Fréttablaðið - 30.09.2011, Side 74
30. september 2011 FÖSTUDAGUR46
Bíldshöfða / s: 585 7239 / opið alla daga
N1-deild karla
HK - Grótta 25-22 (11-9)
Mörk HK (skot): Atli Ævar Ingólfsson 6 (6), Bjarki
Már Elísson 5 (10/1), Bjarki Már Gunnarsson
4 (8), Ólafur Bjarki Ragnarsson 4 (10), Ólafur
Víðir Ólafsson 2 (2), Leó Snær Pétursson 2 (5),
Vilhelm Gauti Bergsveinsson 1 (2), Tandri Már
Konráðsson 1 (6).
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson 18/1 (40/1)
45%.
Hraðaupphlaup: 4 (Bjarki Gunn. 2 Bjarki Elís,
Vilhelm).
Fiskuð víti: 1 (Atli).
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Gróttu (skot): Þorgrímur Ólafsson 6 (9),
Árni Benedikt Árnason 6 (10/1), Jóhann Gísli
Jóhannesson 5 (10), Friðgeir Elí Jónasson 2 (6),
Ágúst Birgisson 1 (2), Benedikt Reynir Kristinsson
1 (3), Hjálmar Þór Arnarsson 1 (2).
Varin skot: Lárus Ólafsson 16 (37/1) 43%,
Magnús Sigmundsson 3 (7) 43%.
Hraðaupphlaup: 5 (Jóhann 2, Árni, Ágúst, Þor
grímur).
Fiskuð víti: 1 (Jóhann).
Utan vallar: 8 mín.
Dómarar: Bóas Börkur Bóasson og Hörður Aðal-
steinsson, þrælfínir.
Valur - Afturelding 25-20 (11-12)
Mörk Vals (skot): Sturla Ásgeirsson 8/2 (9/2),
Anton Rúnarsson 6 (12), Finnur Ingi Stefánsson
4 (9), Valdimar Fannar Þórsson 2 (2), Sigfús
Sigurðsson 2 (4), Sveinn Aron Sveinsson 1 (1),
Atli Báruson 1 (2), Einar Guðmundsson 0 (1),
Gunnar Harðarson 0 (3), Magnús Einarsson 0 (1),
Agnar Smári Jónsson 0 (2).
Varin skot: Hlynur Morthens 19 (19/3, 50%),
Ingvar Kristinn Guðmundsson 0/1 (1, 50%)
Hraðaupphlaupsmörk: 5 (Finnur Ingi 3, Sturla
og Sveinn Aron)
Fiskuð víti: 2 (Sigfús 2)
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Aftureldingar (skot): Hilmar Stefánsson
5/3 (7/4), Jóhann Jóhannsson 3 (9/1), Þorlákur
Sigurjónsson 3 (4), Eyþór Vestmann 2 (3), Daníel
Jónsson 2 (5), Þrándur Gíslason Roth 2 (5),
Sverrir Hermannsson 1 (10), Helgi Héðinsson 1
(1), Einar Héðinsson 1 (1), Pétur Júníusson 0 (1).
Varin skot: Davíð Svansson 9 (27, 0%.), Hafþór
Einarsson 4(9/2 , 30%.)
Hraðaupphlaup: 3 (Hilmar, Jóhann og Þorlákur)
Fiskuð víti: 5 (Þrándur, Jón Andri, Hilmar, Jóhann
og Einar)
Utan vallar: 8 mínútur.
STAÐAN
Valur 2 1 1 0 46-41 3
Akureyri 2 1 0 1 51-44 2
Haukar 1 1 0 0 27-22 2
Fram 1 1 0 0 28-23 2
FH 2 1 0 1 47-48 2
HK 2 1 0 1 47-49 2
Grótta 2 0 1 1 43-46 1
Afturelding 2 0 0 2 40-56 0
NÆSTI LEIKUR
Ásvellir: Haukar - Fram sunnudag kl. 16.00
ÚRSLIT
Akureyri - FH 20-24 (12-11)
Mörk Akureyrar (skot): Bjarni Fritzson 5 (6), Hörður Fannar Sigþórsson 4 (4), Geir Guð-
mundsson 4 (10), Oddur Gretarsson 4 (7), Guðmundur Hólmar Helgason 2 (6), Jón Heiðar
Sigurðsson 1 (3).
Varin skot: Stefán Guðnason 5 (10, 50%), Sveinbjörn Pétursson 14/2 (19, 42%).
