Fréttablaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.09.2011, Blaðsíða 26
30. september 2011 FÖSTUDAGUR26 Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, vinur minn, afi okkar og langafi, Björn Indriðason Hátúni 4, Reykjavík, fæddur á Stóra-Kambi, Breiðuvík. 17.10.1935, lést á líknardeild Landakotsspítala þann 21. september. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna, þann 23. september. Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildarinnar fyrir einstaka alúð og umhyggju á hans síðustu ævidögum. Þökkum einnig starfsfólki á Landspítalanum og Borgarspítalanum fyrir góða umönnun og hjúkrun. Þökkum auðsýnda samúð. Helga Björg Björnsdóttir Hans-Petter Fransrud Indriði Björnsson Ékaterina Gagunashvili Óskar Heimir Ingvarsson Guðrún Matthíasdóttir Sigrún Pálína Ingvarsdóttir Alfred Wolfgang Gunnarsson Auður Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, stjúpa, amma og langamma, Oddný Ólafsdóttir frá Vopnafirði, síðast til heimilis að Mímisvegi 2, Reykjavík, sem lést föstudaginn 23. september á hjúkrunar- heimilinu Droplaugarstöðum, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 30. september klukkan 13. Ásrún Kristjánsdóttir Guðrún Kristjánsdóttir Ævar Kjartansson Heiðrún Kristjánsdóttir Sigrún Kristjánsdóttir Völundur Óskarsson Sigurveig Kristjánsdóttir Ólafur Ágúst Ólafsson Friðrik Steinn Kristjánsson Ingibjörg Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Bergur Jónsson rafmagnsverkfræðingur, Löngulínu 27, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, að morgni miðvikudagsins 28. september. Jarðsungið verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. október kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Bergs er bent á Hjálparsveit skáta, MS- félagið (s: 568 8620) eða aðrar líknarstofnanir. Ingunn Guðmundsdóttir Magnús Bergsson Guðrún Elín Guðnadóttir Bergþóra Bergsdóttir Reynir Þór Sigurðsson Jón Örn Bergsson Ásgerður Bergsdóttir Högni Sigurþórsson og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Árni Kr. Þorsteinsson Smyrilsvegi 29, Reykjavík, lést á Landspítala við Hringbraut laugardaginn 17. september. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 23. september kl. 11.00. Anna Árnadóttir Ásta Kvaran Árnadóttir Böðvar B. Kvaran Þorsteinn Árnason Hrefna E. Leifsdóttir Sveinn Árnason Sigurlína Vilhjálmsdóttir Erna Þórunn Árnadóttir Benedikt Sigmundsson Ingibjörg Hólmfríður Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, Hreinn Þorvaldsson múrarameistari, Kleppsvegi 82, Reykjavík, lést í faðmi ástvina sinna á Landspítalanum við Hringbraut þann 26. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 5. október kl. 13.00. Guðrún Sigurborg Jónasdóttir og fjölskylda. Þökkum að alhug þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall okkar ástkæra bróður, mágs og frænda, Gunnars Arnar Hámundarsonar Barónsstíg 43. Innilegt þakklæti til starfsfólks Landsbanka Íslands Laugavegi 77. Hrafnhildur Hámundardóttir Kolbrún Hámundardóttir Jón Guðnason Jóhann Erlingsson Lise Tarkiainen Guðm. Arnar Jónsson Gerða Gunnarsdóttir Guðni Jónsson Anna Katrín Sveinsdóttir Ægir Hrafn Jónsson Sigrún Björk Björnsdóttir og frændsystkin. