Fréttablaðið - 30.09.2011, Qupperneq 26
30. september 2011 FÖSTUDAGUR26
Ástkær faðir okkar, stjúpfaðir,
tengdafaðir, vinur minn,
afi okkar og langafi,
Björn Indriðason
Hátúni 4, Reykjavík,
fæddur á Stóra-Kambi, Breiðuvík.
17.10.1935,
lést á líknardeild Landakotsspítala þann 21. september.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna,
þann 23. september.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildarinnar fyrir
einstaka alúð og umhyggju á hans síðustu ævidögum.
Þökkum einnig starfsfólki á Landspítalanum og
Borgarspítalanum fyrir góða umönnun og hjúkrun.
Þökkum auðsýnda samúð.
Helga Björg Björnsdóttir Hans-Petter Fransrud
Indriði Björnsson Ékaterina Gagunashvili
Óskar Heimir Ingvarsson Guðrún Matthíasdóttir
Sigrún Pálína Ingvarsdóttir Alfred Wolfgang Gunnarsson
Auður Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
stjúpa, amma og langamma,
Oddný Ólafsdóttir
frá Vopnafirði, síðast til heimilis að
Mímisvegi 2, Reykjavík,
sem lést föstudaginn 23. september á hjúkrunar-
heimilinu Droplaugarstöðum, verður jarðsungin frá
Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 30. september
klukkan 13.
Ásrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir Ævar Kjartansson
Heiðrún Kristjánsdóttir
Sigrún Kristjánsdóttir Völundur Óskarsson
Sigurveig Kristjánsdóttir Ólafur Ágúst Ólafsson
Friðrik Steinn Kristjánsson Ingibjörg Jónsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir og afi,
Bergur Jónsson
rafmagnsverkfræðingur,
Löngulínu 27, Garðabæ,
lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, að morgni
miðvikudagsins 28. september. Jarðsungið verður frá
Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast Bergs er bent á Hjálparsveit skáta, MS-
félagið (s: 568 8620) eða aðrar líknarstofnanir.
Ingunn Guðmundsdóttir
Magnús Bergsson Guðrún Elín Guðnadóttir
Bergþóra Bergsdóttir Reynir Þór Sigurðsson
Jón Örn Bergsson
Ásgerður Bergsdóttir Högni Sigurþórsson
og barnabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Árni Kr. Þorsteinsson
Smyrilsvegi 29, Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut laugardaginn
17. september. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík föstudaginn 23. september kl. 11.00.
Anna Árnadóttir
Ásta Kvaran Árnadóttir Böðvar B. Kvaran
Þorsteinn Árnason Hrefna E. Leifsdóttir
Sveinn Árnason Sigurlína Vilhjálmsdóttir
Erna Þórunn Árnadóttir Benedikt Sigmundsson
Ingibjörg Hólmfríður Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn og besti vinur,
faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
Hreinn Þorvaldsson
múrarameistari,
Kleppsvegi 82, Reykjavík,
lést í faðmi ástvina sinna á Landspítalanum við
Hringbraut þann 26. september. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju miðvikudaginn 5. október kl. 13.00.
Guðrún Sigurborg Jónasdóttir og fjölskylda.
Þökkum að alhug þeim sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við fráfall
okkar ástkæra bróður, mágs og frænda,
Gunnars Arnar
Hámundarsonar
Barónsstíg 43.
Innilegt þakklæti til starfsfólks Landsbanka Íslands
Laugavegi 77.
Hrafnhildur Hámundardóttir
Kolbrún Hámundardóttir Jón Guðnason
Jóhann Erlingsson Lise Tarkiainen
Guðm. Arnar Jónsson Gerða Gunnarsdóttir
Guðni Jónsson Anna Katrín Sveinsdóttir
Ægir Hrafn Jónsson Sigrún Björk Björnsdóttir
og frændsystkin.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Bragi Einarsson
Urðarvegi 80, Ísafirði,
sem andaðist sunnudaginn 25. september á
Fjórðungssjúkrahúsi Ísafjarðar, verður jarðsunginn
frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 1. október, og hefst
athöfnin kl. 14.
