Íslendingur - 31.05.1946, Qupperneq 1
Frá bæjarstiórn
SKRIFSTOFA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
(í Ryels-húsinu. Sími 354)
verðu'r fyrst um sinn opin alla virka daga
frá kl. 2 til 7 e. h. Fastlega er skorað á alla
Sjálfstæðismenn og konur, að koma á skrif-
stofuna og veita aðstoð sína við undirbún-
ing Alþingiskosninganna.
Athugið hvort þér eruð d kjörskrá!
FULLTRÚARÁÐIÐ.
Þetta er síðasta blað „íslend-
ings“, sem jeg annast ritstjórn
á, eins og um var samiS í velur.
Brynleijur Tobiasson.
EINING —
EKKI KLOFNING
Andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins hafa síðaslliðinn hálfan mánuð
verið að kjamsa á því, að klofnir
myndn Sjálfstæðismenn ganga til
kosninga í Reykjavík. Það var held-
ur en ekki gónisætt! Mikið hlökkuðu
þeir til.
En svo rann 25. maí upp, og var þá
listi Sjálfstæðismanna í Reykjavík
við Alþingiskosningarnar 30. júní
hirtur, jiannig:
1. Pjetur Magnússon, fjárm.herra
2. Hallgrímur Benediktsson, alþm.
3. Sigurður Kristjánsson, alþm.
4. Jóhann Hafstein, framkv.stjóri
Sjálfstæðisflokksins.
5. Björn piafsson, fyirv. ráðherra.
6. Bjarni Benediktsson, horgarstj.
7. Auður Auðuns, cand. jur.
8. Axel Guðmundsson, form. Óðins
9. Guðm. H. Guðmundsson, hús-
gagnasm.m.
30. Ásgeir Sigurðsson, skipstjóri.
11. Kristján Jóhann Kristjánsson,
forstjóri.
12. Ragnar Lárusson, form. Varðar
33. Ilelga Þorgilsdóttir, kennari.
14. Björgvin Sigurðsson, cand. jur.
15. Matthías Einarsson, læknir.
16. Bjarni Jónsson, dómkirkjuprest-
ur.
Listinn var samþykklur með al-
kvæðum nær allra fulltrúaráðsmanna
Sjálfstæðisfjelaganna í Reykjavík á
fundi þeirra 24. þ. m.
Bjarni borgarstjóri, sem fcngið
liafði nær öll greidd atkvæði við
prófkosningarnar, gerði jiað að sinni
tillögu, að hann yrði í sjötta sætinu
— barátlusœti listans.
Vonir andstæðinga Sjálfstæðis-
flokksins brugðust alveg. Það er
eining, en ekki klofning, í liði Sjálf-
stæðismanna, bœSi í Reykjavík og
annars staðar í landinu við í hönd
farandi Aljjingiskosningar.
Þeir risu npp aftur
Frjctzt hafði fyrir nokkru, að al-
þingismennirnir Barði Guðmunds-
son, Björn Kristjánsson og Sigfús
Sigurhjartarson yrði ekki í kjöri
aftur við kosningarnar í vor.
En Jreir risu allir upp aftur og verða
i kjöri: Barði á Seyðisfirði, Björn í
Norður-Þingeyjarsýslu og Sigfús í
Reykj avík.
Formaður
yíirkjörstjórnar í Eyjafjarðarsýslu
er ekki lengur i’jetur á Hranastöð-
um, heldur ba;jarfógetinn í Ólafsfirði
(eins og á slendur að lögum, sbr. 1.
frá 1942).
Fundur 21. þ. m. Bæjarstjóri
fjarver., Jakoh Frímannsson, Þorst.
M. Jónsson, Friðjón Skarphjeðins-
son og Steingr. Aðalsteinsson. 1
þeirra stað mættir: Þorsteinn Stefáns
son bæjargjaldkeri (settur bæjar-
stjóri), Guðm. Guðlaugsson, dr.
Kristinn Guðmundsson, Jón Ingi-
marsson og Albert Sölvason*
Byggingarnefna MatthíasarbóhhlöSu
kosin: Jón G. Sólnes, Guðm. Guð-
laugsson, Þórarinn Björnsson og
Steingr. Aðalsteinsson. Stúdenlafje-
laginu á Akureyri gefinn kostur á
að nefna til einn mann í nefnina.
Nejnd til aS gera lillögur um um-
ferS í bænum kosin: Svafar Guð-
mundsson, Gunnar Jónsson og Guð-
mundur Snorrason. Lögreglustjóri
skal velja einn og Bílstjórafjelag
Akureyrar einn til viðbótar í nefnd*
ina.
Kolasala og kolageymsla. Þess
óskað, að kolasalar bæjarins flytji
kolageymslu og kolasölu burt af
hdfnarbakkanum, þar sem megn ó-
þrifnaður stafar af kolunum á þess-
um stað, að dómi heilbrigðisnefnd-
ar. Ný kolageymslusvæði verði út-
húin á Oddeyrarlanga svo snennna,
að kol, sem koma lil bæjarins í
haust, verði sett þar á land.
