Íslendingur - 26.05.1954, Qupperneq 2
2
ÍSLENDINGUR
Miðvikudagur 26. maí 1954
Slsm somviska Títnans ketnur
r
I
Fyrir nokkrum dögum var
Tíminn með dylgjur um það, að
ráðandi öfl í Sjálfstæðisflokkn-
um stæðu að útgáfu blaðs á
Keflavíkurflugvelli, er deilt hefði
all-harkalega á utanrikisráðherra
í sambandi við varnarmálin.
Tilefni þessa er það, að starfs-
menn á Keflavíkurflugvelli gefa
út blað, er nefnist Flugvallarblað-
ið, og er ritstjóri þess Hilmar
Biering, ungur prentari, oem áður
hefir fengizt við blaðaútgáfu í
Hafnarfirði, og hefir verið með-
limur í félagsskap ungra Sjálf-
stæðismanna, en blaðið kvað
hafa deilt á einhverjar fram-
kvæmdir varnarmálanna.
Þótt hugleiðingar Tímans um
þe'.ta séu nánast broslegar, þar
sem blöð Sjálfstæðismanna liafa
aldrei með einu orði hreyft að-
finnslum við starfshætti utanríkis
ráðherra og unnt honuin friðar í
hans vandasama embætti, þá fer
ekki hjá því, að menn reyni að
gera sér grein fyrir, hvers vegna
Tíminn spyr svo barnalega á dög-
unura.
Og þá rifjast það upp, að með-
an ráðherra úr hópi Sjálfstæðis-
manna, Bjarni Benediktsson, fór
með dóms- og utanríkismálin á
árunum 1950—53, linn'i Tíminn
aldrei á ófrlði gegn honum. Og
þó að einhverjum hafi dottið í
hug, að þar væri rilstjóri blaðsins
að þjóna lund sinni í óþökk
flokksins eða ráðamanna lians,
þá fékkst úr því skorið á flokks-
þingi Framsóknar, þar sem dóms-
málastjórn Bjarna Benediktssonar
var sérstaklega vítt og í ályktun
um herverndarmálin talið „nauð-
synleg', að framvegis verði hald-
ið á þessum málum af meiri festu
en verið hefir.“
Þégar kom tll nýrrar stjórnar-
myndunar Sjálfstæðis- og Fram-
sóknarflokksins á s. 1. hausti, fékk
Framsóknarflokkurinn varnar-
málin í sinn hlut, svo að hann
ætti þess kost að „halda á þess-
um málum með meiri festu“ en
verið hafði, og tók fráfarandi ut-
anríkisráðherra það sérstaklega
fram, er ef'irmaður hans tók við,
að hann óskaði honum allra heilla
í því vandasama starfi og héti
honum „fullum og afdráttarlaus-
um stuðningi.“ Við þetta hefir
ekki aðeins fyrrverandi utanríkis-
ráðherra s'aðið, heldur og allt
þingmannalið Sjálfstæðisflokks-
ins og blöð hans. Þau hafa meira
að segja ekki spurzt fyrir um,
hvort ekki megi fara að væn'a
skýrslu um ^amningagerð þá um
varnarmálin, er leggja átti fram
fyrir þinglok um miðjan apríl-
mánuð, og munu þó margir taka
að gerast langeygir eftir. Sú
frumlega tilgáta Tímans, að Sjálf-
stæðisflokkurinn standi að ádeil-
um á utanríkisráðherra í mál-
gagni starfsmanna á Keflavlkur-
flugvelli, vitnar aðe.'ns um vonda
samvizku, þegar blaðinu verður
hugsað til árása sinna á Bjarna
Benediktsson og ber þær saman
við þann frið, er blöð Sjálfstæðis
flokksins veita núverandi varnar-
málaráðherra í hans örðuga og
lítt eftirsóknarverða starfi.
Kappreiðar Léttis
um síðnstn liei&ri
Hestamannafél. ,,Ltl(;ir“,' Ak-
ureyri hélt kappreiðar á skeiðvelli
félagslns sunnudaginn 23. maí 8.1.
ld. 2 e. h. A undan kappreiðunum
fór fram sýning á góðhestum. Úr
hópi þeirra hesta, sem þar komu
fram verða slðar valdir hestar
þeir, sem mæta eiga á góðhesta-
sýningu á Landsmóti hesiamanna-
félaganna, sem fer fram 9., 10, og
11. júlí n. k. á Þveráreyrum í
Eyjafirði.
Að lokinni góðhestasýningunni
hófust kappreiðarnar. Skráðir
voru til leiks 26 hestar.
Úrslit urðu sem hér segir:
250 m. stökk (folahlaup):
1. Perla, grá, eyfirzk, 6 vetra;
tími 19,9 sek. og 19,8 sek. —
Eigandi: Magnús Stefánsson,
Árgerði, Eyjafirði.
2. Blesi, rauðblesóttur, 5 vetra;
eyfirzkur; tími 21,4 sek. og
20,4 sek. Eigandi: Sigurður
Víglundsson, Akureyri.
