Íslendingur - 26.02.1947, Blaðsíða 6
6
ISLENDINGUR
Miðvikudaginn 26. febrúar 1947
Á AI.ÞJÓÐAVETT
----YANGÍ-----
Kosnináarnar í Póllandi
Yalta, 12. febr. 1945.
Þessi pólska bráðabirgðastjórn
þjóðlegrar einingar er skuldbundin
að láta fram fara frjálsar og óhindr-
aðar kosningar svo fljótt, sem auð-
ið er, á grundvelli almenns kosninga
rettar óg leynilegrar atkvæða-
greiðslu. Allir lýðræðissinnaðir og
and-nazistiskir flokkar skulu hafa
rétt til þátttöku og bafa menn í
kj öri.
Winston S. Churehill
Franklin D. Roosevelt
J. Stalin.
Þannið hljóðaði yfirlýsing hinna
þriggja „stóru“ um frjálsar kosning-
ar í Póllandi. Ameríska blaðið
„Time“ hefir birt all-ítarlegar fregn-
ir-frá fréttariturum sínum í Póllandi
uni þessar „frjálsu“ kosningar, og
fer hér á eftir útdráttur úr frásögn
þeirra.
í þorpinu Lomianki, tólf mílur frá
Varsjá, hafði borðunum í skólahús-
inu. verið ýtt upp að veggjunum, og
útbúin þar biðstofa fyrir bændurn-
ar, sem nú fengu að kjósa í fyrsta
sinn síðan árið 1935. Formaður
kjörstjórnarinnar rétti hverjum kjós
anda seðil, sem var merktur tölunni
3, en það var númerið á seðlum
stjórnarsamsteypunnar. Þegar hann
var spurður að því, livort hann hefði
ekki kjörseðla allra flokka, baðst
hann afsökunar á því, að seðlar
númqr 5 væru alveg þrotnir, en i
því kjördæmi var það tölumerki
Bændaflokksins. Hanri bætti því við,
að 70% .kjóserida héfðu opinber-
lega greitt númer 3 atkvæði, en hann
gerði enga tilraun til þess að útskýra
það, hverjir hefðu þá notað allra
kjörseðla stjórnarandstöðunnar, sem
hann þótlist hafa úthlutað.
í Praga, sém er útborg Varsjár,
skýrði annar kjörstjórnarformaður
fréttamönnum frá því, að 75% kjós-
ehda hefðu gréitt stjórninni atkvæði.
Var þó talning atkvæða ekki hafin,
er hann sagði þetta. Vitneskja hans
♦ um þetta byggist á þvr furðulega af-
brigði frá léynilegri atkvæðagreiðslu
að heimila kjósandanum að sýna
kjörseðilinn, eftir að hann hafði
greitt atkvæði. Kommúnistar höfðu
sent áköfustu fylgismenn sína þrjá
og þrjá saman um landið í því skyni
að fá kjósendur til þess að undir-
rita svohljó<5andi yfirlýsingar: „Eg
skuldbind mig að fara á kjörstað og
greiða stjórnarflokkunum atkvæði.
Eg er sannur lýðræðissinrii og vil fá
raunverulega lýðræðisstjórn í Pól-
landi. Eg skal greiða atkvæði opinber
lega.“
í sumum borgum höfðu erindrek-
ar stjórnarinnar gengið hús úr húsi
í dögun til þess að safna kjósendum
saman. Fóru þeir síðan með þá á
kjörstaðinn og höfðu vopnaðir her-
menn, sjálfboðalið og Öryggislög-
regla vakandi auga með öllu.
Aróðursspjöld kommúnista voru
fest upp hvarvetna út um sveitirnar.
Á sumum þéirra voru sýnd bráða-
birgðalandamæri Póllands að vest-
an, ásamt upphrópunum um það, að
bezta tryggingin fyrir „Oder-Neisse
landamærunum væri að kjósa lýð-
ræðissamsteypuna.“
Næstum allir kosningaeftirlits-
menn stjórnarandstöðunnar voru í
Varsjá hindraðir í að gegna hlut-
verki sínu. 1 tíu kjördæmum höfðu
frambjoðendur stjórnarandstöðunn-
ar verið strikaðir út af fra*mboðs-
listunum. 24 höfðu verið drepnir.
Mikolajczyk, formaður Bændaflokks
ins, varð sjálfur að bíða í tvær og
hálfa klukkustund í öskrandi mann-
þyrpingunni eftir að fá að greiða
atkvæði, enda þótt hann væri að
nafninu til varaforsætisráðherra.
Bráðabirðaforsetinn Bierut og aðrir
fulltrúar í ríkisstjórninn fengu að-
stoð og fylgd heillar lögreglusveitar,
sem ruddi þeim braut á þann sama
kjörstað og af honum aftur.
Kosningu var hvarvetna lokið um
klukkan 7 síðdegis. Enginn efaðist
um það, að ríkisstjórnin hefði hlot-
ið yfirgnæfandi meiri hluta atkvæða,
-enda þótt kosningaúrslitin myndu
ekki verða tilkynnt fyrr en í næstu
viku. Einn kjósandi komst svo að
orði, er hann bar þessar kosningar
saman við „dauðu kosningarnar“
1945, þegar stjórn „hershöfðingj-
anna“ sat að völdum: „Þær voru
einnig skrípaleikur, en í sambandi
við þessar voru þær meinláusar ....
1935 hirli ríkisstjórin ekkerl um það,
hvort fólkið kaus eða ekki, ef völd
stjórnarinnar voru aðeins tryggð.
