Íslendingur - 06.08.1965, Page 7
7
MESSAÐ í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kemur kl. 10.30
f. h. Sálmar nr. 64, 367, 114,
314, 408. — P. S.
FÍLADELFÍA, LUNDARGÖTU
12. Mr. Gordon Cove er ensk
ur trúboði. Hann hefur ferð-
ast víða um lönd með fagnað
arerindið, bæði um Afríku,
Ameríku og Norðurlönd. Mr.
Gordon er ágætur ræðumað-
ur. Kona hans er með honum.
Hún syngur e'insöng. — Mr.
Gordon og frú tala og syngja
væntanlega á samkomum hér
í Fíladelfíu n.k. föstudag, laug
ardag og sunnudag, kl. 8,30
hvert kvöld. — Allir eru hjart
anlega velkomnir. (Okeypis
aðgangur). — Fíladelfía.
BINDINDISFÉLAG ökumanna
kallar meðlimi sína til fund-
ar að Bjargi n.k. mánudags-
kvöld 9. ágúst kl. 8,30 e.h. —
Framkvæmdastjóri B. F. Ö.
Reykjavík Ásbjörn Stefáns-
son mætir á fundinum Einnig
fulltrúi frá bifreiðaeftirlitinu.
— Myndir vei'ða sýndar og
gott kaffi á boðstólum. — Not
ið gott tækifæri B. F. Ö. félag
ar. Nýjir félagar velkomnir.
Stjórnin.
FIMMTUGUR varð 4. þ. m. Ól-
afur Sigurðsson yfirlæknir
iyflæknisdeildar Fjórðungs-
sjúkrahússins.
SEXTUGUR varð 3. þ.m. Eirík-
ur G. Brynjólfssón fram-
kvæmdastjóri Heilsuhælisins
í Kristnesi.
SEXTUGUR verður n.k. sunnu
dag (8. ágúst) Kristinn Fr.
Jakobsson bóndi á Espihóli
Eyjafirði.
ÁTTRÆÐUR varð í gær Loft-
ur Guðmundsson frá Þúfna-
vöhum, umsjónarmaður filmu
deildar Amtsbókasafnsins.
FRÁ 1. ÁGÚST KOSTAR
HVERT EINTAK AF ÍS-
LENDINGI 4 KRÓNUR í
LAUSASÖLU. Árgjaldið ó-
breytt (150 kr.).
BÆNDADAGUR EYFIRÐ-
INGA verður að Laugarborg
á sunnudaginn og hefst kl. 2
e.h. UMSE og BSE standa að
honum sem áður. Dagskrá
verður fjölbreytt, svo sem aug
lýsingar bera með sér, (þ. e. í
Degi og Alþ.m.!)
— Eyvindi duggusmið
reist minnismerki
(Framhald af blaðsíðu 1).
brotið dugguna í mannskaða-
veðri, miðvikudaginn fyrir far-
daga 1717, og komizt í land við
iilan leik, með hásetum sínum
öllum, nema einum, sem ekki
vildi fara til lands. Sú sögn er
réttari, því Eyvindur lifði leingi
eftir það. Hann kvæntist dóttur
Sæmundar í Stærra-Árskógi,
og reyndist honum vel í bar-
smíðis- og illyrðamáli, sem hann
hafði lent í við Finnboga bónda
Jörundssonar í Hrísey. . . .“
Ný sending.
MÁRKAÐURINN
Sími 11261
Gjalddagi blaðsins er
1. júní.
Síðastliðinn laugardag voru gef
in saman í Akureyrarkirkju
ungfrú Hugrún Hólmsteinsdótt
ir og Stefán Bjarnason úrsmið-
ur. — Heimili þeirra er að
Byggðavegi 111, Akureyri.
Laugardaginn 31. júlí voru gef-
in saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju ungfrú María Val-
gerður Karlsdóttir og Pétur Haf
steinn Guðlaugsson bifvélavirki
—.Heimili þeirra er að Hverfis
götu 58A Reykjavík.
VIÐ undirrituð í stjórn Hólalé-
lagsins, sem stofnað var 16. ágúst
1964 á Hólum í Hjaltadal, viljum
liér með vekja athygli alþjóðar á
lielztu stefnuskráratriðum félags-
ins, sem minnzt hefur vcrið áður
á í fréttatilkynningum s.l. sumar.