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bragi Einarsson Urðarvegi 80, Ísafirði, sem andaðist sunnudaginn 25. september á Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 1. október, og hefst athöfnin kl. 14. Gróa Aradóttir Ágústa Bragadóttir Hallur Páll Jónsson Einar Daníel Bragason Margrét Jónína Bragadóttir Sveinn Sigurður Sveinsson Ólína Bragadóttir Ture Johanson barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, mágur og frændi, Þórir Ágúst Sigurðsson frá Brúarhrauni, Kópavogsbraut 1b, sem andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti, 18. sept. sl., verður jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju, Kolbeinsstaðahreppi, laugardaginn 1. okt. 2011 kl. 14.00 Hörður Sigurðsson Guðrún Sigurðardóttir Sigvaldi Fjeldsted Sigurveig Sigurðardóttir Björn Ingvarsson Auður Sigurðardóttir Bergmann Þorleifsson Kristján Sigurðsson María Einarsdóttir Trausti Sigurðsson Guðrún Björnsdóttir Kristín Björnsdóttir Soffía Sveinsdóttir og frændsystkini. timamot@frettabladid.is „Við höfum verið að byggja upp ferða- þjónustuna á síðustu árum í Stykkis- hólmi í sátt við náttúruna, þetta er staðfesting á því að við erum á réttri leið. Það kom okkur á óvart að við skyldum vera valin en það var mjög ánægjulegt,“ segir Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri Stykkishólms, en bærinn hefur verið útnefndur EDEN-gæða- áfangastaður í Evrópu 2011, eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Alls hlaut tuttugu og einn áfangastaður ferðamanna um alla Evrópu heitið „Afburða áfangastaður ferðamanna í Evrópu í ferðamennsku og endurgerð staða árið 2011“ og fór verðlaunaaf- hending fram í Brussel á þriðjudag- inn var, í tengslum við Ferðamáladag Evrópu. Stykkishólmur hlaut viður- kenninguna vegna markvissrar upp- byggingar gömlu húsanna í bænum sem fengið hafa nýtt hlutverk í ferða- þjónustu en í umsögn íslensku dóm- nefndarinnar segir að Stykkishólmur sé „heillandi fiskiþorp“ þar sem hægt sé að „losna úr ysnum og hægja á líf- inu“. Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri Stykk- ishólms, var nýkomin heim frá verð- launaafhendingunni í Brussel þegar Fréttablaðið náði af henni tali. Hún er að vonum ánægð með árangurinn, og segir nú frekari kynningu á því sem Stykkishólmur hefur upp á að bjóða fram undan. „Þetta er einstakt tækifæri til að vekja athygli á ferðaþjónustunni í bænum, á Snæfellsnesi og á Vestur- landi almennt. Nú munum við vinna með Ferðamálastofu og Markaðsstofu Vesturlands að því að kynna þennan Eden áfangastað en Vestfirðir fengu verðlaunin á síðasta ári.“ Eden-verkefnið byggir að stórum hluta á sjálfbærni og umhverfisvænni ferðamennsku. Gyða segir þá staðreynd að Stykkishólmur geti flaggað Bláfán- anum, umhverfis- vottun sem bærinn fékk árið 2003, hafa skipt miklu í vali staðarins. Hún segir það hafa verið gagnlegt að hitta fólk úr ferðamálageiranum í Brussel. „Það var gaman að hitta fólk sem er að gera spennandi hluti í ferðaþjón- ustu í Evrópu. Eden-verkefnið bygg- ir á áfangastöðum úr alfaraleið og við gátum borið saman bækur okkar. Til dæmis þekktu þeir sem við hitt- um þarna úti lítið til Íslands, annað en Reykjavík, Gullfoss og Geysi. Við vonum því að þetta skili jákvæðri kynn- ingu. Það er ákveðinn hópur fólks sem ferðast sérstaklega til Eden áfanga- staða,“ segir Gyða og telur bæjarbúa í Stykkishólmi meira en tilbúna til að taka á móti gestum. heida@frettabladid.is STYKKISHÓLMUR: FÆR EDEN-VERÐLAUNIN SEM GÆÐAÁFANGASTAÐUR Stykkishólmur heillandi þorp GYÐA STEINSDÓTTIR AFBURÐAÁFANGASTAÐUR Stykkishólmur hlaut Eden-verðlaunin sem afburðaáfangastaður í Evrópu, einn af tuttugu og einum áfangastað um alla Evrópu. JÓN G. SÓLNES bankastjóri og alþingismaður (1910-1986) var fæddur þennan dag. „Konan er sterkasta aflið og hefur alltaf verið.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.