og velferð og sköpun. Meg- inmarkmið nýrrar stefnu eru m.a. að undirbúa nemendur til að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátt- takendur í jafnréttis- og lýðræðis- samfélagi, með áherslu á getu og hugarfar sjálfbærni sem meðal annars felur í sér gagnrýna hugs- un og lýðræði og skapandi færni. Þessi nýja stefna krefst nýs hugs- unarháttar og skipulags af kennur- um og skólastjórum en algengast er og fellur vel að hugsunarhætti og verklagi nýsköpunar- og frum- kvöðlamenntar. Nýsköpunar- og frumkvöðla- mennt er námssvið sem sam þættir þekkingu margra námsgreina og þekkingu úr lífinu sjálfu og gefur nemendum tækifæri til að takast á við raunveruleg viðfangsefni á skapandi hátt. Ég hafði góða reynslu af að kenna nýsköpunar- mennt í tíu ár af þeim nærri 30 sem ég kenndi í grunnskóla og fannst mér þar nemendum með mismun- andi getu og áhuga vera gefið tæki- færi til að standa sig vel og taka virkan þátt í uppbyggingu eigin þekkingar á skapandi og skemmti- legan hátt sem bæði virti þeirra þekkingu og reynslu og ýtti undir þau að afla frekari þekkingar. Mér fannst sérlega ánægjulegt að sjá nemendur sem töldu sig ekki vera skapandi gleyma því í nýsköpunar- mennt og skapa gagnlegar og frumlegar hugmyndir og koma þeim í birtanlegt form og kynna í sínu samfélagi. Menntamálayfirvöld voru svo framsýn og metnaðarfull að setja fram skólastefnu og aðalnámskrá fyrir grunnskóla árið 1999 sem birtist í námskránni um Upplýs- inga- og tæknimennt og fól í sér nýja sýn á hvernig mætti gefa nemendum tækifæri til að hag- nýta þekkingu sína og byggja hana enn frekar upp á skapandi hátt. Þessi sýn kom meðal annars fram í námssviðinu Nýsköpun og hagnýting þekkingar (les: nýsköp- unar- og frumkvöðlamennt). Sú hugsun sem þar var kynnt hefur þó ekki komist til framkvæmda almennt í skólum en nýsköpunar- mennt hefur þó verið framkvæmd í nokkrum íslenskum grunnskól- um á þann hátt sem hún var hugs- uð. Í núverandi endurskoðun nám- skrár virðast menntamálayfirvöld ætla að gera þau reginmistök að gleyma (viljandi eða óviljandi) nýsköpunar- og frumkvöðla- mennt þar sem þau hafa ekki skip- að starfshóp til að sjá um endur- skoðun þess kafla í námskránni (eða að móta sérstaka námskrá) og hefur þessu mikilvæga sviði verið kastað á milli námskrár- hópanna sem hafa nógu miklið vald og virðingu til að fá sérstaka umfjöllun. Nýsköpunar og frum- kvöðlamennt er námssvið sem getur eflt getu nemenda til að hafa áhrif á eigið líf, persónulega, í starfi, til að skapa störf og til að hafa áhrif almennt í eigin sam- félagi. Mér hefur stundum dottið í hug að núverandi menntamála- yfirvöld séu feimin eða hafi djúp- stæða óyrta andúð á orðinu „frum- kvöðla“–mennt þar sem það tákni það sem miður fór í íslensku sam- félagi og sé andstætt þeirra hug- sjónum. Ég þekki þó kjarna þessa orðs í verki og veit að í stað þess má nota orðið „athafnafærni“ eða „geta til aðgerða“ sem lýsir þá í leiðinni þeirri hugsun að slík geta og færni sé sú sem þarf til að efla sjálfbæra hugsun og getu. Það er ein ástæða þess að ég vil kalla þetta „mennt“ þar sem hún þarf að fela í sér menntun sem elur upp siðferði og ábyrgðartilfinn- ingu. Ég hvet því menntamála- yfirvöld til að sinna þessu náms- sviði og byggja enn betur undir það en áður og bið þau að stíga þannig framfaraskref sem styður þá stefnu sem þau hafa mótað. – Lifið heil www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 64 64 0 9/ 1120% afsláttur af Flux flúormunnskoli fyrir börn og fullorðna Lægra verð í Lyfju Flux: 0,2% Naf flúormunnskol Flux Junior: 0,05% Naf flúormunnskol Flux Klorhexidin: 0,12% klórhexidín og 0,2% Naf Gildir til 16. október AF NETINU Eggin og Alþingi Ég var sjálfur í Alþingisgarðinum í janúar 2009 þegar margt hliðraðist til í íslenskri þjóðarsál og við skildum, saman sem þjóð, að það var okkar réttur að mótmæla, jafnvel okkar skylda. Ég mótmælti af öllum lífs og sálarkröftum í janúar 2009, en ég grýtti engu, heldur lét mótmælastöðuna nægja, kraftinn í eigin rödd og trommandi lætin í búsáhöldunum. Mig langar því ekki í egg á laugardaginn; ég afþakka þau hér með form- lega því ég tel mig ekki hafa unnið fyrir þeim. Ég tel engan þingmann hafa unnið sér inn eggjakast. Samt hvet ég alla sem eru þreyttir, reiðir og pirraðir til að koma og mótmæla með nærveru sinni og krafti í rödd og trommandi látum. Það er miklu heiðarlegra en að blóta ríkisstjórninni uppí sófa. En það er líka betri leið en að láta eggin tala. davidstefansson.is Davíð Stefánsson Mér fannst sérlega ánægjulegt að sjá nemendur sem töldu sig ekki vera skap- andi gleyma því í nýsköpunarmennt og skapa gagnlegar og frumlegar hugmyndir og koma þeim í birtanlegt form og kynna í sínu samfélagi. Í ljósi þungrar skuldabyrði heimilanna eru litlir möguleikar hjá fólki að fara úr verðtryggðum lánum yfir í óverðtryggð húsnæðislán. Við hvetjum alla Suðurnesjamenn, á hvaða aldri sem er, til þess að láta þetta tæki- færi ekki fara fram hjá sér. Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð, að hámarki um 4.500 tölvuslög með bilum. Aðeins er tekið við yfirlesnum og villulausum texta. Greinahöfundar eru beðnir að hafa í huga að því styttri sem greinin er, þeim mun líklegra er að hún fái skjóta birtingu. Eingöngu er tekið við raunverulegum umræðugreinum, en ekki greinum sem eru fyrst og fremst kynning á til dæmis fyrirtæki eða félagasamtökum, ráðstefnu eða átaki. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða á Vísi eða í báðum miðlum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. Sendið okkur línu Ákall til menntamálayfirvalda Stöndum saman á Suðurnesjum Skjaldborg um verðtrygginguna Atvinna Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar Ásmundur Friðriksson bæjarstjóri Garðs Eirný Valsdóttir bæjarstjóri Voga Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri Sandgerðisbæjar Verðtrygging Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknarflokks Menntamál Svanborg R. Jónsdóttir fv. grunnskólakennari og doktorsnemi við menntavísindasvið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.