Íslendingur - 06.08.1965, Qupperneq 1
!
í
i
í tilefni af þessu kirkjuaímæli
bárust Laufáskirkju margar gjaf
ir, bæði kirkjulegir munir og
peningaupphæðir.
Minnisvarðinn afhjúpaður að Karlsá síðastl.
sunnudag að viðstöddu f jölmenni
SVEINBJÖRN JÓNSSON byggingamcistari og þúsund þjala
smiður, sem flcstum núlifandi fslendingum framar hefur barizt
fyrir varðveizlu gamalla minja, svo sem Minjasafnið á Akureyri
hefur notið mikils góðs af, hefur gengizt fyrir því, að fyrsta þil-
skipasmiðnum á íslandi væri reist minnismerki á þeim stað, er
skipið var byggt, en það var á Karlsá á Upsaströnd, skammt norð-
an við kauptúnið í Dalvík. Var efnt til sérstakrar athafnar að
Karlsá s.l. sunnudag í sambandi við afhjúpun merkisins, og sótti
hana fjöldi manns, sumir langt að komnir, þótt víða væru manna-
mót annarsstaðar þenna dag.
Margar ræður voru fluttar
við þessa athöfn, en þar í var
m. a. kaffiboð á Dalvík, og flutti
Snorri Sigfússon fyrrv. skólastj.
þar erindi um Eyvind duggu-
smið. Fyrirtækið Ofnasmiðjan
h.f. í Reykjavík, sem Svein-
bjöm stofnaði og er enn hlut-
hafi í, lét gera merkið og af-
henti það Dalvíkurhreppi að
gjöf. Sonur Sveinbjarnar, Björn
sem er einn af gefendum, stjórn
aði athöfn þessari. Á innsíðu
blaðsins í dag er birt ávarp
Sveinbjarnar Jónssonar við at-
höfnina, og skýrir hún sögu
málsins.
EYVINDUR DUGGU-
SMIÐUR.
í þjóðsögum Ólafs Daviðssonar
(1895) er þáttur af Eyvindi
duggusmið eftir handriti Þor-
síeins Þorsteinssonar frá Ups-
um. Hefst hann á þessum orð-
um:
DÁVlÐSHÚS
var opnað til sýnis almenningi
1. þ.m., og hefur Kristján Rögn
valdsson verið ráðinn umsjónar
maður hússins. Verður húsið op
ið fyrst um sinn kl. 3—5 síðdeg
is. Húsnefnd skipa Stefán Stef-
ánsson bæjarverkfr. Stefán
Reykjalín byggingameistari og
Þórarinn Bjömsson skólameist
ari.
EYVINDI DUGGUSMID REIST
MINNISMERKI
„Jón hét maður. Hann bjó á
Kallsá á Upsaströnd, seint á 17.
öld. Við hann eru kendir Jóns-
100 ára kirkjuafmælis minnzf
Kirkjunni bárust margar góðar gjafir
Á 100 ára afmæli Laufáskirkju
sl. sunnudag var haldin þar há-
tíðleg athöfn, en áður höfðu far
ið fram verulegar umbætur á
kirkjunni. Sótti þangað fjöldi
fólks víðsvegar að, m.a. forseti
íslands, herra Ásgeir Ásgeirs-
son.
Biskupinn yfir íslandi, herra
Sigurbjörn Einarsson, og sókn
arpresturinn á staðnum, sr. Jón
Bjarman, önnuðust guðsþjón-
ustu.
brunnar á Kallsái'bökkum.
Hann átti son, er Eyvindur hét,
og var kallaður duggusmiður
eða duggu-Eyvindur. Eyvindur
var snemma efnismaður og lá
honum alt í augum uppi. Hann
færðist margt í fáng, sem þá
var ótitt, og samdi sig mjög að
siðum fornmanna. Hann bjó t.