Hraðaupphlaup: 2 (Hörður, Oddur). Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk FH (skot): Baldvin Þorsteinsson 8/1 (10/2), Örn Ingi Bjarkason 5 (8), Ragnar
Jóhannsson 3 (10), Ólafur Gústafsson 2 (5), Andri Berg Haraldsson 2 (7/1), Atli Rúnar Stein-
þórsson 2 (4), Þorkell Magnússon 1 (3), Ari M. Þorgeirsson 1 (1), Halldór Guðjónsson 0 (1).
Varin skot: Daníel Andrésson 19 (39, 56%),
Hraðaupphlaup: 5 (Baldvin 3, Örn, Ólafur). Fiskuð víti: 3 (Baldvin, Örn, Atli).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Anton G. Pálsson og Arnar Sigurjónsson. Arnar á margt ólært en Anton var góður.
HANDBOLTI FH vann Akureyri 20-24
í uppgjöri liðanna sem spiluðu um
Íslandsmeistaratitilinn í vor. Akur-
eyri komst í 5-0 en þá vaknaði FH-
vélin og kom sér inn í leikinn.
Sveinbjörn Pétursson byrjaði
frábærlega og varði reyndar vel
allan fyrri hálfleikinn. FH komst
ekki í takt við leikinn fyrr en Daní-
el Andrésson fór að verja, og það
gerði hann vel. Hann var maður
leiksins, varði alls 22 skot.
FH minnkaði muninn og stað-
an í hálfleik var 12-11. FH komst
svo yfir í upphafi seinni hálfleiks
en Baldvin Þorsteinsson og Daní-
el voru í sérflokki í gær. Örn Ingi
var skammt undan. Akureyringur-
inn Baldvin lék heimamenn grátt
og virðist vera í frábæru formi.
„Ég hef æft vel í sumar. Krist-
ján Arason sagði mig vera of feit-
an í fyrra, það er helvíti hart frá
honum komið. Öxlin var ekki 100%
í fyrra en hún er góð núna og mér
líður vel,“ sagði Baldvin.
Einar Andri Einarsson, annar
þjálfara FH, segir að liðið hafi
verið töluvert betra megnið af
leiknum. „Við byruðum skelfi-
lega, líklega var þetta flugþreyta.
Þegar kviknaði á okkur gekk þetta
vel. Við spiluðum frábæra vörn og
Danni fyrir aftan var magnaður,“
sagði Einar.
Sveinbjörn segir að lið Akur-
eyrar þurfi að fara í naflaskoðun.
„Það má ekki gerast að leikurinn
hrynji þegar það vantar tvo menn,
þó að þeir séu lykilmenn (Heimir
Örn er meiddur og Hörður Fannar
meiddist í seinni hálfleik, innsk.).
Við þurfum að skoða þetta vel,
ekki bara þeir sem koma inn á
heldur við allir, þar á meðal ég.
Við tókum kolrangar ákvarðanir í
sókninni og það er bara ekki boð-
legt,“ sagði Sveinbjörn. – hþh
Íslandsmeistararnir eru komnir á blað eftir góðan sigur fyrir norðan í gær:
FH hristi af sér flugþreytuna
DANÍEL ANDRÉSSON Var öflugur í marki FH og þótti besti maður leiksins á Akureyri í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HANDBOLTI HK vann nokkuð þægi-
legan sigur á Gróttu, 25-22, í frek-
ar slökum handboltaleik. HK var
alltaf skrefi á undan. Valsmenn
unnu á sama tíma góðan sigur á
Aftureldingu, 25-20.
Heimamenn í HK tóku öll völd
á vellinum strax í upphafi og kom-
ust í 5-1. Þá hrökk markvörður
Gróttu, Lárus Ólafsson, í gang en
hann varði 14 skot í fyrri hálfleik
og aðeins munaði tveimur mörkum
á liðunum í hálfleik, 11-9.
Lárus gaf eftir í markinu í síð-
ari hálfleik og HK gekk á lagið.
Náði þægilegu forskoti, 20-15, og
það bil náði Grótta aldrei að brúa.
Gróttumenn voru baráttuglaðir og
duglegir en talsvert vantar upp á
gæðin í liðinu til að það geti tekið
stig af sterku liði eins og HK.
„Það er sterkur karakter í þessu
liði eins og sjá mátti í dag. Við gef-
umst aldrei upp,“ sagði þjálfari
Gróttu, Guðfinnur Kristmanns-
son, en honum finnst fínt að eng-
inn búist við neinu af Gróttu liðinu.