3. Glaður, jarpur, 6 vetra, eyfirzk
ur; tími 21,9 og 20.9 sek. Eig-
andi Þorsteinn Guðmundsson,
Akureyri.
300 m. stökk:
1. Stjarni, rauðstjörnóttur, 7
vetra, skagfirzkur; tími 23,5
og 23 sek.. Eigandi: Árni
Magnússon, Akureyri.
2. Skjóni, rauðskjó'.tur, 12 vetra,
eyfirzkur; tími 23,8 og 24
sek. Eigandi: Mikael Jóhann-
e6son, Akureyri.
3. Litla-Jörp, jörp, 19 vetra, ey-
firzk; tími 24,5 og 24,6 sek.
Eigandi: Pétur Steindórsson,
Krossastöðum.
350 m. slökk:
1. Fluga, grá, 11 vetra, þingeysk;
tími 28,3 og 26,9 sek. Eigandi:
Sigríður Sigmarsdóttir, Akur-
eyri.
2. Sokki, jarpsokkóttur, 8 vetra,
eyfirzkur; tími 28 og 26,9 sek.
Eigandi: Gestur Jónsson, Ak-
ureyri.
3. Goði, grár, 17 vetra, þingeysk-
ur; tími 29.7 sek og 28.1 sek.
Eigandi: Þorsteinn Sigurðs-
son.
Veðbanki starfaði af miklu
fjöri; vfeður var ágætl og margir
áhoifendur.
Kirkjukór Sauðár-
króks heimsækir
Þingeyinga
Sauðárkróki 17. maí 1954.
Kirkjukór Sauðárkróks hefir
enn sem fyrr reynzt framsækinn
og ferðdjarfur. Hann fór söngför
til Þ.ngeyinga í fyrradag. Að
sungnum sálmi og flutlri bæn um
blessun Guðs yfir fyrirhugaða
ferð, var haldið af stað í tveim
stórum bílum og nær viðstöðu-
laust áfram til Húsavikur. Sungið
þar að kveldi sama dags í kirkj-
imni við mjög góða aðsókn og á-
gætar undirtektir. Að lokmn söng
kórinn sameiginlega með kirkju-
kór Húsav.kur tvö lög undir
stjórn söngstjóranna Eyþórs Stef-
ánssonar og sr. Friðriks A. Frið-
rikssonar. — Húsvíkingar sýndu
frábæra gestrisni, hlýieika og
bróðurhug. Árdegis næsta dag
var hald.ð að Laugum í dýrðlegu
veðri um Laxárvirkjun og
Reykjadal. Neðst í dalnum kom
til móts við flokkinn Páll H.
Jónsson kennari að Laugum. Var
hann mjög kærkominn og nyt-
samur leiðsögumaður upp dalinn.
Fram í dalnum var svo flokkn-
um skipt í hópa á bæina til há-
degisverðar. — Á Laugum var
sungið við ógæta aðsókn og kórn-
um tekið f orkunnarvel. Eftir söng-
inn var kórnum boðið til kaífi-
drykkju í skólahúsinu. Að þeim
veitingum stóðu aðallega kirkju-
kór Einarsstaða og Karlakór
Reykdæla. Þar fluttu ræður Jón
Ilaraldsson bóndi á Einarsstöð-
um, söngstjórarnir Sigfús Hall-
grímsson í Vogum og Páll H.
Jónsson Laugum. Jónas Helgason
Grænavatni stjórnaði söng undir
borðum. Formaður Sauðárkróks-
kórsins, Sig. P. Jónsson flutti
Reykdælum þakkir fyrir höfðing'
egar og ógleymanlegar viðtökur
jg mælti fyrir minni 6veitarinnar
og Þingeyinga. Að lokum mælti
Eyþór söngstjóri þakkir til söng-
félaganna þingeysku fyrir hinar
ágætustu móttökur. Hefir söngför
þessi tekizt frábærlega vel og orð-
ið kórnum bæði til gleðl og
sæmdar. Lýkur hann miklu lofs-
orði á Þingeyinga fyrir móttök-
urnar, og telur söngmennt hjá
þeim mjög q,lmenna og á háu otigi.
í kórnum eru nú um 40 manns.
Einsöngvarar eru: Snæbjörg Snæ-
björnsdóttir (sópran), Gunnhild-
ur Magnúsdóttir (alt), Svavar
Þorvaldsson (tenór) og Sig. P.
Jónsson (bassi). Frú Sigríður
Auðuns annaðist píanóundirleik.
Hér er fiskajli mjög lítill og at-
vinnuhorfur virðast daufar- Aftur
á móti er hér um sveitir, sem ann-
ars staðar á landinu, veðurbLíða
og gróðurborfur góðar nú í 4.
viku sumars. Byrjandi sauðburð-
ur gengur vel, og vorverk yfir-
leitt vel að hefjast.
Jón Þ. Björnsson.
___*____
Maðurinn (er að kveðja ungu
konuna sína): Þú ætlar svo að
vera mér trú, þangað til ég kem
ajlur?