Lokun söiubúSa. Fjelag verzlunar-
og skrifstofufólks fer fram á breyl-
ingar á reglugerð um lokun sölu-
húða. Svafar Guðmundsson flulli
röksludda dagskrá á þá leið, að þar
sem samkomulagstilraunir hafi ekki
farið fram milli verzlunarfólks og
verzlunareigenda, vænti bæjarstjórn
þess, að slíkt samkomulag verði
reynt, og taki bún því ekki afstöðu
til málsins að sinni. Sþ. 6 : 5 atkv.
Kommúnistar og Kratar vildu ekki,
að samkomulag yrði reynt.
ÁburSarverksmiSjan. Lagt fram
erindi frá áburðarverksmiðjunefnd
ríkisins, þar sem hún skýrir frá, .að
gert sje ráð fyrir, að váentaleg á-
burðarverksmiðja muni nota nálægt
jiví alla orku, sem fæst með viðbólar
virkjun í Laxá, samkv. áætlun Árna
Pálssonar. Ennfr. að Á. P. hefði
Iátið áburðarvcrksm.nefnd í tje Jiað
álit silt, að á þessum tímum muni
það ekki taka skemmri tíma en 2V2
ár, að fullgera yiðbótarvirkjun við
Laxá.
Bæjarráði falið að fara suður út
af þessum málum.
Skógrœktarjjelag EyjirSinga ósk-
ar eftir landspildu, sunnan af Kjarna
nýrækt, allt að 10 ha. að stærð og
ennfr. móspildu fyrir ofan umrætt
svæði, norðan Brunnár. Sþ. að leigja
fjelaginu umbeðið land eftir nánari
útmælingu með erfðafestukjörum.
Bærinn leggur fram ræktun og girð-
ingar lil fjelagsins sem framlag, en
fjelagið annast girðingu milli síns
og bæj arlandsins.
Fótstallur undir brjóstlíkan. Skóg-
ræktarstjóri fer fram á, að bærinn
kosti fótstall undir brjóstlíkan af
Páli Briem, sem á að setja upp í
gróðrastöðinni. Samþ. að leggja
fram 5 þús. kr., enda sje fótstallur-
inn reistur og fullkomlega gengið
frá honum og uppsetningu myndar-
innar, jafnframt því sem brjóstlík-
neski af Sigurði Sigurðssyni búnað-
armálastjóra verði sell þar upp.
Bqrnaleikvöllur. Sam|). uppdrátt-
ur af barnaleikvellinum við Helga-
magra-stræti með þeim breytingum,
að gangstígir verði breikkaðir úr
1W m. í 3 m. og skúrinn stækkaður
í ca. 4 x 12 m. — Á yfirstandandi
sumri verður ekki hægt að koma upp
leikvellinum við Lækjargötu, Jjar eð
útlit er fyrir, að allt það fje, er ætl-
að var til barnaleikvalla á árinu,
gangi til vallarins við H.m.str.
Kosin ncjnd til jorustu þjóShátíS
17. júní: Árni Sigurðsson, Arnþór
Þorsteinsson, Jón Hinriksson og Jón
Ingimarsson. Starfi þeir með 2 mönn
um frá Iþróttahandalagi Akureyrar
og einum manni frá hljómlistar-
handalaginu. Bærinn annast undir-
húning hátíðahaldanna.
SjómannadagsráSi heimiluð afnot
af túninu sunnan sundlaugarinnar
til samkomuhalds 2. júní.
Bindindismálajundur. Samþ. sam-
kv. lilmælum Slórslúku lslands að
senda einn eða tvo fulltrúa á hind-
indismálafund í Rvík.
Rafveitugjalda-innheimta. Um-
sóknir höfðu borist frá 19 mönnum
um innheimtumannsstöðuna, scm
auglýst hafði verið, og hafði raf-
veitunefnd lagt til, að Marteinn Sig-
urðsson bæjarftr. yrði ráðinn sem
innheimtumaður. — Svafar Guð-
mundsson lagði til, að Jjessari til-
lögu væri vísað aflur til nefndarinn-
ar til nánari athugunar, og var það
sþ. með 5 alkv. gegn 3.
Merkilegur fornleifa-
fundur
Að Kaldárhöfða við Úlfljótsvatn
hefir nýlega fundist gröf frá 10. öld
með mörgum vopnum og gripum.