Plólafélagið er félag allra lands-
manna, og hlutverk þess er að
beita sér fyrir samtökum meðal
þjóðarinnar um eflingu Hólastað-
ar á sem víðtækustu sviði. Skal
höfuðáhérzla lögð á endurreisn
biskupsstólsins á Hólum og efl-
ingu Hóla sem skólaseturs.
Stjórn félagsins minnir á þá
staðreynd, hve gífurlega vaxandi
og aðkallandi þörl Islendinga er
íyrir æðri menntastoínanir þegar
á næstu árunt. ller sérstaklega
þrennt til. 1) Mannfjöldi á Islandi
eykst nn svo hröðum skrefum, að
gert er ráð fvrir því, að um næstu
aldamót verði tala landsmanna
orðin fjögur hundruð [íúsund. Sú
tala tvöfaldast síðan væntanlega á
urn það bil þrjátíu árum, ef engin
sérstök át'öll henda. 2) Kröfur nýs
tíma kalla á meiri fjölbreytni og
nýja uppbyggingu ýmissa atriða í
framlialdsmenntun æskunnar, m.
a. þeirri, er stéfnir að háskóla-
námi, og ber kirkjunni að eðli-
legum lrætti skylda til, nú eins og
forðum, að leggja liönd á plóginn
I skólamálum, eftir því sem þörf
þjóðarinnar krefst, — og þá ekki
sízt á hinum fornhelgu mennta-
setrum þeirra tveggja biskups-
stóla, sem störfuðu hlið við hlið
að menningarmálum þjóðarinnar
lengst af, eða frá því skömmu eft-
ir að kristni var lögtekin og til
aldamóta 1800, þegar það hrapa-
lega misferli var framið á ein-
hverjum mestu hörmungartímum,
sem yfir landið hafa gengið, að
leggja þá niður ásantt skólum stað
anna.
Með sérstöku tilliti til [tess, sem
hér liefur verið sagt um öran vöxt
þjóðarinnar, er auðsætt, að ntjög
nauðsynlegt er að hafa vel grund-
vallaðan viðbúnað til að mæta
vaxandi [x'irf á sviði almenns
kirkjustarls í framtíðinni, og mun
íslendingunt þykja vel íara á því
að knýta um leið menningárþræði
sögunnar á þann hátt, að báðir
biskupsstólarnir verði endurreist-
ir innan skannns. Verða J)á bisk-
upar þrír I landinu. Þeir munu
allir hafa ærin störf að vinna, og
í SLENDINGUR
fæst í Hreyfilsbúö-
inni við Kalkofns-
veg, Reykjavík.
Maðurinn minn,
STEINGRÍMTJR G. GUÐMUNDSSON,
vélsm íðameistari,
lézt að heimili sínu, Strandgötu 23, Akureyri, 1. ágúst
sl. — Jarðarförin fer frarn frá Akureyrarkirkju þriðju-
daginn 10. ágúst kl. 2 e. h. — Blórn vinsamlegast af-
þökkuð.
Lilja Valdimarsdóttir.
tSLENDINGUR
afélaginu
ci síður þótt safnaðarstarf og ann-
að leikmannsstarf aukist að mikl-
um mun frá því, sem nti er.
Hólahátíð skal lialda árlega í
samvinnu við Hólanefnd. Sé hún
um sautjándu helgi sumars, ef því
verður við komið.
(Úr jréttatilkynningu).
Sólskinsdagur í bænum
(Framhald af blaðsíðu 8).
nokkrum hestöflum.
Allsstaðar má sjá hálfþurra
og alþurra töðu á túnum og
grasflötum garðsins, og gamal-
kunnan ilm leggur fyrir vit. —
Hvað skyidu fást mörg kýrfóð-
ur úr Lystigarðinum?
Eg held göngunni áfram. Við
eitt jurtabeðið í grasgarðinum
standa roskin hjón, erlend, og
stafa sig fram úr letrinu á nafn
spjöldunum. Hvort skyldu þau
nú skilja latnesku heitin eða ís
lenzku betur?
Eg dvel ekki lengi í garðinum. 1
Vil ekki eyða löngum tima en
koma víðar. Og yfirgef svo
þessa Paradís Akureyrar með
lauslegu loforði um að heim-
sækja hana síðar, þegar veður
gefur ekki öllu verra, en færra
er um manninn þar, því að inn
an um fjölmenni nýt ég ekki
jafnvel að skoða einstakar urtir
og annað, sem garðurinn býr
yfir.
