Fréttablaðið - 30.09.2011, Síða 34

Fréttablaðið - 30.09.2011, Síða 34
6 föstudagur 30. september ✽ gulur, rauður og grænn tíska Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is Aðalhönnuður Jil Sander-tísku-hússins, Raf Simons, hefur slegið í gegn enn og aftur með fallegri og tímalausri hönnun með vorlínunni 2012. Simons gæti þó verið á förum frá Jil Sander því sá orðrómur hefur heyrst að hann taki við af Stefano Pilati hjá Yves Saint Laurent. Simons er menntaður iðn- hönnuður en sneri sér að fata- hönnun skömmu eftir útskrift. Hann vakti fyrst athygli árið 1995 fyrir herra línu sem hann hann- aði undir eigin nafni. Hann tók við sem aðal hönnuður Jil Sander árið 2005 og hlaut strax einróma lof fyrir nútímalega og einfalda en fallega hönnun sína. Vorlínan 2012 innihélt meðal annars klassíska skyrtukjóla með stórum og miklum pilsum í anda sjötta áratugarins, hné- síð pils, fallega sniðnar stutt- buxur og skemmtilega peysur með mynstri sem minnti svo lítið á verk Picasso. - sm Raf Simons er einn sá hæfileikaríkasti: Slær aftur í gegn Frábær Hinn belgíski Raf Simons er einn sá hæfileikaríkasti í bransanum. Flíkur hans eru einfaldar en fallegar og nútíma- legar. NORDICPHOTOS/GETTY Kvenlegt Fallegur aðsniðinn kjóll frá tísku- húsinu Jil Sander. Fortíðarþrá Flíkurnar voru margar í anda sjötta áratugarins. Kynlíf eftir barneignir B arneignir eru ekki „sexý“. Það getur verið gaman að leggja drögin að þeim og búa barnið til en það sem tekur við er ekki það besta sem kemur fyrir par kynferðislega. Ég er oft spurð að því hvenær fólk geti byrj- að að stunda kynlíf aftur eftir barneignir. Svarið liggur ekki í ákveðnum fjölda vikna heldur er málið flóknara en svo. Nú get ég ekki talað fyrir allar mæður, aðeins sjálfa mig og þær þúsundir sem hafa tekið þátt í rann- sóknum um málefnið. Foreldrarnir eru oft vansvefta og umönnun barns- ins á hug þeirra allan. Að auki glímir móðirin við lífeðlislegar breytingar líkt og viðkvæmni á spangarsvæði, slappa grindarbotnsvöðva, legganga- þurrk, tilfinningalega viðkvæmni, breytta líkamsímynd og lekandi brjóst. Svo ekki sé minnst á fæðugjöf á tveggja klukkustunda fresti. Þessar að- stæður eru ekki þær rómantískustu. Við barneignir breytist því ýmislegt innan sambandsins og kynlíf fær- ist aftast á aðgerðalistann, ef það er þá yfirhöfuð á honum! Nýbakaðir feður eiga það til að upplifa sig afskiptalausa því barnið fær alla athygli móðurinnar. Barnið sýgur brjóst og hlýtur fulla aðdáun móður sinnar og er svo kjassað og knúsað og lítið verður eftir fyrir pabbann. Sumum kann að þykja það full mikil tilætlunar- semi af makanum að ætlast til þess að honum verði sinnt kynferðislega samhliða umönnun barns og heimilis. Það má vel vera og staðreyndin er sú að fyrsta árið í lífi barns er mesti álagspunkturinn á samband pars og eykur líkur á sambandsslitum. Þegar kynlíf er vandamál hefur það áhrif á alla anga sambandsins. Þó að kynlíf sé ekki á að- gerðalistanum fyrir daginn er það mikilvægur þáttur í lífi einstaklinga og sambands. Báðir einstaklingar þurfa á stuðningi hvor annars að halda og kynlíf er góð leið til að viðhalda innileika og jafnvægi innan sambandsins. Þó að mamman kjassi barnið hefur hún líka gott af því að vera kjössuð af pabbanum. Þetta er ekki spurning um að einn sinni öðrum heldur að báðir sinni hvor öðrum. Ef pabbinn vill fá athygli þarf hann að sinna mömmunni og sýna henni skilning og tillitssemi. Mamman endur geldur síðan greiðann. Þessi endurgjöf er mikilvæg fyrir geð- heilsuna, sambandið og barnið. Svarið við spurningunni um hvenær sé ráðlagt að stunda kynlíf eftir barn eignir er háð nokkrum skilyrðum. Löngun, getnaðar varnir, tími, skilningur og sleipiefni þurfa einnig að vera til staðar. Farið rólega af stað og munið að kynlíf er meira en bara typpi í píku. Njótið hvort annars og ykkar nýja hlutverks. Falleg hönnun Skyrtukjóll- inn vakti eftirtekt enda er flík- in sérstaklega falleg. MÝKIR HÚÐINA Nú þegar hitastigið lækkar og rokið fer að berja mann í framan er vissara að muna eftir góðri vörn á húðina, eins og rakagefandi kremi og farða. Nýi farðinn frá Clinique nefnist Repairwear Laser Focus og er sérhannaður til að milda hrukkur og fela misfellur. Farðinn á ekki að setj- ast í hrukkurnar en á að yngja, mýkja og slétta húðina með tímanum. Skórnir sem talað er um! Á RÚMSTOKKNUMSigga Dögg kynfræðingur

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.