Konan: Ilvenœr kemur þú ajt-
ur?
Kirkjukóramót Eyjafjarðarprófasts-
dæmis n.k. sunnudag á Siglufirði
Esjo fer skemmtiferð héðan til Siglufjorðar í sam-
bandi við mótið
Næstkomandi sunnudag verður
söngmót kirkjukóra Eyjafjarðar-
prófastsumdæmis haldið á Siglu-
firði, og er það hið 2. í röðinni,
en samband kóranna var stofnað
1950. í mótinn taka þátt flestir
kirkjukórar við Eyjafjörð, og má
ætla að 140 manns taki þátt í
söngnum.
Söngurinn fer fram í Siglu-
fjarðarkirkju, en hún er með
stærstu kirkjum landsins. Syngja
kórarnir þar sérstakir og.samein-
aðir, og verður sungið tvisvar
sama daginn.
í sambandi við söngmót þetta
er ráðið, að strandferðaskipíð
Esja fari skemmtifor héðan frá
Akureyri til Siglufjarðar. Lagt
verður af stað héðan árla n. k.
sunnudag og komið aftur til baka
á mánudagsnótt.
Vegna hinna ýmsu, sem kynnu
að taka þátt í þessari skemmti-
för, verður séð fyrir fjölbreyttum
skemmtiatriðum á Siglufirði og
um borð i Esjunni. Er hér um
einstakt tækifæri að ræða til að
hlýða á góðan söng og fá sér
skemmtilega lystiferð. Tekið er á
móti pöntunum á farmiðum hér
hjá Ríkissidp í dag.
Verða þeir afhentir á sama stað
á föstudaginn.
Samnorræna
^sundkeppnin
Hér á Akureyri hafa um 400
ma«ns synt tvöhundruð metrana.
Akureyringar báru lélegan hlul
frá borði í fyrri keppninni miðað
við aðra kaupstaði, og eiga þeir
því tiltölulega létt með að „vinná
þessa keppni að sínum hluta, hvað
sem landinu í heild líður. Þeim á
að vera metnaðarmál að »tór
hækka hlutfallstölu sína.
Þrjú sýslufélög á Vestfjörðum
höfðu hlu'.fallslega hærri sund-
þátttöku en Akureyrí 1951. í
fyrstu 12 sætunum voru kaupstað-
ir (S.-Þing. þó þar á meðal), BÍð-
an komu sex sveitarfélög á undan
Akureyri. Minnist þessa nú, Ak-
ureyAngir, og rekið af yður
slyðruorðið!
Norðlenzkt
kennaramót
Samband norðlenzkra barna-
kennara ásamt námsstjórum á
Norðurlandi gengst fyrir almennu
kennaramóti á Akureyri dagana
30. maí til 4. júní na^tkomandi.
Mótið hefst sunnudaglnn 3Q.
maí kl. 3.30 síðdegis í barnaskól-
anum. Á mótinu verða flutt íjög-
ur erindi á kvöldin fyrir ahnenn-
ing. Allir eru þar velkomnir.
Þessi erindi flytja: Helgi Elías-
ion fræðslumálastjóri, dr. Broddi
lóhannesson, dr. Matthías Jónas-
5on og Snorri Sigfússon náms-
5tjóri. Verða erindin og eíni
beirra auglýst daglega í bóka-
verzluninni Eddu.
Sýning á skólavinnu barna við
Eyjafjörð verður á mótinu.
Sameiginlegt mötuneyti og gist-
'ng fyrir aðkomukennara verður
í barnaskólanum.
HEYSKAPUR HÓFST
MEÐ FYRSTA MÓTI
Það þykir ef til vill óeðlilegt
að komast svo að orði í maímán-
uði, en eigi að síður er það satt,
að „heyskapur“ er hafinn fyrir
nokkru hér í bænum. Þann 20. þ.
m. var Eiðsvöllúr sleginn, og var
þá komið þar töluvert gras. Lóðir
sáust og slegnar hér um miðjan
mánuðinn, og víða mun verið að
því þessa daga. Spretta á grasi er
hin ótrúlegasta á þessum tíma, og
er hætt við, að bændur verði seint
fyrir með að koma af áætluðum
von’erkum, áður.en þeir þurfa að
byrja sláttinn. Farið var að setja
niður kartöflur fyrir miðjan mán-
uð, og mun því nú mikið til lokið
hér í bænum. Trjágróðri fleygir
injög fram eins og öllum öðrum
gróðri.
___$___
— Þú ert fyrsti maðurinn, scrn
ég hef kysst.
— Ójá, þú munl hafa tekið þátt
í bréjaskóla og fengið þannig œf-
l .
, inguna.
G í I b flrCð - olíibrcnnarar
og olíugeymar til húsakyndingar jafnan fyrir-
liggjandi. — Útvegum olíukynta katla, elda-
vélar og hvers konar önnur olíukynditæki með
stuttum fyrirvara.
OLÍUSÖLUDEILD KEA
Sími 1860.