Þá varð mér gengið upp á
tjaldstæði bæjarins á Sundlaug
artúninu. Var þar margt tjalda,
og lágu tjaldbúar víða í sólbaði
úti fyrir tjaldskörinni. — Tjöld
voru margvísleg að gerð, sum í
furðulegum sniðum og af mis-
munandi stærðum og litum. -—
Nokkrir ungir menn reyndu
krafta sína á strengnum, sem
lagður er kringum . svæðið til
afmörkunar. Að öðru leyti lítil
hreyfing á tjaldgestum.
Eg gekk þá upp að hinu nýja
snyrtingahúsi, sem bærinn tók
í notkun í sumar. Hafði þar tal
af gæzlumanni, er kvað yfir 20
tjöld vera á svæðinu, en þau
hefðu verið a. m. k. tvöfalt fleiri
um nóttina. Margir hefðu tekið
sig upp um morguninn og hald
ið lengra austur á bóginn.
í húsinu er rúmgott og vist-
legt gæzlumannsherbergi, þar
sem vel sér yfir tjaldstæðin, og
þar eiga tjaldgestir kost á því
að síma. Snyrtiherbergin tvö
eru og rúmgóð og björt með
handlaugum og salernum, spegl
um og öðru því, er til þykir
þurfa.
Loks lá leið mín fram hjá
sundlauginni, en á stöllunum
norðan við hana voru um 50—
60 börn að sóla sig. Allsstaðar
var sumar og sól, sem yngsta
kynslóðin naut af hjartans lyst,
og hvaða kynslóð hefur meiri
þörf fyrir hvort tveggja? J.
Þýzka flutningaskipi'ð, sem
klofnaði á Kotflúð við Raufar-
höfn í fyrra (Susanne Reith),
en Björgun hf. eignaðist síðan,
sett saman og siglt til Reykja-
víkur.
Hópur væntanlegra bandarískra
tunglfara kemur til íslands og
kynrtir sér landslag við Oskju,
sem vísindamenn vestra telja
ekki ólíkt og vera muni á tungl-
inu.
Sr. Jakob Kristinsson fyrrv.
fræðslumálastjóri andast í
sjúkrahúsi í Reykjavík, kominn
á níræðisaldur.
Varðskipið Þór tekur brezkan
togara að meintum veiðum í
landhelgi. Málinu lokið með
réttarsætt.
Mikið tjón á húsum og öðrum
verðmætum verður í Hafnar-
firði, er eldur kemur upp í neta-
geymslu á Hvaleyrarholti, og á
trésmíðaverkstæði Birgis Ágústs
sonai' í Reykjavík á sama sólar-
hring.
Magnús Guðmundsson golf- og
skíðakennari frá Akureyri verð
ur íslandsmeistari í golfi í 4.
sinn.
Átján ára piltur, Viktor Gunn-
laugsson, fellur fram af svölum
á húsi í Reykjavík og bíður
bana.
Einar Magnússon yfirkennari
skipaður rektor við gamla
menntaskólann í Rvík en Guð-
mundur Arnlaugsson yfirkenn-
ari við hinn nýja, sem er í bygg
ingu.
Ungur maður úr Reykjavík, —
Gunnar Leósson tæknifræðing-
ur, drukknar við laxveiði í Hvít
á í Borgarfirði. Mun hafa orðið
fótaskortur í þungum straumi.
Síldveiðibáturinn Bjöm Jónsson
úr Reykjavík sökk á síldarmið-
um við Hrollaugseyjar 20 mín.
eftir að vart varð við ákafan
leka í bátnum, en báturinn var
105 tonn. Mannbjörg varð.
Næturfrost gerir aðfaranótt 26.
júlí. Sá eftir það víða á kartöflu
grasi í uppsveitum norðaustan-
lands.
Fjárhús og heylilaða stórskemm
ast af eldi að Hjarðarfelli í Mikl
holtshreppi á Snæfellsnesi. —
Einnig eyðilagðist allmikið hey
af eldi og vatni.
Vísitala framfærslukostnaðar
reynist óbreytt frá júnívísitölu,
eða 171 stig.
- í ÞAKKARSKULD
(Framhald af blaðsíðu 5).
sproti ógæfunnar hefur slegið
svo áiakanlega, sem raun ber
vitni, er maður stendur and-
spænis fávita.
100 króna hlutur í þessari fjár
söfnun gæti þó talizt vottur
þakklætis fyrir þá hamingju, að
standa ekki sjálfur í fávitans
sporum.
Jóhannes OIi Sæmundsson.