Íslendingur - 09.07.1947, Side 6
6
ÍSLENDINGUR
Miðvikudaginn 9. júlí 1947
Mjöö eítiríektarveröur fyrir-
lestur Áre Waeriand.
'pi ú } a t n
Næsta mynd:
NOB HILL
Hinn kunni sænski heilsufræðing-
ur og brautryðjandi náttúrulækning-
anna, Are Waerland, hélt fyrirlestur
í Samkomuhúsinu á Akureyri s. 1.
mánudagskvöld. Waerland hefir lagt
stund á manneldisfræði um 50 ára
skeið og er því allra manna lærðast-
ur í þeim efnum. Hann hefir víða
flutt fyrirlestra, m. a. yfir 70 fyrir-
lestra sl. vetur í Englandi og Sviss.
Hann er kominn hingað til lands á
vegum Náttúrulækningafélags íslands
og hefir þegar flutt marga fyrirlestra.
Jónas Kristjánsson, læknir, for-
göngumaður náttúrulækninganna á
íslandi, kynnti fyrirlesarann og fór
nokkrum orðum um starf hans.
Waerland flutti fyrirlestur sinn á
íslenzku. Er hann mjög áheyrilegur
fyrirlesari og flytur mál sitt skýrt og
með sannfæringarkrafti. Hann skýrði
frá því, að kenningar sínar byggði
hann fyrst og fremst á eigin reynslu.
Hann hefði fram til tvítugs verið
mjög veikburða, þjáðst af höfuð-
veiki og meltingarsjúkdómum og
oft legið rúmfastur. Hann hóf heim-
spekinám, en varð að hætta því sök-
um veiþinda og var vart hugað langt
líf. Hann snéri sér þá að læknisfræð-
inni, ög sú spurning, sem var efst í
huga hans, en hann átti erfiðast með
að fá svar við, var þessi: Hvað er
heilbrigði? Nám sitt stundaði hann
einkum í Englandi. Að lokum komst
hann að þeirri niðurstöðu skömmu
fyrir síðustu aldamót, að mataræðið
væri frumskilyrði heilbrigðinnar og
allir sjúkdómar ættu rætur sínar að
rekja til rangra lifnaðarhátta. Tók
hann þá upp alveg nýtt mataræði og
lífsvenjur, borðaði grænmeti og iðk-
aði íþróttir. Síðan eru liðin 50 ár,
og allan þann tíma kveðst hann ekki
hafa kennt neins meins, aldrei fund-
ið til líkamlegrar vanlíðanar og væri
nú hraustur og heilbrigður, svo að
betra væri ekki kosið.
Waerland taldi það augljós sann-
indi, að maðurinn væri ekki skapað-
ur af náttúrunnar hendi til þess að
þjást af sjúkdómum. Ástæða sjúk-
dómanna væri því sú, að maðurinn
lifði ekki í samræmi við lögmál
náttúrunnar. Merkasti líffræðingur,
sem nú væri uppi, próf. Aiexander
Haig, héldi því fram, að forfeður
mannanna hefðu lifað um 25 miljón
ir ára í krónum trjánna. Væri þetta
rétt, hlytu meltingarfæri mannanna
að vera sniðin fyrir jurtafæðu, enda
benti margt til þess. í fæðu þeirri,
sem flestir nútímamenn neyttu, væru
fyrst og fremst rotnunarbakteríur,
sem smám saman skemmdu melting-
arfærin, en þeim væri nauðsynlegt
að fá gerjunarbakteríur.
Waerland vill láta fólk hætta að
borða kjöt, fisk, egg. salt, sykur (að
mestu leyti), te, kaffi — og svo að
sjálfsögðu tóbak og áfengi. Mjólk,
grænmeti og ávexti telur hann vera
hina réttu fæðu. Hann kveðst árið
1936 hafa óskað eftir því í Svíþjóð,
að 1000 manns skuldbindu sig til
þess að lifa eftir reglum hans i þrjú
ár. 1400 manns hefðu gefið sig fram
og enginn hefði óskað eftir að breyta
aftur um mataræði, þegar þrjú árjn
voru liðin.
Á eftir fyrirlestri Waerlands
skýrði Björn Jónson, veðurfræðing-
ur, nokkuð frá starfi Náttúrulækn-
ingafélags íslands.
Waerland mun flytja hér enn tvo
fyrirlestra. N. k. þriðjudag flytur
hann fyrirlestur, er hann nefnir
„Útrýming sjúkdómanna“. Þann
fyrirlestur flytur hann á íslenzku,
en á miðvikudagskvöld talar hann á
*
sænsku og mun þá lýsa því, hvernig
hann telur daglega lifnaðarhætti
fólks eiga að vera. Það skal tekið
fram, að Waerland talar mjög
skýra sænsku.
Búsáhöld
og allskonar
GLERVÖRUR
verður seld næstu
daga, með niður-
settu verði.
- 5 Notið tækifærið!
Verzl. London
NÝKOMIÐ:
AXLABÖND og
SOKKABÖND
með alteygju. Enn-
fremur
VINNUVETTLINGAR
Verzl. London
Handklæöi
mislit — nýkomin
Verzl. LONDON
Vélspænir
í stopp á
TRÉSMÍÐAVERKSTÆÐI
GRÍMS VALDIMARSSONAR.
SAUMAVÉL
næstum ný (Husquarna) og
dívan til sölu.
LANNERS, Fjólugötu 12,
(1. hæð) i(heima eftir kl. 6).
mmmmmmmmmmmmmmmmsmm
íburðarmikil skemmtimynd frá
20th Century-Fox, tekin í eðli-
legum litum.