„Verkefnið gæti ekki verið auð-
veldara þannig séð. Leiðin liggur
aðeins upp á við.“
HK-liðið er að slípast saman.
Það lék ekki vel í gær en nógu vel
til að vinna. „Það tekur tíma að
finna taktinn en við vorum nógu
góðir til að vinna í dag án þess að
vera að fara á taugum undir lokin.
Það var jákvætt,“ sagði Kristinn
Guðmundsson, annar þjálfara HK.
Valsmenn góðir í seinni hálfleik
Góður síðari hálfleikur skilaði Val
sigri gegn Aftureldingu sem hafði
eins marks forystu í hálfleik. Vals-
menn unnu að lokum sannfærandi
sigur.
Hlynur Morthens átti stórleik
og varði 19 skot. Sturla Ásgeirsson
var einnig fínn fyrir heimamenn
en hann gerði 8 mörk.
„Þeir voru grimmari en við í
fyrri hálfleiknum en við komum
síðan sterkir til baka í þeim
síðari,“ sagði Óskar Bjarni Óskars-
son, þjálfari Vals, eftir leikinn.
„Hlynur (Morthens) var frábær
í kvöld og sóknarleikur okkar varð
betri eftir því sem leið á leikinn.
Það var mun meiri léttleiki yfir
leik okkar í síðari hálfleiknum, en
menn voru bara ekki með í byrjun.
Við þurftum að dreifa álaginu
mikið í kvöld og ungu strákarnir
stóðu sig virkilega vel í kvöld.“
„Við erum mjög óánægðir með
okkar leik og sérstaklega í síðari
hálfleiknum,“ sagði Gunnar
Andrés son, þjálfari Aftur eldingar,
eftir leikinn.
„Þetta var þokkalegt hjá okkur
í fyrri hálfleik en síðan misstum
við alveg dampinn í þeim síðari.
Við erum að elta þá allan síðari
hálfleikinn og gerðum allt of
mörg mistök í öllum leiknum. Við
erum alls ekki nægilega ánægðir
með þessa byrjun á tímabilinu og
verðum heldur betur að vinna í
okkar málum.“ - hbg, sáp
Þægilegir sigrar Vals og HK
HK og Valur unnu bæði sína fyrstu sigra í N1-deild karla í gær með sigrum á
Gróttu og Aftureldingu. Mosfellingar byrjuðu vel á móti Val en heimamenn
sigu fram úr í seinni hálfleik. HK-ingar voru alltaf skrefi framar gegn Gróttu.
ÁTÖK Atli Ævar Ingólfsson, línumaður HK, í baráttu við Gróttumanninn Friðgeir Elí
Jónasson í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Valur náði í gær góðu
jafntefli gegn Glasgow Celtic,
1-1, í Skotlandi. Þetta var fyrri
viðureign liðanna í 32- liða úrslit-
um Meistaradeildar Evrópu en
þau mætast aftur á Vodafone-
vellinum í næstu viku.
Heimamenn byrjuðu betur og
komust yfir á 16. mínútu. Vals-
menn unnu sig betur inn í leikinn
og uppskáru jöfnunarmark á 59.
mínútu sem Laufey Ólafsdóttir
skoraði eftir óbeina aukaspyrnu í
vítateig heimamanna.
Gunnar Rafn Borgþórsson,
þjálfari Valskvenna, var ánægð-
ur með jafnteflið. „Við hefðum
auðvitað viljað vinna leikinn. Við
áttum til að mynda skot í slá og
fengum góð færi þar að auki. En
það fengu Skotarnir líka sem þeir
hefðu getað nýtt betur,“ sagði
Gunnar Rafn við Fréttablaðið í
gær.
„Þetta er því nokkuð sanngjörn
niðurstaða og það er gott að geta
farið héðan með útivallarmark
í farteskinu. Við vorum nokkuð
stressaðar fyrstu 20 mínúturn-
ar en þegar við áttuðum okkur
betur á þeirra leik gekk okkur
betur. Það er ljóst að það verður
erfitt verkefni að ætla að fara
áfram því við erum að mæta afar
sterku liði. En við ætlum okkur
áfram,“ bætti þjálfarinn við. - esá
Meistaradeild kvenna:
Laufey tryggði
Val jafntefli
LAUFEY Skoraði dýrmætt útivallarmark í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG