Íslendingur


Íslendingur - 31.05.1946, Síða 1

Íslendingur - 31.05.1946, Síða 1
Frá bæjarstiórn SKRIFSTOFA SJÁLFSTÆÐISMANNA (í Ryels-húsinu. Sími 354) verðu'r fyrst um sinn opin alla virka daga frá kl. 2 til 7 e. h. Fastlega er skorað á alla Sjálfstæðismenn og konur, að koma á skrif- stofuna og veita aðstoð sína við undirbún- ing Alþingiskosninganna. Athugið hvort þér eruð d kjörskrá! FULLTRÚARÁÐIÐ. Þetta er síðasta blað „íslend- ings“, sem jeg annast ritstjórn á, eins og um var samiS í velur. Brynleijur Tobiasson. EINING — EKKI KLOFNING Andstæðingar Sjálfstæðisflokks- ins hafa síðaslliðinn hálfan mánuð verið að kjamsa á því, að klofnir myndn Sjálfstæðismenn ganga til kosninga í Reykjavík. Það var held- ur en ekki gónisætt! Mikið hlökkuðu þeir til. En svo rann 25. maí upp, og var þá listi Sjálfstæðismanna í Reykjavík við Alþingiskosningarnar 30. júní hirtur, jiannig: 1. Pjetur Magnússon, fjárm.herra 2. Hallgrímur Benediktsson, alþm. 3. Sigurður Kristjánsson, alþm. 4. Jóhann Hafstein, framkv.stjóri Sjálfstæðisflokksins. 5. Björn piafsson, fyirv. ráðherra. 6. Bjarni Benediktsson, horgarstj. 7. Auður Auðuns, cand. jur. 8. Axel Guðmundsson, form. Óðins 9. Guðm. H. Guðmundsson, hús- gagnasm.m. 30. Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri. 11. Kristján Jóhann Kristjánsson, forstjóri. 12. Ragnar Lárusson, form. Varðar 33. Ilelga Þorgilsdóttir, kennari. 14. Björgvin Sigurðsson, cand. jur. 15. Matthías Einarsson, læknir. 16. Bjarni Jónsson, dómkirkjuprest- ur. Listinn var samþykklur með al- kvæðum nær allra fulltrúaráðsmanna Sjálfstæðisfjelaganna í Reykjavík á fundi þeirra 24. þ. m. Bjarni borgarstjóri, sem fcngið liafði nær öll greidd atkvæði við prófkosningarnar, gerði jiað að sinni tillögu, að hann yrði í sjötta sætinu — barátlusœti listans. Vonir andstæðinga Sjálfstæðis- flokksins brugðust alveg. Það er eining, en ekki klofning, í liði Sjálf- stæðismanna, bœSi í Reykjavík og annars staðar í landinu við í hönd farandi Aljjingiskosningar. Þeir risu npp aftur Frjctzt hafði fyrir nokkru, að al- þingismennirnir Barði Guðmunds- son, Björn Kristjánsson og Sigfús Sigurhjartarson yrði ekki í kjöri aftur við kosningarnar í vor. En Jreir risu allir upp aftur og verða i kjöri: Barði á Seyðisfirði, Björn í Norður-Þingeyjarsýslu og Sigfús í Reykj avík. Formaður yíirkjörstjórnar í Eyjafjarðarsýslu er ekki lengur i’jetur á Hranastöð- um, heldur ba;jarfógetinn í Ólafsfirði (eins og á slendur að lögum, sbr. 1. frá 1942). Fundur 21. þ. m. Bæjarstjóri fjarver., Jakoh Frímannsson, Þorst. M. Jónsson, Friðjón Skarphjeðins- son og Steingr. Aðalsteinsson. 1 þeirra stað mættir: Þorsteinn Stefáns son bæjargjaldkeri (settur bæjar- stjóri), Guðm. Guðlaugsson, dr. Kristinn Guðmundsson, Jón Ingi- marsson og Albert Sölvason* Byggingarnefna MatthíasarbóhhlöSu kosin: Jón G. Sólnes, Guðm. Guð- laugsson, Þórarinn Björnsson og Steingr. Aðalsteinsson. Stúdenlafje- laginu á Akureyri gefinn kostur á að nefna til einn mann í nefnina. Nejnd til aS gera lillögur um um- ferS í bænum kosin: Svafar Guð- mundsson, Gunnar Jónsson og Guð- mundur Snorrason. Lögreglustjóri skal velja einn og Bílstjórafjelag Akureyrar einn til viðbótar í nefnd* ina. Kolasala og kolageymsla. Þess óskað, að kolasalar bæjarins flytji kolageymslu og kolasölu burt af hdfnarbakkanum, þar sem megn ó- þrifnaður stafar af kolunum á þess- um stað, að dómi heilbrigðisnefnd- ar. Ný