Gróa Aradóttir
Ágústa Bragadóttir Hallur Páll Jónsson
Einar Daníel Bragason
Margrét Jónína Bragadóttir Sveinn Sigurður Sveinsson
Ólína Bragadóttir Ture Johanson
barnabörn og barnabarnabörn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
Þórir Ágúst Sigurðsson
frá Brúarhrauni, Kópavogsbraut 1b,
sem andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti,
18. sept. sl., verður jarðsunginn frá Kolbeinsstaðakirkju,
Kolbeinsstaðahreppi, laugardaginn 1. okt. 2011 kl. 14.00
Hörður Sigurðsson
Guðrún Sigurðardóttir Sigvaldi Fjeldsted
Sigurveig Sigurðardóttir Björn Ingvarsson
Auður Sigurðardóttir Bergmann Þorleifsson
Kristján Sigurðsson María Einarsdóttir
Trausti Sigurðsson Guðrún Björnsdóttir
Kristín Björnsdóttir
Soffía Sveinsdóttir
og frændsystkini.
timamot@frettabladid.is
„Við höfum verið að byggja upp ferða-
þjónustuna á síðustu árum í Stykkis-
hólmi í sátt við náttúruna, þetta er
staðfesting á því að við erum á réttri
leið. Það kom okkur á óvart að við
skyldum vera valin en það var mjög
ánægjulegt,“ segir Gyða Steinsdóttir,
bæjarstjóri Stykkishólms, en bærinn
hefur verið útnefndur EDEN-gæða-
áfangastaður í Evrópu 2011, eins og
fram kom í Fréttablaðinu í gær. Alls
hlaut tuttugu og einn áfangastaður
ferðamanna um alla Evrópu heitið
„Afburða áfangastaður ferðamanna í
Evrópu í ferðamennsku og endurgerð
staða árið 2011“ og fór verðlaunaaf-
hending fram í Brussel á þriðjudag-
inn var, í tengslum við Ferðamáladag
Evrópu. Stykkishólmur hlaut viður-
kenninguna vegna markvissrar upp-
byggingar gömlu húsanna í bænum
sem fengið hafa nýtt hlutverk í ferða-
þjónustu en í umsögn íslensku dóm-
nefndarinnar segir að Stykkishólmur
sé „heillandi fiskiþorp“ þar sem hægt
sé að „losna úr ysnum og hægja á líf-
inu“.
Gyða Steinsdóttir, bæjarstjóri Stykk-
ishólms, var nýkomin heim frá verð-
launaafhendingunni í Brussel þegar
Fréttablaðið náði af henni tali. Hún er
að vonum ánægð með árangurinn, og
segir nú frekari kynningu á því sem
Stykkishólmur hefur upp á að bjóða
fram undan.
„Þetta er einstakt tækifæri til að
vekja athygli á ferðaþjónustunni í
bænum, á Snæfellsnesi og á Vestur-
landi almennt. Nú munum við vinna
með Ferðamálastofu og Markaðsstofu
Vesturlands að því að kynna þennan
Eden áfangastað en Vestfirðir fengu
verðlaunin á síðasta ári.“
Eden-verkefnið byggir að stórum
hluta á sjálfbærni
og umhverfisvænni
ferðamennsku. Gyða
segir þá staðreynd
að Stykkishólmur
geti flaggað Bláfán-
anum, umhverfis-
vottun sem bærinn
fékk árið 2003, hafa
skipt miklu í vali
staðarins.
Hún segir það
hafa verið gagnlegt að hitta fólk úr
ferðamálageiranum í Brussel. „Það
var gaman að hitta fólk sem er að
gera spennandi hluti í ferðaþjón-
ustu í Evrópu. Eden-verkefnið bygg-
ir á áfangastöðum úr alfaraleið og
við gátum borið saman bækur okkar.
Til dæmis þekktu þeir sem við hitt-
um þarna úti lítið til Íslands, annað
en Reykjavík, Gullfoss og Geysi. Við
vonum því að þetta skili jákvæðri kynn-
ingu. Það er ákveðinn hópur fólks sem
ferðast sérstaklega til Eden áfanga-
staða,“ segir Gyða og telur bæjarbúa
í Stykkishólmi meira en tilbúna til að
taka á móti gestum. heida@frettabladid.is
STYKKISHÓLMUR: FÆR EDEN-VERÐLAUNIN SEM GÆÐAÁFANGASTAÐUR
Stykkishólmur heillandi þorp
GYÐA
STEINSDÓTTIR
AFBURÐAÁFANGASTAÐUR Stykkishólmur hlaut Eden-verðlaunin sem afburðaáfangastaður í
Evrópu, einn af tuttugu og einum áfangastað um alla Evrópu.
JÓN G. SÓLNES bankastjóri og alþingismaður (1910-1986) var fæddur þennan dag.
„Konan er sterkasta aflið og hefur alltaf verið.“