Leikstj óri: Henry Hatliaway.
Aðalhlutverkin leika:
George Raft — Joan Bennett
Vivian Blaine —
Peggy Ann Garner.
Skjaldborgarbíó
HAMINGJAN ER
HEIMAFENGIN
(Heaven is Round the Corner)
Spennandi saga um ástir og
sönglist.
WILL FYFFE — LENI LYNN
British National Films Ltd.
ATVINNA
skrifstofustörf
STÚLKA helzt með verzl-
unarskólamenntun og
BÓKHALDARI geta feng-
ið atvinnu nú þegar eða
svo flj ótt sem um semst,
reglusemi og stundvísi á-
skilin.
Bifreiðastöð Akureyrar hf.«-
Kr. Kristjánsson.
Atvinna
Röskur og ráðvandur pilt-
ur, 14 til 16 ára, getur
fengið atvinnu í sumar,
sem aðstoðarmaður í pakk
húsi og á vörubíl.
A. v. á.
Hjölkoppur
af PLYMOTH bifreið tap-
aðist á leiðinni, Húsavík—
Akureyri. •—- Vinsaml. skil-
ist til
KRISTJÁNS JÓNSSONAR,
bakara.
GÓÐURBARNAVAGN
óskast til kaups. —
A. v. ó.
HVERJIR HAFA
FENGIÐ GJALD-
EYRISLEYFIN?
Viðskiptamálaráðuneytið hefir
nýlega skýrt frá því, að síðan um
áramót hafi verið veitt gjaldeyris
leyfi jyrir um 350 miljónum kr.
Alti með þessu að sanna, að sú
ásökun vœri röng, að innflutning
ur til landsins hefði verið stöðv-
aður að verulegu leyti.
Enginn vafi er á því, að þessar
upplýsingar ráðuneytisins muni,
vera réttar, en sú spurning hefii
vaknað hjá mörgum: Hverjii
hafa fengið öll þessi gjaldeyris
leyji? Margir kaupsýslumenn héi
á Akureyri hafa skýrt blaðinu svo
frá, að þeir hafi engin leyfi feng
ið síðan um áramót, og Viðskipta-
ráðið haji tjáð þeim, að engir,
leyfi hafi verið veitt í langar
tíma. Það vœri því býsna fróð
legt að fá upplýsingar frá ráðu
neylinu um það, hverjir hafi feng
ið þenna mikla gjaldeyri til ráð
stöfunar, og í hvað honum hefii
aðallega verið varið.
Reiðjakkar
Reiðbuxur
BRAUNS-verzlun
Páll Sigurgeirsson
Karlm. sokkar
VÖRUHÚSIÐ h.F
Sundhettur
úr plastic.
Verð kr. 8,65.
BRAU NS-verzlun
Páll Sigurgeirsson.
Daglegar sannanir fáum við fyrir
því, að „fótmál dauðans fljótt er
stigið“. Hann er svo undur veikur
þráðurinn, sem tengir okkur við
þessa jörð. Sá, sem nýtur heilbrigði
í dag, getur verið nár á morgun.
Örstuttur tími leið frá því, að ég
átti tal við Jónasínu heilbrigða, að
því er virtist, þar til mér barst and-
látsfregn hennar. Og fréttin kom mér
óvart. Hún var enn á góðum aldri
Langa leið gat hún því átt fram und-
an og margt óunnið. En þetta er
gamla sagan, sem hvern dag verður
ný.
Jónasína var hin ágætasta kona,
enda af ósviknu bergi brotin. Hún
var dul í skapi, en bjó yfir auðugum
hugarheim, eins og títt er um þá, sem
hlédrægir eru og orðfáir. Hún var
greind kona, gjörhugul og sannleiks-
leitandi.
Ekki fór Jónasína varhluta af and-
streymi jarðlífsins, þau voru þung
sporin, þegar hún í hríðarveðri og
náttmyrkri fór langa bæjarleið til
þess að fá hjálp, þegar snjóflóðið
féll og maðurinn hennar lá grafinn
í fönninni. Og ekki hefir hlátur búið
í huga ungu konunnar dagana, sem
leitin stóð yfir. En hún bar sig eins
og hetja. En sennilegt er, að slíkar
raunir eftir skilji undir, sem lengi
svíða.
Jónasína dó 28. júní sl., daginn,
sem móðir hennar fyllti 84 ár. Að
móður sinni hafði hún hlynnt með
dótturlegri ástúð, ásamt systkinum
sínum. Þau eiga öll um sárt að binda
við fráfall hennar. En þyngstur er
harmur kveðinn að einkabarninu,
efnilega syninum. Því að þótt hann
standi ekki einn uppi, er enginn sem
móðir. Og ekki lifði Jónasína það,
að hann setti upp stúdentshúfuna
sína með sæmd.
í dag eru jarðneskar leifar þessar-
ar góðu konu lagðar í skaut dalsins,
sem við báðar unnum.
5. júlí 1947.
Guðrún ]óliannsdóttir,
frá Ásláksstöðum.
væntanlegt innan skamms í
Byggingavömverzlun
Tómasar Björnssonar h.f,
Akureyri Sími 489
VERZJLUN TiL S0LU
Sölubúð mín, Strandgötu 1, Akureyri, og vörubirgðir,
eru til sölu nú þegar. Þeir, sem áhuga kunna að hafa á að
kaupa þetta, sendi skrifleg tilboð í hvort fyrir sig til mín
fyrir 14. þ. m.
Valgerður Vigfúsdóttir,
Brekkugötu 30, Akureyri.