kolageymslusvæði verði út- húin á Oddeyrarlanga svo snennna, að kol, sem koma lil bæjarins í haust, verði sett þar á land. Lokun söiubúSa. Fjelag verzlunar- og skrifstofufólks fer fram á breyl- ingar á reglugerð um lokun sölu- húða. Svafar Guðmundsson flulli röksludda dagskrá á þá leið, að þar sem samkomulagstilraunir hafi ekki farið fram milli verzlunarfólks og verzlunareigenda, vænti bæjarstjórn þess, að slíkt samkomulag verði reynt, og taki bún því ekki afstöðu til málsins að sinni. Sþ. 6 : 5 atkv. Kommúnistar og Kratar vildu ekki, að samkomulag yrði reynt. ÁburSarverksmiSjan. Lagt fram erindi frá áburðarverksmiðjunefnd ríkisins, þar sem hún skýrir frá, .að gert sje ráð fyrir, að váentaleg á- burðarverksmiðja muni nota nálægt jiví alla orku, sem fæst með viðbólar virkjun í Laxá, samkv. áætlun Árna Pálssonar. Ennfr. að Á. P. hefði Iátið áburðarvcrksm.nefnd í tje Jiað álit silt, að á þessum tímum muni það ekki taka skemmri tíma en 2V2 ár, að fullgera yiðbótarvirkjun við Laxá. Bæjarráði falið að fara suður út af þessum málum. Skógrœktarjjelag EyjirSinga ósk- ar eftir landspildu, sunnan af Kjarna nýrækt, allt að 10 ha. að stærð og ennfr. móspildu fyrir ofan umrætt svæði, norðan Brunnár. Sþ. að leigja fjelaginu umbeðið land eftir nánari útmælingu með erfðafestukjörum. Bærinn leggur fram ræktun og girð- ingar lil fjelagsins sem framlag, en fjelagið annast girðingu milli síns og bæj arlandsins. Fótstallur undir brjóstlíkan. Skóg- ræktarstjóri fer fram á, að bærinn kosti fótstall undir brjóstlíkan af Páli Briem, sem á að setja upp í gróðrastöðinni. Samþ. að leggja fram 5 þús. kr., enda sje fótstallur- inn reistur og fullkomlega gengið frá honum og uppsetningu myndar- innar, jafnframt því sem brjóstlík- neski af Sigurði Sigurðssyni búnað- armálastjóra verði sell þar upp. Bqrnaleikvöllur. Sam|). uppdrátt- ur af barnaleikvellinum við Helga- magra-stræti með þeim breytingum, að gangstígir verði breikkaðir úr 1W m. í 3 m. og skúrinn stækkaður í ca. 4 x 12 m. — Á yfirstandandi sumri verður ekki hægt að koma upp leikvellinum við Lækjargötu, Jjar eð útlit er fyrir, að allt það fje, er ætl- að var til barnaleikvalla á árinu, gangi til vallarins við H.m.str. Kosin ncjnd til jorustu þjóShátíS 17. júní: Árni Sigurðsson, Arnþór Þorsteinsson, Jón Hinriksson og Jón Ingimarsson. Starfi þeir með 2 mönn um frá Iþróttahandalagi Akureyrar og einum manni frá hljómlistar- handalaginu. Bærinn annast undir- húning hátíðahaldanna. SjómannadagsráSi heimiluð afnot af túninu sunnan sundlaugarinnar til samkomuhalds 2. júní. Bindindismálajundur. Samþ. sam- kv. lilmælum Slórslúku lslands að senda einn eða tvo fulltrúa á hind- indismálafund í Rvík. Rafveitugjalda-innheimta. Um- sóknir höfðu borist frá 19 mönnum um innheimtumannsstöðuna, scm auglýst hafði verið, og hafði raf- veitunefnd lagt til, að Marteinn Sig- urðsson bæjarftr. yrði ráðinn sem innheimtumaður. — Svafar Guð- mundsson lagði til, að Jjessari til- lögu væri vísað aflur til nefndarinn- ar til nánari athugunar, og var það sþ. með 5 alkv. gegn 3. Merkilegur fornleifa- fundur Að Kaldárhöfða við Úlfljótsvatn hefir nýlega fundist gröf frá 10. öld með mörgum vopnum og gripum. Kristján Eldjárn fornminjafræðing- ur, telur |ietta merkilegasta forn- minjafund á Jslandi. Þarna hefir ver ið grafinn mikill höfðingi og góðir gripir með honum, svo sem sverð, spjót, örvar, hnífar, axir