Fréttablaðið - 30.09.2011, Qupperneq 32
4 föstudagur 30. september
Sigrún Lilja Guðjóns dóttir, sem hannar skó og fylgihluti
undir heitinu Gyðja Collection,
hefur sent frá sér nýja línu sem
er meðal annars unnin úr ís-
lensku laxaroði og Swarovski-
kristöllum.
Sigrún Lilja segir skemmti-
legt að vinna með fiskroð enda
sé efnið bæði sterkt og meðfæri-
legt. „Það er gaman að vinna með
þetta hráefni því áferðin og lit-
irnir eru svo skemmtileg. Tísku-
merki á borð við Prada, Dior,
Ferragamo og Nike hafa einnig
verið að nota þetta hráefni í sína
hönnun.“
Sigrún Lilja var í fyrra feng-
in til að hanna brúðarskó leik-
konunnar Anítu Briem og eru
þeir úr laxaroði og skreyttir með
Swarovski-kristöllum. Skórn-
ir þóttu svo vel heppnaðir að í
kjölfarið var ákveðið að setja þá
í almenna sölu og bera þeir heit-
ið Aníta, í höfuðið á leikkonunni.
„Ég ákvað svo að framleiða líka
aðra skó til heiðurs Anítu og eru
þeir silfraðir að lit og þaktir krist-
öllum allan hringinn. Þeir skór
eru aðeins til í takmörkuðu upp-
lagi og heita Aníta Crystal.“
Sigrún Lilja er ekki fyrsti hönn-
uðurinn sem nefnir vöru í höfuð-
ið á leikkonu því tískuhúsið
Hermès nefndi hina heimsþekktu
Birkin-tösku í höfuðið á Jane
Birkin. Innt eftir því hvort hún
spái Anítu skónum sama langlífi
og Birkin-töskunni verður Sigrún
Lilja hugsi. „Skórnir eru þannig í
sniðinu að þeir gætu auðveldlega
orðið klassík og maður vonast
vissulega til þess. Hugmyndin var
að þeir verði mjög langlífir og að
við getum svo haldið áfram að
bæta við litum inn á milli. Þeir
hafa í það minnsta fallið vel í
kramið hjá viðskiptavinunum,“
segir hún að lokum
Vörurnar fást í Debenhams í
Smáralind og Duty Free Fashion
í Leifsstöð. - sm
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hannar úr fiskroði:
FYLGIHLUTALÍNA ÚR ROÐI
OG KRISTÖLLUM
Flott hönnun Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hefur sent frá sér nýja fylgihlutalínu sem er
meðal annars unnin úr fiskroði og kristöllum.
Vel skóuð Falleg leðurstígvél frá Gyðju Collection.
Kristalskreyttir
Aníta Crystal-skórnir
voru framleiddir í
takmörkuðu upp-
lagi. Þeir eru nefndir í
höfuði ð á leikkonunni
Anítu Briem.
Nafn Carine Roitfeld hefur verið mikið í umræðunni í
tískuheiminum síðan henni var sagt upp sem ritstjóra
hins franska Vogue. Miklar vangaveltur hafa verið uppi
um hvað Roitfeld ætli að taka sér fyrir hendur, en í
nýju viðtali í Dazed Digital flettir Roitfeld hulunni ofan
af framtíðarplönum sínum. Roitfeld ætlar að stofna
nýtt tímarit.
Tímaritið verður á ensku og kemur út fjórum sinn-
um ári en fyrsta tölublaðið kemur út næsta haust. „Það
er ekki hagkvæmt að hafa tímaritið á frönsku og það
verður fyrir alþjóðlegan lesendahóp. Það kemur út fjór-
um sinnum á ári vegna þess að ég vil að tímaritið verði
eitthvað fyrir safnara. Mig langar til að gera eitthvað sem
lítur vel út og er á sama tíma öðruvísi,“ segir Roitfeld í
samtali við Jefferson Hack, ritstjóra Dazed en með Roitfeld í
ritstjórn blaðsins verða ljósmyndarinn Mario Testino, stílistinn
og tískuráðgjafinn Marie-Amelie Sauve og Stephen Gan, ritstjóri
V Magazine. „Þetta er sannkallað draumateymi.“
Roitfeld var sagt upp störfum hjá franska Vogue vegna þess
að hún þótti of djörf. Sérstaklega var það tískuþáttur með litlum
stúlkum í aðalhlutverki sem stuðaði bæði lesendur og fjárfesta.
Roitfeld er þekkt í tískuheiminum fyrir að dansa á línunni milli
dirfsku og erótíkur en sjálf kallar hún stíl sinn fágaða erótík. Það
verður því eflaust mikill hamagangur í tískuheiminum þegar dreg-
ur að útgáfu blaðsins. - áp
Einkennisklædd Þröng, hnésíð
pils og skyrtur eru einkennisklæðn-
aður Roitfeld sem hún ber mjög vel.
NORDICPHOTOS/GETTY
Tískudrottningin Carine Roitfeld
ætlar að halda áfram í fjölmiðlum
og stofnar nýtt blað ásamt Mario
Testino meðal annarra.
Framtíðin ráðin hjá Roitfeld:
Snýr aftur í
blaðabransann