Fréttablaðið - 30.09.2011, Side 72
30. september 2011 FÖSTUDAGUR44
sport@frettabladid.is
KEYRUM ‘ETTA Í GANG!
Stjarnan - Valur
Mýrin | Kl. 18.00
Fös. 30 sept. | N1-deild kvenna
Fram - HK
Framhús | Kl. 19.30
Fös. 30 sept. | N1-deild kvenna
FH - Haukar
Kaplakriki | Kl. 16.00
Lau. 1 okt. | N1-deild kvenna
ÍBV - Grótta
Vestmannaeyjar | Kl. 12.00
Lau. 1 okt. | N1-deild kvenna
M
ed
ia
G
ro
up
e
hf
|
H
SÍ
|
11
0
1
20
11
HEIÐAR HELGUSON hefur samkvæmt heimldum Fréttablaðsins ákveðið að hætta að gefa kost á sér í íslenska
landsliðið, í bili að minnsta kosti. Hann hætti einnig árið 2006 en sneri aftur tveimur árum síðar. Ekki náðist í Heiðar í
gær en hann á alls 55 leiki að baki og hefur skorað í þeim tólf mörk. Heiðar er á mála hjá QPR í Englandi.
FÓTBOLTI Atli Viðar Björnsson
hefur raðað inn mörkum í FH-
liðinu undanfarin ár og hefur nú
náð einstökum árangri í efstu
deild á Íslandi. Atli Viðar er
fyrstur til að ná fernunni – að
skora tíu mörk eða fleiri fjögur
sumur í röð.
KR-ingurinn Þórólfur Beck
varð fyrstur til að skora tíu mörk
(eða meira) þrjú tímabil í röð, en
hann skoraði 42 mörk í aðeins 27
leikjum á árunum 1959 til 1961.
Sautján ár liðu þar til Ingi Björn
Albertsson bættist í hópinn en
Atli Viðar varð síðan áttundi
meðlimurinn í klúbbnum í fyrra
og settist síðan í forstjórastólinn
á sunnudaginn var.
„Það eru heldur betur miklir
framherjar þarna. Það er heið-
ur að vera nefndur í sömu andrá
og þessir menn,“ sagði Atli Viðar
þegar hann fékk að heyra listann.
Atli Viðar er reyndar búinn að
skora yfir tíu mörk fimm tímabil
í röð því hann skoraði 14 mörk í
17 leikjum með Fjölni í b-deild-
inni sumarið 2007 en hann var
þar á láni frá FH.
„Það hefur gengið vel síðustu
ár og ég hef líka verið hepp-
inn með meiðsli og slíkt. Ég
hef náð að spila flestalla
leiki þessi tímabil. Á fyrri
hluta ferilsins þá sleit krossband
tvisvar og ég var mjög óhepp-
inn,“ segir Atli Viðar. Hann er
búinn að skora nákvæmlega 50
mörk á þessum fjórum tímabil-
um og það vekur athygli að ekk-
ert þeirra hefur komið úr víti.
„Það er algengt að helstu
markaskorararnir taki vítin líka
en það hafa verið nóg af mönn-
um í FH sem hafa viljað taka
vítin í gegnum tíðina og ég hef
ekki verið mikið að blanda mér
í þá baráttu,“ segir Atli Viðar en
hann hefur skorað 11 mörk í 19
leikjum í sumar.
„Þetta er búið að vera ágætt
tímabil. Mín markmið þegar
farið er inn í mótið er alltaf að
liðið nái árangri og helst hefði ég
vilja vinna einhverja titla. Það
var ekki og maður er því ekkert
alltof hress með niðurstöðuna.
Það er leikur á laugardaginn og
okkur langar til að klára annað
sætið með stæl,“ segir Atli Viðar
en hann er búinn að afskrifa það
að ná í gullskóinn enda fjórum
mörkum á eftir Garðari Jóhanns-
syni fyrir síðustu umferðina.
„Ég held að það sé nokkuð ljóst
að Garðar vinnur gullskóinn og
ég held að hann sé mjög vel að
honum kominn. Hvort sem ég
fæ skó eða ekki þá er það ekki
eitthvað sem skiptir miklu máli.
Aðalmálið er að við vinnum leik-
inn og klárum annað sætið úr því
sem komið er,“ segir Atli Viðar
sem hefur rétt misst af gull-
skónum undanfarin tvö tímabil
en hann fékk silfurskóinn sum-
arið 2009 og bronsskóinn í fyrra.
„Ég á engan gullskó, það er
rétt og vonandi kemur hann í hús
áður en ferillinn endar,“ segir
Atli Viðar.
Hann hefur skorað 73 mörk
fyrir FH í efstu deild og vantar
nú aðeins ellefu mörk til að jafna
markamet Harðar Magnús sonar
sem skoraði á sínum tíma 84
mörk fyrir FH í efstu deild.
„Hörður Magnússon er algjör
hetja í FH og í Hafnarfirði. Hann
er einn besti senter sem hefur
spilað í íslenska boltanum og ef
ég næ einhvern tímann að nálg-
ast hann í þessu þá verð ég veru-
lega stoltur af því,“ segir Atli
Viðar. Hann vonast til þess að
eiga nokkur góð ár eftir í bolt-
anum.
„Þegar maður hefur lent í
svona meiðslum þá áttar maður
sig á því að fótboltinn gæti verið
búinn á morgun. Það er því bara
að njóta lífsins á meðan þetta
varir og lifa fyrir daginn í fót-
boltanum,“ sagði Atli Viðar.
ooj@frettabladid.is
Tíu marka maður fjögur ár í röð
FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson skoraði tvö mörk gegn ÍBV í 21. umferð Pepsi-deildar karla um síðustu
helgi og varð um leið fyrsti leikmaðurinn í efstu deild á Íslandi til þess að skora tíu mörk eða fleiri fjögur
tímabil í röð. Atli Viðar komst í góðan félagsskap í fyrra en nú sló hann öllum köppunum við.