Kristján Eldjárn fornminjafræðing-
ur, telur |ietta merkilegasta forn-
minjafund á Jslandi. Þarna hefir ver
ið grafinn mikill höfðingi og góðir
gripir með honum, svo sem sverð,
spjót, örvar, hnífar, axir og skjöld-
ur. Skjaldarbólan var ein eftir af
skildinum. Sverðið liefir verið nokk-
uð á annan meter að lengd, hjöltun
og sverðshnúðurinn úr hronze. Er
J)ctla veglegasta sverðið, er fundist
hefir í jörð hjer á landi. Enn var
þar í gröfinni beltissylgja og beltis-
sproti úr hronze og skotsilfur höfð-
ingjans við beltisstað: silfurþráður
vafinn upp í hring. Svo voru þar
fleiri gripir. Bátur hefir verið í
haugnum.
Bein mannsins voru öll rotnuð
nema tveir jaxlar.
Hvenær kynntust
r
Islendingar fyrst
rauða fánanum?
Það eru 319 ár síðan. — Svo
segir í Skarðsárannál (1627). „. . . .
Einninn Jjá síðar í Juliománuði
komu þrjú ræningjaskip tyrknesk að
Vestmannaeyjum,* fyrst sunnan að
eyjunum, létu þar út 3 stóra báta,
fulla af mönnum, og fóru þar upp
á eyjarnar óvanalegu uppgöngu.
Skrifar séra Olafur Egilsson, það
muni verið hafa 300 manns. Þeir
skiptu sjer í liópa um eyjarnar með
sínum rauðum merkjum, herbúnaði,
herópi og óhljóðum, inntóku Jrær
allar, ráku fólkið sem fé að Dönsku-
húsum, drápu sumt og söxuðu sund-"
ur; suma skutu þeir til dauðs. Það
merkilega skáld, Jón prest Þorsteins-
son, líflálu þeir, en ræntu á brott
hans konu, syni og dóttur . . . .“
Þessar eru fyrstu minningar Is-
lendinga um rauSu merkin, sem
flokkar manna ganga undir. Það er
nú ráðið, að forsprakki rauSHSa á
Islandi, hr. Brynjólfur Bjarnason,
verði í kjöri í Vestmannaeyjum við
næstu Alþingiskosningar, af hálfu
jlokksins meS rauSa fánann. Þetta
er líklcga nokkuð smekklegt og
hýsna nærgætnislegt við Vestmanna-
eyinga! Ekki er því samt spáð nú,
að þeir, sem ganga undir „rauðu
merkjunum“, muni „inntaka“ allar
eyjarnar.
FÆREYINGAR
œtla aS auka jiskijlotann.
Lögþingið í Þórhöfn samþykkti 9.
J). m. að leita fyrir sjer um lán í
Englandi, að upphæð þh milj. sterl-
ingspunda, til endurnýjunar fiski-
flotanum. Fólkaflokkurinn og Sósíal-
demokratar greiddu atkvæði með
lántökunni, en Sambandsflokkurinn
og einn Sócialdimokrat (Davidsen)
greiddu ekki atkvæði.
Steindór Steindórsson
menntaskólakennari verður í kjöri
fyrir AlJjýðuflokkinn hjer í bænum
við Alþingiskosningarnar 30. júní.
„Alþýðublaðið44
og „Alþýðumaðurinn“ eru alltaf að
tala um vaxandi fylgi Alþýðuflokks-
ins, er komið hafi í ljós við síðustu
bæj arstj órnarkoisningar. Hagtíðind-
in — marzhefti — skýra frá úrslit-
um þessara kosninga. Samkvæmt
þeim hefir AlJjýðuflokkuriim fengið
21,6% atkvæða við bæjarstjórnar-
kosningarnar 1946, en 1942 fjekk
hann 24,4% atkvæða. Þetta sýnir
þverrandi, en ekki vaxandi fylgi á
þessum fjórum árum. Samsvarandi
tölur urn fylgi Sjálfstæðisflokksins
eru 42,9% (1946) og 42,8 (1942).
— Jeg trúi Hagtíðindunum betur en
fyrrnefndum blöðum, að þeim ann-
ars alveg ólöstuðum.
Framboð
af hálfu Sj álfstæðisflokksins, nýlega
ráðin:
1 Skagafj.sýslu: 1. Jón Sigurðs-
son, alþm. á Reynistað, 2. Pjetur
Hannesson, sparisjóðsstjóri á Sauð-
árkrók, 3. Haraldur Jónasson, bóndi
á Völlum, 4. Eysteinn Bjarnason,
oddviti á Sauðárkrók.
A SeySisjirSi: Lárus Jóhannes-
son, alþm. í Rvík.
I SuSur-Múlasýslu: 1. Gunnar A.
Pálsson, bæjarfógeti í Neskaupstað,
2. Einar Sigurðsson, skipasmiður á
Fáskrúðsfirði, 3. Eiríkur Bjarna-
son, frkvstj. á Eskifirði, 4. Páll Guð-
mundsson, bóndi í Gilsárstekk.
/ Vestur-ísafj.sýslu: Axel Tulini-
us, lögreglustjóri í Bolungarvík.
Framboðsfrestur
til Alþingis er útrunninn 2. júní n.k.