a. m. sundpoll í slétta grund
fyrir sunnan og neðan Kallsáf-
tún, og lærði þar sund tilsagn-
arlaust. Þar er nú djúpur gras-
bolli, er pollurinn var, og er
hann almennt kallaður Eyvind-
arpollur. . . . “
Síðar í þættinum segir frá
einni sjóferð Eyvindar:
„Duggu-Eyvindur var eins
glöggur og aðgætinn á sjó og
hann var djarfur. Einu sinni
sigldi hann duggu sinni inn
Eyjafjörð í blindöskubyl, svo að
ekkert sá út fyrir borðið. Sker
er utarlega í firðinum, norður
af Hrísey. Það er nefnt Hrólfs-
sker. Alt í einu segir Eyvindur:
„Hvorum megin skersins ætli
að við séum nú, piltar?“ En í
þessu bili rann skipið rétt við
boðana austan til við Hrólfs-
sker. Það er mál manna, að
dugga Eyvindar hafi ekki orð-
ið lángær, og hafi hann siglt
hana sundur undir sér í ofsa-
veðri, í nauðbeit, segja sumir
að hann hafi þá íarizt, en Jón
Espólín segir, að hann hafi |
(Framhald á bls. 7).
SUMARLEYFISFERÐIR um Snæfellsnes fara árlega vax-
andi. Hér á myndinnj scr yfir Stykkishólm frá barnaskóla
kauptúnsins.
Ljósm.: K. Hjaltason.
Góð héraðsmót Sjálfsfæðismanna
NU um síðustu helgi efndi Sjálfstæðisflokkurinn til þriggja liér-
aðsmóta hér í Norðurlandskjördæmi eysíra, sem öll voru mjög
fjölmenn og tókust hið bezta.
Á Akureyri voru frummælend-
ur Magnús Jónsson fjármálaráð
herra, Jónas G. Rafnar alþm. og
Gunnar G. Schram ritstjóri, en
mótinu stjórnaði Gísli Jónsson
menntaskólakennari. í Skjól-
brekku í Mývatnssveit voru
frummælendur Magnús Jónsson
ráðherra, Bjartmar Guðmunds-
son alþingismaður og Hörður
Sigurðsson viðskiptafræðingur,
en mótinu stjórnaði Þórhallur
Snædal bæjarfulltrúi á Húsa-
vík. í Skúlagarði í Kelduhverfi
voru frummælendur Magnús
Jónsson ráðherra, Jónas G.
Rafnar al^ingismaður og Magn
ús Stefánsson bóndi í Fagra-
skógi.
Um skemmtiatriði milli ræðu
halda sá hljómsveit Svavars
Gests og lék fyrir dansi, sem stig
inn var á eftir. —
Sem fyrr segir tókust-mótin
hið bezta, og var húsfyllir á öll
um stöðum.
íslendingur skákm. Norðurlanda
Freysteinn vann á hagstæðari stigatölu
NORÐURLANDAMOT í skák
er nýlega afstaðið, og lauk því
með naumum sigri íslendings-
ins Freysíeins Þorbergssonar,
en hann hafði jafna vinninga-
tölu og fyrrverandi Norðurlanda
meistari, Sven Johannessen (al-
þjóðlegur meistari), en báðir
voru með 9 vinninga, er keppn-
inni lauk. Tefldu þeir þá tvær
skákir til úrslita, og unnu þeir
sína hvor, en vegna stigatölu í
keppninni varð Freysteinn hlut
skarpari.
SA FJÓRÐI ÍSLENZKI
Freysteinn er 4. íslendingurinn,
sem vinnur þennan titil. Hinir
eru Baldur Möller, Friðrik Ól-
afsson og Ingi R. Jóhannsson.
Ekki leit út fyrir, framan af
keppninni, að úrslitln yrðu slík,
en Freystemn sótti mjög á, er á
keppnina leið, og mun þessi ó-
vænti sigur væntanlega hleypa
nýju fjöri í skáklíf okkar, sem
stundum gengur í öldum eins og
aðrar íþróttir.
STEINGRIMUR G.
CUÐMUNDSSON
vélsmíðameistari varð bráð-
kvaddur sl. mánudagsmorgun.
Þessa mæta borgara mun síðar
verða niinnzt hér í blaðinu.
FRÁ Laufási við Eyjafjörð. Þar var 100 ára atniælis kirkjunnar minnzt s. 1. sunnudag við
fjölmenna og hátíðlega athöfn.
51. ÁRGANGUR . FÖSTUDAGUR (i. ÁGÚST 1965 . 28. TÖLUBLAÐ