FIMMTÍU MÖRK Á FJÓRUM ÁRUM Atli Viðar Björnsson hefur skorað 50 mörk í 80 leikjum með FH frá 2008. Hér er hann í leik á
móti Breiðabliki í sumar á Kaplakrikavellinum þar sem 10 af 11 mörkum hans í ár hafa litið dagsins ljós. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Flest ár í röð með 10 mörk
4 Atli Viðar Björnsson 2008-2011
(FH 11 - FH 14 - FH 14 - FH 11)
3 Þórólfur Beck 1959-1961
(KR 11 - KR 15 - KR 16)
3 Ingi Björn Albertsson 1976-1978
(Valur 16 - Valur 15 - Valur 15)
3 Sigurlás Þorleifsson 1977-1979
(ÍBV 12 - ÍBV 10 - Víkingur 10)
3 Guðmundur Steinsson 1984-1986
(Fram 10 - Fram 10 - Fram 10)
3 Hörður Magnússon 1989-1991
(FH 12 - FH 13 - FH 13)
3 Mihajlo Bibercic 1993-1995
(ÍA 13 - ÍA 14 - KR 13)
3 Gunnar Heiðar Þorvaldss. 2002-04
(ÍBV 11 - ÍBV 10 - ÍBV 12)
Atli Viðar sumarið 2008
Árangur: Íslandsmeistari með FH
Leikir: 18 Mörk: 11
Sæti: Fjórði markahæstur
Skipting markanna:
Heima/Úti: 8/3
Fyrri/Seinni hálfleik: 7/4
Vinstri-hægri-skalli-víti: 4-7-0-0
Atli Viðar sumarið 2009
Árangur: Íslandsmeistari með FH
Leikir: 21 Mörk: 14
Sæti: Silfurskórinn
Skipting markanna:
Heima/Úti: 7/7
Fyrri/Seinni hálfleik: 8/6
Vinstri-hægri-skalli-víti: 2-11-1-0
Atli Viðar sumarið 2010
Árangur: 2. sæti með FH
Leikir: 22 Mörk: 14
Sæti: Bronsskórinn
Skipting markanna:
Heima/Úti: 8/6
Fyrri/Seinni hálfleik: 8/6
Vinstri-hægri-skalli-víti: 4-9-1-0
Atli Viðar sumarið 2011
Árangur: Mótinu er ekki lokið
Leikir: 19 Mörk: 11
Sæti: Er í 3. sæti
Skipting markanna:
Heima/Úti: 10/1
Fyrri/Seinni hálfleik: 4/7
Vinstri-hægri-skalli-víti: 1-8-2-0
FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson
landsliðsþjálfari hefur valið leik-
mannahóp sinn fyrir leikinn gegn
Portúgal ytra 7. október næst-
komandi. Verður það lokaleikur
Íslands í undankeppni EM 2012
og jafnframt lokaleikur Ólafs.
Hermann Hreiðarsson er
meiddur og þeir Heiðar Helgu-
son, Jón Guðni Fjóluson og Veigar
Páll Gunnarsson eru ekki í hópn-
um. Inn koma þeir Aron Einar
Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðs-
son og Gunnleifur Gunnleifsson
sem allir voru meiddir síðast.
Landsliðshópurinn
Markverðir
Gunnleifur Gunnleifsson FH
Stefán Logi Magnússon Lilleström SK
Hannes Þór Halldórsson KR
Varnarmenn
Indriði Sigurðsson Viking FK
Kristján Örn Sigurðsson Hønefoss BK
Birkir Már Sævarsson SK Brann
Sölvi Geir Ottesen Jónsson FC København
Arnór Sveinn Aðalsteinsson Hønefoss BK
Hjörtur Logi Valgarðsson IFK Gautaborg
Hallgrímur Jónasson SönderjyskE
Miðvallarleikmenn
Aron Einar Gunnarsson Cardiff City FC
Helgi Valur Daníelsson AIK
Jóhann Berg Guðmundsson AZ
Eggert Gunnþór Jónsson Hearts
Rúrik Gíslason OB
Birkir Bjarnason Viking FK
Matthías Vilhjálmsson FH
Gylfi Þór Sigurðsson TSG Hoffenheim
Sóknarmenn
Eiður Smári Guðjohnsen AEK FC
Kolbeinn Sigþórsson AFC Ajax
Alfreð Finnbogason KSC Lokeren OV
Landsliðið valið:
Aron Einar og
Gylfi aftur inn
ÓLAFUR Stýrir landsliðinu í síðasta sinn
gegn Portúgal. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Evrópudeild UEFA
OB - Fulham 0-2
Rúrik Gíslason kom inn á sem varamaður tólf
mínútum fyrir leikslok.
AEK - Sturm Graz 1-2
Eiður Smári Guðjohnsen spilaði allan leikinn fyrir
AEK. Elfar Freyr Helgason var ekki í hópi liðsins.
Metalist Kharkiv - AZ Alkmaar 1-1
Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði AZ.
Standard Liege - FC Kaupmannahöfn 3-0
Sölvi Geir Ottesen og Ragnar Sigurðsson spiluðu
báðir allan leikinn fyrir FC Kaupmannahöfn.
Tottenham - Shamrock Rovers 3-1
0-1 Stephen Rice (51.), 1-1 Roman Pavlyuchenko
(61.), 2-1 Jermain Defoe (63.), 3-1 Giovani Dos
Santos (66.).
Stoke - Besiktas 2-1
ÚRSLIT