Nú hefir stjóniin tekið upp þá stefnu
Rússa, að allir verði að greiða at-
kvæði með' ríkisstjórninni.“
Einn fréttaritari „Time“, sem lög-
reglan hafði fylgt á milli kjörstað-
anna, skýrir svo frá, að lögreglufor-
ingi nokkur hafi sagt drýgindalega
við sig: „Jæja, nú getið þér vonandi
sjálfur séð og ritað lofsamlega frá-
sögn um framkvæmd kosninganna.“
NÝJA-BÍÓ
Miðvikudags- og fimmtudags-
kvöld kl. 9:
HRYLLILEG NÓTT
(Deadline at Dawn)
Aðalhlutverkin leika:
SUSAN HAYWARD
PAUL LUKAS
BILL WILLIAMS
Bönnuð yngri en 16 ára.
smmHH
Nærfatatiónel
mjög vandað
nýkomið í
Verzl. LONDON
Eyþór H. Tómasson
Karlm. jakkar
(Hollenskir)
vandaðir ó aðeins
kr. 200,00 stk.
Verzl. London
Eyþór H. Tómasson
NÝR KANI
til sölu.
A. v. á.
Kona
óskast frá 1. marz n. k. til
að ræsta símstöðina á
móti annarri.
Upplýsingar gefnar á
skrifstofu símstjóra kl.
10-12 og 13-16.
Tilkynning
Frá og með laugardeginum 1. marz verður skrif-
stofa.yor í Hafnarstræti 100 (áður Hótel Gullfoss),
3. hæð.
Frá sama tíma hættir Kaupfélag Eyfirðinga um-
boðsstörfum fyrir oss.
Símanúmer vort verður 600.
ALMENNAR TRYGGINGAR h.f.
REIKNINGUR SPARISJÓÐS AKUREYRAR 1946
Rekstursreikningur
TEKJUR: GJÖLD:
1. Fyrirfram greiddir vextir frá fyrra ári . 36320.78 1. Rekstursreikningur
2. Vextir af lánum 67016.05 a) Þóknun til starfsmanna, stjórnar og
3. Forvextir af víxlum 80145.50 29606.50
4. Vextir af verðbréfum og bankainnstæðum 18195.01 b) Annar kostnaður, húsaleiga, liiti, jós
5. Ýmsar tekjur 587.00 7775.86
2. Vextir af sparisjóðsinnstæðum ... 63891.41
3. Fyrirfram greidir vextir til næsta árs .. 36990.57
* 4. Afskrifað af skrifstofumunum 1000.00
5. Eftirstöðvar lagðar í varasjóð ... 63000.00
Kr. 202264.34 Kr. 202264.34
Efnahagsreikningur pr. 31. desember 1946
EIGNIR: SKULDIR:
1. Skuldabréf fyrir lánum ! 1300875.00 1. Sparisjóðainnstæður ... 2840737.40
2. Óinnleystir víxiar 1195214.15 2. Innstæður á hklaupareikningum 352.98
3. Innstæður í bönkum 185111.46 3. Fyrirfram greiddir vextir til neesta árs .. 36990.57
4. Verðbréfaeign 395100.00 255000 00
5. Innstæða í Tryggingasjóði Sparisjóða .. 2759.78
6. Skrifstofuáh. kr. 2300.00, afskr. kr. 1000.00 1300.00
7. Sjó.ðeign 31. desember 52720.56
Kr. 3133080.95 Kr. 3133080.95
Akureyri, 7. janúar 1947 Reikning þennan, ásamt verðbréfum og sjóði höfum
við endurskoðað, borið hann saman við bækur, og höf-
í stjórn Sparisjóðs Akureyrar: um ekkert við hann að athuga.
O. C. Thorarensen, Sverrir Ragnars, Steingr. Jónsson, Akureyri, 19. janúar 1947
Þórarinn Björnssön, Brynjólfur Sveinsson. & Haukur Snorrason. HeiBrekur GuSmundsson.
Skjaldborgarbíó
Fimmtudag og föstudag kl. 9:
Ný mynd
Laugardag kl. 5 og 9:
Við munum hittast
(Bönnuð yngri en 12 ára).
Kuldahúfur
ó börn og fullorðna
Vmnuvettlingar.
H.f. VALDABÚÐ
Galvaniseraðar vafnsfötui
Mjólkurbrúsar 2—3 lífra
Mjólkurkönnur.
Verzl. Baldurstaagl hJ
Sími 234
-------------------
íbúð
TIL SÖLU:
Tilboð óskast í íbúð, 3 herbergi
og eldhús. Laus til íbúðar á \
næsta vori. Vanalegur réttur á-
skilinn. — Allar nánari upplýs-
ingar gefux undirritaður.
Jóhannes Jónsson
Norðurgötu 16. \
Sklði
og skíðaútbúnaður til sölu.
A. v. á.
SkíÖabuxur
fyrir karlmenn
nýkomnar.
Bryiij. Sveinsson h.f.
Sími 580.
Fyrir amatöra
Kopieringarrammar
Framkallarar
fyrir filmur og pappír
Ljósaperur
(floch)
Negative-albúm
Filmur, allskonar.
Kvikmyndafilmur
8 og 16 nun.
Brynj. Sveinsson h.f
Sími 580.
GummíslOngur
— ó eldhúshana —-
fóst í
Byggingavöruverzlun
Tómasar Björnssonar h.f.