og skjöld- ur. Skjaldarbólan var ein eftir af skildinum. Sverðið liefir verið nokk- uð á annan meter að lengd, hjöltun og sverðshnúðurinn úr hronze. Er J)ctla veglegasta sverðið, er fundist hefir í jörð hjer á landi. Enn var þar í gröfinni beltissylgja og beltis- sproti úr hronze og skotsilfur höfð- ingjans við beltisstað: silfurþráður vafinn upp í hring. Svo voru þar fleiri gripir. Bátur hefir verið í haugnum. Bein mannsins voru öll rotnuð nema tveir jaxlar. Hvenær kynntust r Islendingar fyrst rauða fánanum? Það eru 319 ár síðan. — Svo segir í Skarðsárannál (1627). „. . . . Einninn Jjá síðar í Juliománuði komu þrjú ræningjaskip tyrknesk að Vestmannaeyjum,* fyrst sunnan að eyjunum, létu þar út 3 stóra báta, fulla af mönnum, og fóru þar upp á eyjarnar óvanalegu uppgöngu. Skrifar séra Olafur Egilsson, það muni verið hafa 300 manns. Þeir skiptu sjer í liópa um eyjarnar með sínum rauðum merkjum, herbúnaði, herópi og óhljóðum, inntóku Jrær allar, ráku fólkið sem fé að Dönsku- húsum, drápu sumt og söxuðu sund-" ur; suma skutu þeir til dauðs. Það merkilega skáld, Jón prest Þorsteins- son, líflálu þeir, en ræntu á brott hans konu, syni og dóttur . . . .“ Þessar eru fyrstu minningar Is- lendinga um rauSu merkin, sem flokkar manna ganga undir. Það er nú ráðið, að forsprakki rauSHSa á Islandi, hr. Brynjólfur Bjarnason, verði í kjöri í Vestmannaeyjum við næstu Alþingiskosningar, af hálfu jlokksins meS rauSa fánann. Þetta er líklcga nokkuð smekklegt og hýsna nærgætnislegt við Vestmanna- eyinga! Ekki er því samt spáð nú, að þeir, sem ganga undir „rauðu merkjunum“, muni „inntaka“ allar eyjarnar. FÆREYINGAR œtla aS auka jiskijlotann. Lögþingið í Þórhöfn samþykkti 9. J). m. að leita fyrir sjer um lán í Englandi, að upphæð þh milj. sterl- ingspunda, til endurnýjunar fiski- flotanum. Fólkaflokkurinn og Sósíal- demokratar greiddu atkvæði með lántökunni, en Sambandsflokkurinn og einn Sócialdimokrat (Davidsen) greiddu ekki atkvæði. Steindór Steindórsson menntaskólakennari verður í kjöri fyrir AlJjýðuflokkinn hjer í bænum við Alþingiskosningarnar 30. júní. „Alþýðublaðið44 og „Alþýðumaðurinn“ eru alltaf að tala um vaxandi fylgi Alþýðuflokks- ins, er komið hafi í ljós við síðustu bæj arstj órnarkoisningar. Hagtíðind- in — marzhefti — skýra frá úrslit- um þessara kosninga. Samkvæmt þeim hefir AlJjýðuflokkuriim fengið 21,6% atkvæða við bæjarstjórnar- kosningarnar 1946, en 1942 fjekk hann 24,4% atkvæða. Þetta sýnir þverrandi, en ekki vaxandi fylgi á þessum fjórum árum. Samsvarandi tölur urn fylgi Sjálfstæðisflokksins eru 42,9% (1946) og 42,8 (1942). — Jeg trúi Hagtíðindunum betur en fyrrnefndum blöðum, að þeim ann- ars alveg ólöstuðum. Framboð af hálfu Sj álfstæðisflokksins, nýlega ráðin: 1 Skagafj.sýslu: 1. Jón Sigurðs- son, alþm. á Reynistað, 2. Pjetur Hannesson, sparisjóðsstjóri á Sauð- árkrók, 3. Haraldur Jónasson, bóndi á Völlum, 4. Eysteinn Bjarnason, oddviti á Sauðárkrók. A SeySisjirSi: Lárus Jóhannes- son, alþm. í Rvík. I SuSur-Múlasýslu: 1. Gunnar A. Pálsson, bæjarfógeti í Neskaupstað, 2. Einar Sigurðsson, skipasmiður á Fáskrúðsfirði, 3. Eiríkur Bjarna- son, frkvstj. á Eskifirði, 4. Páll Guð- mundsson, bóndi í Gilsárstekk. / Vestur-ísafj.sýslu: Axel Tulini- us, lögreglustjóri í Bolungarvík. Framboðsfrestur til Alþingis er útrunninn 2. júní n.k.

x

Íslendingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.