Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 50

Fréttablaðið - 30.09.2011, Page 50
18 föstudagur 30. september Við eigum mikið úrval af gallabuxum á alla fjöl-skylduna á fínu verði,“ segir Sarah Cartwright, versl- unarstjóri Next í Kringlunni og nefnir sem dæmi að ódýr- ustu gallabuxurnar í dömudeild- inni séu á 4.990 og í barnadeild- inni á 2.490 krónur. „Við erum með mörg snið líka. Boot Cut er það sem konurnar heillast mest af, enda er það klæðilegt, hent- ar flestu vaxtarlagi og öllum aldri,“ segir hún: „Buxurnar eru þröngar yfir lærin en víkka örlít- ið fyrir neðan hné.“ Skinny er enn vinsælt snið hjá yngri aldurshópum, þar er átt við buxur sem eru þröngar alveg niður. „Og nú eru útvíð- ar skálmar á leiðinni inn aftur, „70-lúkkið“, segir Sarah glaðlega. „Við erum með buxur í þeim dúr líka. Litirnir eru hefðbundnir, sá dökkblái er alltaf vinsæll og líka svartur og ljósblár.“ Aðrar buxur en gallabuxur eru einnig í úrvali og ýmsum litum í Next. Þá er það svokallað chino- snið sem algengast er í buxum úr kakíefnum. Það lýsir sér í vídd að ofan og þröngum skálmum. Útvíðar skálmar á leiðinni inn aftur Í Next í Kringlunni fást gallabuxur í úrvali bæði á fullorðna og börn og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Sarah Cartwright er verslunarstjóri. „Boot Cut er það gallabuxnasnið sem konurnar heillast mest af,“ segir Sarah. FRÉTTABAÐIÐ/PJETUR Kynning - auglýsing M argir bíða óþreyjufullir eftir línunni sem tískuhúsið Ver- sace hannaði fyrir verslunar risann H&M, en hún er væntanleg í versl- anir 19. nóvember næstkomandi. Hluti línunnar var einnig notaður í myndaþátt fyrir rússneska Vogue sem þykir óvenjulegt því blaðið notar helst aðeins hátískuflíkur í slíka myndaþætti. Donatella Versace segist hafa tvinnað klassískri Versace-hönnun inn í H&M línuna. „Sem hönnuður lít ég ávallt til framtíðar og aldrei til fortíðar, en sem systir Gianni vildi ég nota klassíska Versace- hönnun og snið í línuna.“ Línan inniheldur fjörtíu kven- mannsflíkur, tuttugu herra flíkur auk fylgihluta. Flíkurnar eru mjög í anda Versace og eru kjólarnir margir þröngir, litríkir og með áberandi munstri. – sm Versace-línan fyrir H&M í hinu rússneska Vogue: Leitar til fortíðar Fortíðarþrá Donatella Versace sótti inn- blástur til eldri Versace-lína við hönnun- ina. NORDICPHOTOS/GETTY Litrík lína Hluti Versace-línunnar fyrir H&M var notaður í tískuþátt hins rússneska Vogue. J á, verður maður ekki láta á þetta reyna og dansa sig áfram,“ segir Sigrún Birna Blom- sterberg dansari, en hún ætlar að spreyta sig í nýjum raunveruleikaþætti Ríkissjónvarpsins Dans Dans Dans og undirbýr nú atriði fyrir áheyrendaprufurnar. Sigrún er mjög ánægð með þáttinn sem hún telur mikla lyftistöng fyrir danssamfélagið. „Ég hafði nú ekki hugsað mér að taka þátt en var hvött áfram af vinum og vandamönnum,“ segir Sigrún og bætir við að hún sé vinkona Ragn- hildar Steinunnar Jónsdóttur, sem er kynnir í þáttunum, og að hún hafi einnig hvatt Sigrúnu eindregið til þátttöku. „Ég held ég hafi ekki tekið þátt í keppni síðan í djassballettkeppnum í Tónabæ fyrir mörgum árum. Það er því pínu stressandi að standa svona einn á sviði en ég ætla bara að gefa allt í þetta og er búin að undirbúa brjálað atriði. Það þýðir ekkert annað.“ Þættirnir Dans Dans Dans fara í loftið í byrjun nóvember en prufur fara fram um helgina í Laugardalshöllinni. Sigrún er orðin þekkt nafn í dansheiminum hér á landi, en hún rekur sitt eigið dansstúdíó ásamt því að halda námskeið. Hún segist vita af mörgum dönsurum sem ætla að taka þátt. „Það er mikill áhugi á þessu og ég býst við svakalegri sam- keppni. Ég held kannski að reynsla mín á sviði og mín mikla orka geti hjálpað mér. Ég lofa allavega brjáluðu atriði af minni hálfu.“ - áp Fer í prufurnar fyrir Dans Dans Dans: Undirbýr brjálað atriði Reynir fyrir sér í raunveruleikaþætti Sigrún Birna Blomsterberg ætlar að spreyta sig í prufum fyrir nýja dans- þáttinn Dans Dans Dans og lofar brjáluðu atriði. ROSEBERRY Nýtt og áhrifaríkt efni fyrir þvagfærin ROSEBERRY inniheldur þykkni úr trönuberjum ásamt hibiscus og C-vítamíni. Þessi þrívirka blanda hefur reynst vel við þvagfæravandandamálum. 2-3 töflur á dag fyrir svefn Fæst í apótekum heilsu- búðum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Innflutningsaðili: Öflugt þrívirkt fæðubótarefni sem slegið hefur í gegn á Norðurlöndunum Ranka ráðagóða Til þess að halda sér frá þvagfæra- vandamálum er m.a. gott að drekka nóg af vatni, hreyfa sig reglulega, þrífa sig vel eftir klóset tferðir og eftir samlíf. KYNNINGARAFSLÁTTUR til 31. ágúst nk. 20%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.