Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 30
2 föstudagur 30. september
SALON REYKJAVÍK
NÝJA LÍNAN HAUST-VETUR 2011-2012
HAUTE COIFFURE FRANÇAISE
ER KOMIN Í HÚS
VERIÐ VELKOMIN
SALON REYKJAVÍK GRANDAGARÐI 5 101 REYKJAVÍK
OPIÐ MÁN - FÖS: 9 - 18 LAU: 10 - 13 SIMI: 56 85 305
núna
✽ Hoppað í polla
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Anton Brink Útlitshönnun Kristín
Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is
Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
meðmælin
BLEIKKLÆDD True Blood-
leikkonan Anna Paquin mætti í þess-
um bleika kjól í gala-kvöldverð í
Hollywood síðasta sunnudag.
NORDICPHOTOS/GETTY
Arndís Sigurðardóttir, nem-andi á frumgreinadeild í Há-
skólanum á Bifröst, gefur út sína
fyrstu bók í nóvember. Bókin
hefur hlotið titilinn Náttúruleg
fegurð og inniheldur uppskrift-
ir að ýmsum náttúrulegum húð-
kremum, möskum og hárvörum.
Arndís segist lengi hafa haft
áhuga á náttúrulegum snyrti-
vörum og lífrænu mataræði og
hóf í kjölfarið að prófa sig áfram
með uppskriftir að eigin kremum
og hárvörum. „Um tíma velti ég
því fyrir mér að hefja framleiðslu
á náttúrulegum snyrtivörum en
fannst skemmtilegri hugmynd
að gefa út bók með ýmsum upp-
skriftum sem ég hafði þróað í
gegnum tíðina,“ segir Arndís
sem viðurkennir jafnframt að
árangur inn hafi verið misjafn,
sumar uppskriftirnar heppnuð-
ust vel á meðan aðrar heppn-
uðust verr. „Einu sinni gerði ég
hárnæringu sem innihélt mæjó-
nes og það gekk ekki vel, hárið
varð stíft og leiðinlegt. En fólk
þarf ekki að hafa áhyggjur, allar
uppskriftirnar í bókinni hafa
verið prófaðar á mér og öðrum
með góðum árangri.“
Bókin inniheldur ekki aðeins
uppskriftir að snyrtivörum held-
ur einnig fróðleiksmola um hrá-
efnin og leiðbeiningar um hvaða
hráefni henti hverri húðtýpu.
Innt eftir því hvaða uppskrift sé
í uppáhaldi hjá henni er Arndís
ekki lengi til svars: „Uppáhalds-
maskinn minn er germaski sem
er mjög góður fyrir feita og bó-
lótta húð. Ég er alveg hætt að
kaupa mér húðvörur og hvers
kyns krem, nú bý ég þetta til sjálf
úr hráefni sem ég á til heima í
eldhúsi. Kosturinn við það er að
þú veist nákvæmlega hvaða efni
varan inniheldur og hún er að
auki mun ódýrari.“
Arndís segir að hjólin hafi fyrst
farið að snúast eftir að hún fann
útgefanda og viðurkennir að hún
sé mjög spennt að sjá bókina
tilbúna. „Bókin er svo fallega
myndskreytt og ég hlakka mikið
til að sjá hana tilbúna. Þetta
verður ein af bókunum sem taka
þátt í jólabókaflóðinu í ár og ég
er til í slaginn,“ segir hún glað-
lega að lokum.
- sm
Arndís Sigurðardóttir gefur út sína fyrstu bók í nóvember:
GERIR MASKA ÚR GERI
Fyrsta bókin Arndís Sigurðardóttir nemi gefur út sína fyrstu bók í nóvember. Hún nefnist Náttúruleg fegurð og inniheldur upp-
skriftir að náttúrulegum snyrtivörum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Uppistand og gaman
Listamaðurinn skemmtilegi Hug-
leikur Dagsson verður enn og aftur
með uppistand á Café Rosenberg
á sunnudag. Uppistandskvöld
Hugleiks hafa slegið í gegn og að
þessu sinni mun hann
fjalla um klám,
dauða, Brúðu-
bílinn og önnur
mál. Leikkonan
Anna Svava
mun hita upp
fyrir Hugleik.
Gamanið hefst
klukkan 21.00 og
er aðgangs-
eyrir 1.000
krónur.
Jóðl og bjórdrykkja
Oktoberfest verður haldið hátíð legt
á Kexinu á þriðjudaginn næsta.
Þýski sendiherrann á Íslandi mun
sjálfur dæla fyrsta bjórnum og
leðurbuxna klæddir jóðlarar munu
halda uppi stemningunni alla há-
tíðina. Þetta verður ekki bara bjór-
hátíð heldur einnig matarveisla
og boðið verður upp á
klassískar kræsingar á
borð við bratwurst og
schnitzel-samlokur.
Gamanið hefst klukkan
17.00 á þriðjudag.
ÆSKULJÓMI Precious-kremlínan frá L‘occitane inniheldur
Immortelle, blómið sem aldrei fölnar, og Bellis perennis, blóm ljóss-
ins. Í Immortelle Brightening-línunni má meðal annars finna dag-
krem, augnkrem og næturkrem sem gefa þér fallega húð sem
ljómar af æsku! Vörurnar eru allar án parabena.
Fyrirsætan Kate Moss hefur hannað
skartgripalínu sem kemur í versl-
anir í október. Skartgripirnir eru
framleiddir í samstarfi við merkið
FRED en Moss leitaði ekki langt yfir
skammt þegar hún sótti inn blástur
í hönnunina. Skartgripirnir eru
nefnilega nákvæmar eftir myndir
af húðflúri fyrirsætunnar og er þar
meðal annars að finna hjarta, akk-
eri, tvær svölur og mána.
Verðið á skartgripunum er frá
50.000 íslenskum krónum og upp
úr. - áp
Kate Moss með skartgripalínu:
Húðflúr er fyrirmynd
Húðflúr Kate Moss hannar skartgripi fyrir merkið FRED sem eru eftirmyndir af hennar
eigin húðflúri. Hér er hún ásamt eiginmanni sínum Jamie Hince. NORDICPHOTOS/GGETY